Bændablaðið - 13.12.2018, Síða 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 2018 47
þess að þeir séu bæði hjálmskjóttir
og skjóttir á hefðbundinn hátt.
Mæður þeirra beggja bera erfðir
fyrir slettuskjóttum lit, og feður
þeirra eru hefðbundið skjóttir með
slettuskjótt einkenni að auki. Ekkert
foreldranna ber erfðir fyrir leirlitum.
En ólíkt öðrum skjóttum hrossum
bera þessir tveir alhvítu folar engan
lit. Hvernig má það vera?
Einfaldast er að hugsa sér þetta
þannig að á fósturskeiði sé fylið
í raun litlaust, en þegar fóstrið
þroskast myndast á því litflekkir,
þessir litflekkir eru margir. Þeir
stækka, tengjast og leggjast hver
yfir annan með vaxandi þroska
fóstursins, þannig að lokaútkoman
verður einlitt folald. Þannig fær
folald lit sinn.
Hvítu mynstrin verða þannig
til að suma af þessum litflekkjum
vantar og þeir þroskast ekki hjá
fóstrinu. Ef hross er sokkótt, þá
urðu litarflekkirnir sem hefðu gefið
löppunum lit ekki til. Ef hross er
blesótt, þá vantar litarflekkinn sem
hefði gefið lit framan á hausinn
o.s.frv.
Þannig getum við séð viss
mynstur í því hvernig skjóttu litirnir
verða til. Hjá hjálmskjóttu hrossi
sem er mikið hvítt þroskuðust ekki
litflekkir á fótum, kvið, síðum og
haus. Höttótt hross (mikið hvítt
hefðbundið skjótt) þroskaði ekki
litflekki hér og þar á búknum en
gerði það hins vegar á hausnum.
Í tilfellum Als og Lýsings
hefur samspilið af þessum tveim
litflekkjamynstrum orðið þannig
á fósturþroskastiginu að engir
litflekkir urðu til. Þeir þroskuðu
aldrei lit og eru enn alhvítir.
Sönnun erfðanna
Lærdómsríkasta leiðin til að sanna,
að erfðir folanna, Lýsings og Als séu
svona blanda tveggja skjóttra mynstra,
er að láta þá eignast afkvæmi. Alur
er of ungur til þess að hafa eignast
afkvæmi enn en Lýsingur er búinn
að eignast tíu afkvæmi.
Lýsingur eignaðist þessi tíu folöld
nú í sumar er leið með átta einlitum
og tveim skjóttum hryssum austur á
Hæringsstöðum í Flóa. Í stuttu máli
sagt bera öll folöldin hvít mynstur.
Þrjú folaldanna bera einkenni þess
að vera arfblendin slettuskjótt. Þau
eru einlit á skrokkinn en með grófar
blesur, eða stjörnur, leista og hafa
ísblátt í augum. Hin sjö folöldin
bera ýmislega mynstraðar blöndur
af slettuskjóttu og hefðbundnu
skjóttu. Öll folöldin tíu hafa fengið
slettuskjóttar erfðir frá Lýsingi eins
og vera ber þar sem er arfhreinn
hjálmskjóttur.
Þessi niðurstaða sem folöldin
sýna kemur greinilega upp um
erfðaeiginleika Lýsings hvað
litmynstur varðar, þetta alhvíta
ástand er sem sagt samsett
úr hjálmskjóttu og höttóttu
(hefðbundnu skjóttu).
Fágæti og erfðaauður
Mér vitanlega hefur ekki áður
verið svona hestur í íslenska
hrossastofninum sem hefur
uppgötvast og komist á skrár og
upplýst hefur verið hvernig á lit hans
stendur. Ugglaust hefur samt fæðst
svona hross áður.
Lýsingur er búinn að sanna sínar
litaerfðir. Alur er hins vegar ekki
faðir ennþá, en hann er ógeltur og
vonandi fær hann að sanna sig . Af
foreldrum hans að dæma þá er hann
sömuleiðis bæði hjálmskjóttur og
höttóttur.
Þessir tveir hestar sýna okkur
ljóst að það eru möguleikar í litum í
íslenska hrossastofninum sem ekki
eru á allra vitorði og það eru flækjur
í erfðunum. Mynsturmöguleikar eru
fyrir hendi sem ekki eru auðséðir
af því sem áður hefur verið ritað
um íslensk hross og þeir eru ekki
auðskráðir í litskráningakerfið í VF.
Litirnir eru erfðaauður í stofninum.
Erlendis er áhugi á fágætum litum á
folöldum hér heima. Slík folöld hafa
tilhneigingu til að hverfa úr landi
svo þau verða ekki að liði í ræktun
hér heima á Íslandi. Það má öllum
vera ljóst að það er markaður fyrir
hendi fyrir hross í fágætum litum
og sjaldséðum litasamsetningum.
Við þurfum hins vegar að vanda
betur þessa litaræktun og verðleggja
hana mun hærra en gert hefur verið,
sinna þessum markaði og efla um
leið afrakstur ræktunarinnar hér
heima, skjóta fleiri stoðum undir
starfsemina í hrossageiranum.
Páll Imsland
Freyja Imsland
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
MHG Verslun ehf | | 20 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 7 0
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar
Ætt Lýsings frá Reykjavík
Lýsingur frá Reykjavík, f. 2015, alhvítur (líklegast rauður að grunnlit)
F: Lykill frá Skjólbrekku, 2009, rauðskjóttur hringeygur
FF: Baugur frá Víðinesi, 2001, rauðskjóttur hringeygur
FFF: Hróður frá Refsstöðum, 1995, rauðblesóttur sokkóttur
FFM: Gáta frá Hofi, 1984, rauðskjótt
FM: Ófeig frá Skjólbrekku, 1992, móbrún
FMF: Eilífur frá Sveinatungu, 1977, leirljós
FMM: Sokka frá Kárastöðum 1978, brúnsokkótt
M: Draumadís frá Melum, 1998, dökkjörp glámblesótt leistótt hringeyg
MF: Glitfaxi frá Kílhrauni, 1995, jarpvindóttur
MFF: Mjölnir frá Sandhólaferju, 1981, rauðjarpur
MFM: Dögg frá Kílhrauni, 1987, jarpvindótt
MM: Bógadýr frá Grundarfirði, 1981 jarpskjótt
MMF: Brúnblesi frá Hoftúnum, 1975, brúnblesóttur
MMM: Indíra frá Hnjúki, 1969, jarpskjótt
Ætt Als frá Ártúnum
Alur frá Ártúnum, f. 2017, alhvítur (grunnlitur óþekktur, líklegast brúnn, móálóttur,
móvindóttur eða móálóttur vindóttur)
F: Óður frá Ártúnum, 2010, brúnhöttóttur tvístjörnóttur hringeygur með svart í tagli
FF: Óðinn frá Eystra-Fróðholti, 2004, jarpur
FFF: Sær frá Bakkakoti, 1997, móálóttur
FFM: Særós frá Bakkakoti, 1992, jörp
FM: Hetta frá Ártúnum, 2002, brúnskjótt höttótt hamarblesótt syrjótt með svart
í tagli og ægishjálm
FMF: Skrúður frá Framnesi, 1993, brúnskjóttur
FMM: Gína frá Ártúnum, 1996, fagurjörp
M: Kolka frá Ártúnum, 2012, ljósmóálótt vindótt blesótt
MF: Landi frá Skarði, 2002, ljósmóálóttur
MFF: Vígar frá Skarði, 1997, móálóttur
MFM: Skessa frá Svínafelli, 1996, fífilbleik litförótt stjörnótt
MM: Glyrna frá Ártúnum, 2007, móvindótt hringeyg
MMF: Rúmur frá Forsæti, 2003, móvindóttur skjóttur
MMM: Gjöf frá Ártúnum, 2003, brún
Lýsingur í stóðinu sínu sumarið 2017.
Nokkrir afkomenda Lýsings.
Hamrahlíð 17
Hús Blindrafélagsins
Sími 552-2002
ÓDÝR
Gleraugu með
glampa- og rispuvörn
Verð 19.900 kr
Sérsmíðum samdægurs í styrk +/- 5.0 með cyl. til 2,0.