Bændablaðið - 13.12.2018, Qupperneq 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201850
Kryddið og litarefnið saffran
er unnið úr haustblómstrandi
krókus. Plantan telst seint til
helstu nytjaplantna heims en saga
hennar er áhugaverð. Saffran er
dýrasta krydd í heimi.
Áætluð heimsframleiðsla á
saffran árið 2017 til 2018 er um 450
tonn en talið að uppskeran verði um
500 tonn 2019. Íran er langstærsti
framleiðandi saffran í heiminum
með yfir 90% markaðshlutdeild.
Aðrir framleiðendur eru Spánn,
Indland, Grikkland, Aserbaídsjan,
Marokkó, Ítalía og Bandaríki
Norður-Ameríku. Eins og gefur auga
leið flytur Íran út mest af saffran en
þar langt á eftir í magni koma Spánn,
Indland og Grikkland. Stærstu
innflytjendur saffran í heiminum eru
Spánn, Frakkland, Ítalía, Bandaríkin
Norður-Ameríka og Sameinuðu
arabísku furstadæmin. Danmörk er
í þrítugasta og áttunda sæti þegar
kemur að innflutningi á saffran en
Ísland er í áttugasta og áttunda af
þeim 166 löndum í heiminum sem
flytja inn mest saffran.
Talið er að saffran sé ræktað á
tæplega 100 þúsund hekturum lands
í heiminum.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Hagstofu Íslands voru flutt inn 807
kíló af saffran til Íslands árið 2017.
Mestur var innflutningurinn frá
Spáni, 434 kíló, Danmörku, 175 kíló
og 71 kíló frá Bandaríkjum Norður-
Ameríku og Þýskalandi.
Sé það rétt að flutt séu til landsins
807 kíló af saffran á ári er það um
0,18% af heimsframleiðslunni og
mikið magn miðað við að saffran
er dýrasta krydd í heimi. Reyndar
er hægt að fá saffran í mörgum
gæðaflokkum og lækkar verðið eftir
því sem gæðin eru lakari.
Selt sem saffran
Planta sem kallast safflúr, litunar-
þistill eða litunarkollur á íslensku
en Carthamus tinctorius á latínu
hefur lengi verið notuð og seld
sem saffranlíki. Plantan er einkum
ræktuð vegna fræjanna sem olía
með gullnum litblæ er unnin úr.
Úr blómunum er unnið rauðgult
litarefni sem notað er til að lita
vefnað og matvæli í staðinn fyrir
saffran. Líklega væri best að kalla
þessa plöntu seltsemsaffran á
íslensku.
Einnig er þekkt að þurrkuðum
krónublöðum morgunfrúar sé
blandað við saffran til að drýgja það.
Ættkvíslun Crocus
Um níutíu tegundir laukjurta tilheyra
ættkvíslinni Crocus. Uppruni þeirra
er við Miðjarðarhafið um Mið-
Asíu til Kína. Krókusar eins og við
þekkjum þá blómgast snemma á
vorin en einnig eru til tegundir sem
blómstra á sumrin og á haustin.
Krókusinn sem saffran er unnið úr
er haustblómstrandi.
Crocus sativum, eins og
saffrankrókusinn kallast á latínu,
er talinn ræktunarafbrigði C.
cartwrightianus og finnst ekki villtur
í náttúrunni nema sem slæðingur frá
ræktun.
Saffrankrókus
Laukur saffrankrókussins er um þrír
sentímetrar í þvermál, eilítið flatur
að neðan, og tveir til tveir og hálfur
sentímetrar á hæð. Laukurinn er
ljósbrúnn að lit og ystalagi þurrt og
örlítið skrælnað. Upp af lauknum
vex einn, stundum tveir, 10 til
30 sentímetra hár blómstöngull.
Blöðin fimm til ellefu, dökkgræn,
mjólensulaga og 15 til 25 sentímetra
að lengd. Blómin ilmandi, með
sex krónublöðum sem yfirleitt eru
lillablá. Frævur gular en fræflarnir,
yfirleitt þrír, appelsínugulir eða
rauðir. Fræbelgir aflangir og hærðir,
tveir til þrír sentímetrar að lengd.
Fræin óreglulega hnöttótt, þrír til
fjórir millimetrar í þvermál. Myndar
sjaldan fræ því mörg yrki eru geld.
Ólík yrki
Líkt og með allar plöntur sem hafa
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is