Bændablaðið - 13.12.2018, Page 68
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201868
Stór hluti Íslands er rofið land.
Víðerni landsins eru verðmæti
og um þau þarf að standa vörð
eins og önnur náttúruverðmæti.
Engum blöðum er um það að
fletta að hingað sækir fólk
hvaðanæva að úr heiminum til
að njóta náttúrunnar og ekki síst
víðlendra svæða þar sem lítið
eða ekkert sést af mannvirkjum.
Gjarnan gleymist þó að eitt
sinn var Ísland miklu betur gróið
en nú er. Þá voru víðernin græn.
Nú eru þau víða svört. Spyrja má
sig að því hvort svarti liturinn hafi
það aðdráttarafl sem helst laðar til
landsins ferðafólk í milljónatali.
Sækja ferðamenn síður í þau
svæði þar sem land hefur verið
grætt upp með lággróðri, kjarri
eða skógum?
Binding gróðurhúsalofttegunda
Þótt ítarlegri rannsóknir skorti
benda mælingar á öndun að og frá
þurrlendisvistkerfum til þess að frá
rýru og rofnu landi á Íslandi losni
mikið af gróðurhúsalofttegundum
út í andrúmsloftið. Þar er gamall
jarðvegur að rotna, jarðvegurinn
sem fóstraði gróðurinn á þessum
svæðum meðan þau voru græn.
Með því að græða slík svæði upp
má ekki aðeins draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda á Íslandi,
heldur snúa losun landsvæðanna
yfir í bindingu.
Nokkur ferðaþjónustufyrirtæki
taka þegar þátt í uppgræðslu- og
skógræktarverkefnum og nýta þá
leið til kolefnisjöfnunar. Fræða
þarf ferðamenn um hvernig
gróðurþekja og jarðvegur landsins
hefur eyðst frá landnámi. Það
er mikilvægt svo þeir skilji
betur hversu nauðsynlegt er að
græða upp land og rækta skóg,
ekki aðeins til kolefnisjöfnunar
heldur til að byggja upp jarðveg
og gróður og breiða skóglendi út
á ný.
Skógareyðing er eitt alvarlegasta
umhverfisvandamál heims
Uppgræðsla auðna og rofsvæða
á Íslandi er nauðsynlegt og
verðugt framlag landsins til
sameiginlegrar baráttu jarðarbúa
gegn loftslagsbreytingum.
Skógareyðing er eitt alvarlegasta
umhverfisvandamál heims. Þar
eiga Íslendingar sína sök. En fyrir
þá sök má bæta, meðal annars með
því að örva útbreiðslu birkis og
víðis á víðernum landsins. Það
yrðu dásamleg víðerni.
Dimmuborgir og Skaftafell
eru góð dæmi um vinsæla
ferðamannastaði þar sem
snúið hefur verið við jarðvegs-
og skógareyðingu. Þessir
staðir eru meðal vinsælustu
ferðamannastaða á landinu.
Það sama má segja um
Þórsmörk. Nú styttist í að unnið
hafi verið að beitarfriðun og
uppgræðslu á Þórsmerkursvæðinu
í heila öld. Þegar það starf hófst
um 1920 blasti við að Þórsmörk
og nærliggjandi afréttir yrðu að
eyðimörk. Þeirri þróun var snúið
við og nú er Þórsmörk orðin græn
á ný. Aðdráttarafl hennar verður
því meira sem hún verður grænni.
Meðfylgjandi myndir segja
meira en mörg orð. Þá eldri tók
Einar Þór Guðjohnsen árið 1953
og þá yngri Hreinn Óskarsson í
sumar sem leið. Með framlögum
til uppgræðslu og skógræktar
getur ferðaþjónustan gert margt í
einu, bundið kolefnið sem losnar
vegna starfseminnar, endurheimt
horfin vistkerfi og aukið vitund
ferðamanna fyrir umhverfisvernd.
Því meira aðdráttarafl sem landið
er grænna.
Pétur Halldórsson
kynningarstjóri Skógræktarinnar
Hreinn Óskarsson,
sviðstjóri samhæfingarsviðs
Skógræktarinnar
SKÓGRÆKT&LANDGRÆÐSLA
Valahnúkur í Þórsmörk í maí 1953. Mynd / Einar Þór Guðjohnsen
Valahnúkur í Þórsmörk sumarið 2018. Mynd / Hreinn Óskarsson
Hreinn Óskarsson.
Pétur Halldórsson.
Verkefnið „Bjarnarfoss í
Staðarsveit – aðgengi fyrir alla allt
árið“ hlaut Umhverfisverðlaun
Ferðamálastofu árið 2018 sem
voru afhent á dögunum. Verkið
var unnið á árunum 2015–2016
og er gott dæmi um hvernig
heimafólk og sveitarfélag, með
liðsinni Framkvæmdasjóðs
ferðamannastaða, hafa unnið
faglega að uppbyggingu
áningarstaðar þar sem allir geta
notið fallegrar náttúru. Staðurinn
er nú aðgengilegur allt árið.
Bjarnarfoss er tignarlegur foss
sem fellur fram af hamrabrúninni upp
af Búðum á Snæfellsnesi.
Fossinn, ásamt stuðla-
bergshömrum beggja
vegna og gróskumiklum
brekkum neðan þeirra,
er á náttúruverndarskrá
Vesturlands. Fossinn
blasir við vegfarendum
sem fara um þjóðveginn á
sunnanverðu Snæfellsnesi
og því ekki að undra að
hann hafi dregið til sín
ferðafólk í auknum mæli.
Snæfellsbær sótti
um í Framkvæmdasjóð
ferðamannastaða og
fékk 10 milljóna
króna styrk til að gera
göngustíg, göngubrú,
áningarstað, bílastæði
og skilti. Áður hafði
sveitarfélagið fengið
tæpa hálfa milljón til
hönnunarvinnu. Markmið
styrkveitinganna var
að vernda viðkvæma
náttúru og bæta aðgengi
ferðamanna að fossinum.
Göngustígurinn er
lagður þannig að hann
liðast eftir landinu. Notast
var við svokallaðar eco-
grindur sem eru lagðar í yfirborð
stígsins og þær síðan fylltar með
ofaníburði, þannig að auðveldara
væri að fara um stíginn t.d. á hjólastól
eða með barnakerru. Göngubrúin
yfir gilið neðan við fossinn er gerð
úr viðardrumbum og fellur vel inn
í landslagið. Áningarstaðirnir eru
síðan teknir út úr stígnum eftir legu
landsins en þeir eru lagðir með
náttúruhellum. Þar er einnig að finna
áningarborð. Gott bílastæði er við
upphaf stígsins og gamla brúin við
veginn var endurgerð samkvæmt
upprunalegum teikningum frá árinu
1949. /MHH
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, og Margrét
Björk Björnsdóttir veittu verðlaununum viðtöku fyrir hönd
Snæfellsbæjar og eru hér með Skarphéðni Berg Steinarssyni
ferðamálastjóra. Mynd / Snæfellsbær
„Bjarnarfoss í Staðarsveit – aðgengi fyrir alla allt árið“
hlaut umhverfisverðlaun Ferðamálastofu árið 2018