Bændablaðið - 13.12.2018, Page 71
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 2018 71
Stórtæk lárperu- og
mangóframleiðsla
Í ferðinni var farið í heimsókn
í mörg samyrkjubú sem voru í
allskonar landbúnaðarframleiðslu
en flest þeirra hafa nokkuð
fjölbreytta framleiðslu til þess að
bæði nýta landið vel, sem og að
dreifa áhættunni sem fylgir því að
framleiða matvæli sem eru seld á
heimsmarkaði. Ísrael er nefninlega
nokkuð öflugt í útflutningi á
ákveðnum vörum og sérstaklega
sterkt í framleiðslu á lárperum og
mangó. Þegar búin voru heimsótt
var búið að uppskera báðar þessar
tegundir en hópurinn fékk þó
fína kynningu um þessa framandi
framleiðslu, sem og að sjá þétta
akrana með þessum ávaxtatrjám.
Bæði lárperur og mangó eru
tíndar á haustin og fer mest af
framleiðslunni til útflutnings.
Mangó ávöxturinn er aðallega seldur
í Englandi, Frakklandi og Hollandi
en lárperurnar fara bæði til marga
landa í Evrópu sem og til Asíu.
Að sögn heimamanna þá skilar
þessi framleiðsla ágætum tekjum
en vandinn er þó sá að þegar
trjánum er plantað er alls óvíst hver
eftirspurnin verður eftir um áratug,
þegar framleiðslan er orðin mest
af trénu. Það er vegna þess að ótal
mismunandi afbrigði eru til bæði
af lárperutrjám og mangótrjám
og sögðu þeir að eftirspurnin eftir
mismunandi afbrigðum sveiflaðist
mikið á milli landa og neytendahópa
bæði hvað varðar lit ávaxtarins,
stærð og bragðgæði. Þá virtist sem
ákveðnir „tískustraumar“ valdi því
að ólík afbrigði ná allt í einu hylli
neytenda en önnur afbrigði falla í
ónáð. Bóndinn sem plantar trénu
þarf því að vera afar framsýnn þegar
afbrigðið er valið – nú eða heppinn.
Vökva akra með sjó
Eins og hér að framan greinir þá
byggir árangurinn fyrst og fremst
á því hvernig þekkingin er nýtt til
framleiðslu og allur landbúnaður
á þessu svæði á það sameiginlegt
að búa við afar erfið ytri skilyrði
vegna mikilla hita og lítillar úrkomu.
Bændurnir hafa með nýtingu nútíma
tækni og mikillar þekkingar náð að
aðlaga framleiðsluna að erfiðum
ytri aðstæðum og var sérstaklega
áhugavert að kynnast því hvernig
þeir ná að framleiða bæði mjólk og
ávexti við þessar aðstæður. Lykillinn
er vandasöm nýting á vatni, en
flest búin nýta sér vatn úr Galilea
vatninu, einnig með endurvinnslu
á vatni frá skólpi, og með því að
nýta það regnvatn sem fellur til.
Þá er einnig ört vaxandi nýting á
ferskvatni sem unnið er úr sjó en
ferskvatnsframleiðsla úr sjó hefur
aukist gríðarlega síðustu árin og
mun aukast á komandi árum að sögn
heimamanna.
Samyrkjubú í
mjaltatækjaframleiðslu
Samyrkjubúið Afikim er nokkuð
sérstakt vegna þess að það starfrækir
framleiðslu á mjaltatækni! Merkið
heitir Afimilk og þó það sé ekki
þekkt vörumerki á Íslandi er það
nokkuð útbreitt og sérstaklega
meðal stærri kúabúa. Hópurinn
heimsótti þetta samyrkjubú og eftir
að hafa skoðað helstu framleiðslu
búsins sem m.a. er í döðlufram-
leiðslu, mangó og lárperum, var
Afimilk heimsótt og þar var haldinn
fyrirlestur um fyrirtækið og helstu
nýjungar sem það er með á markaði.
Sérstaða Afimilk er í raun sú að það
framleiðir hefðbundna mjaltatækni
en notast við fullkomna skynjara
og greiningarbúnað sem gera allt
hjarðeftirlit bæði einfalt og skilvirkt.
Það er þó sérstaklega búnaður sem
Afimilk notar til greininga á mjólk,
um leið og kýrin er mjólkuð, sem er
með þeim fullkomnari á markaðinum
ef ekki sá fullkomnasti.
Þessi búnaður getur t.d. mælt
fituinnihald mjólkurinnar um leið
og kýrin er mjólkuð og m.a. flokkað
mjólk búsins í tvær mjólkurlagnir
allt eftir vilja bóndans. Þannig getur
búið t.d. verið með tvo mjólkurtanka
og í öðrum þeirra geymt fituríka
mjólk og í hinum fituminni mjólk
svo dæmi sé tekið. Afar áhugaverð
tækni sem etv. verður eftirspurn eftir
frá afurðastöðvum í framtíðinni. Þá
getur greiningarbúnaður Afimilk
einnig greint það hvort kýrin sem er
verið að mjólka sé yxna eða ekki auk
fleiri atriða sem tengjast heilsufari
hennar.
3 mjólka 1.100 kýr
Af annars mörgum áhugaverðum
heimsóknum til bænda í Ísrael þá
var heimsóknin á samyrkjubúið
Hof Hasharon einkar eftirminnileg.
Þetta bú er það stærsta í Ísrael og
með um 1.100 kýr og er auk þess
eitt allra afurðahæsta bú landsins.
Búinu er stjórnað af dýralækninum
Dror Reznikov og tók hann á móti
hópnum og sýndi þar allt sem við-
kom búinu. Hverjum mátti strax
vera ljóst að þarna er staðið afar
fagmanlega að verki og mikið
lagt upp úr skilvirkni bæði kúa
og vinnuafls. Allir vinnuferlar
eru þaulhugsaðir sem og hönnun
þeirra bygginga sem eru á búinu
svo nýting vinnuafls sé sem best
og gönguleiðir stuttar. Þá sagði
Dror frá því að þar sem búið er
staðsett á vesturströnd Ísrael er oft
vindur af hafi og hann sé nýttur til
að kæla kýrnar með því að hliðar
fjós-anna sem hýsa kýrnar snúa
þannig að vindurinn getur leikið
um kýrnar.
Þrátt fyrir að kýrnar væru
greinilega afar vel hirtar og
skiluðu miklum afurðum var
þó líklega afkastagetan við
mjaltirnar sem vöktu mesta
athygli en mjaltabásinn var svo-
kallaður hraðútgangsbás með 30
mjaltatækjum til hvorrar handar og
tækin því 60 í allt. Í básnum voru
þó einungis þrír við mjaltir, þ.e.
hver þeirra sá um 20 mjaltatæki.
Það eru afköst í lagi svo ekki sé
nú meira sagt!
Menning og saga við hvert
fótmál
Þegar ferðast er um Ísrael
eða Palestínu verður hverjum
ferðamanni ljóst að þarna er farið
um svæði þar sem sagan er við
hvert fótmál. Ekki verður hér gerð
djúpstæð tilraun til þess að lýsa
hinum svokallaða menningarlega
hluta ferðarinnar en hann náði m.a.
til skoðunarferðar til Jerúsalem, að
fæðingarstað Krists í Betlehem í
Palestínu og til hinar gömlu borgar
Jaffa við Tel Aviv. Þá var skroppið
í sundferð í Dauðahafið, haldið
upp á hið forna virki Masada, áð
við Qasr el Yahud þar sem talið
er að Kristur hafi hlotið skírn
sína í ánni Jórdan, að húsinu þar
sem María mey bjó í Nasaret,
að landamærunum við Sýrland
og til hinnar fornu hafnarborgar
Rómverja Caesarea Maritima svo
það helsta sé nú tínt til.
Hópmynd, þessi var tekin á hinum fornfræga keppnisvelli í Caesarea maritima – þar sem Rómverjar skemmtu sér við kerrureið (Ben Hur…)
Dýravelferðarvottanir eru
staðfesting óháðs þriðja aðila á
því að aðbúnaður og meðhöndlun
dýranna sé í samræmi við ákveðinn
dýravelferðarstaðal/reglur sem
gengur lengra en almenn lög og
reglugerðir um dýravelferð og
aðbúnað.
Dýravelferðarvottanir hafa
hingað til verið mest áberandi í
Bandaríkjunum. Þær bandarísku
velferðarvottanir sem eru leiðandi,
hafa raunveruleg áhrif á aðbúnað
og meðhöndlun dýranna og er
helst treystandi skv. fulltrúum
verkefnisins Farm Forward, eru
Certified Humane Raised and
Handled, Global Animal Partnership
sem var upphaflega búin til af Whole
Foods Market en varð síðar að
almennri vottun, Animal Welfare
Approved (AWA) og American
Grassfed.
Innan Evrópusambandsins er
engin sérstök velferðarvottun búfjár
til en ólíkar vottanir eru í boði í
ólíkum löndum, bæði opinberar og
í eigu fyrirtækja. Dæmi um það er
opinbera merkið í Danmörku fyrir
svínaræktendur, Bedre Dyrevelfærd
og merki verslunarkeðjunnar Coop,
Dyrevelfærd, Det Gode Staldliv.
Coop, sem er með ríflega
þriðjungs markaðshlutdeild í
Danmörku, ákvað að gera sitt
eigið merki þar sem forsvarsmenn
hennar telja hið opinbera merki
vera ákveðinn hvítþvott og segja
sitt merki byggjast á áreiðanlegri
og strangari reglum. Neytendur í
Danmörku virðast á sama máli því
kannanir hafa sýnt að þeir telji það
ekki nógu metnaðarfullt.
Samevrópsk löggjöf
Sífellt meiri þrýstingur er á
samevrópska löggjöf sem rétt
er að taka fram að væri ekki
„valkvæð vottun“ eins og verkefni
höfundar snérist um. Samkvæmt
rannsóknargreininni „Dýravelferð
innan Evrópusambandsins“ sem
var gefin út árið 2017 að beiðni
Evrópuþingnefndar, er þörf á
almennum dýravelferðarlögum
og sérstökum lögum um
ákveðnar dýrategundir, þar sem
núverandi dýravelferðarstefna og
löggjöf ESB nái ekki til flestra
dýrategunda sem haldnar séu innan
sambandsins, þ.á.m. þeirra þar sem
velferðarvandamálin eru mest.
ISO staðall um dýravelferð
Alþjóðlegur ISO staðall ISO/
TS 34700:2016 Animal welfare
management -- General requirements
and guidance for organizations in the
food supply chain var gefinn út í
lok árs 2016. Markmið hans er að
tryggja velferð sláturdýra um allan
heim í gegnum ákveðin markmið
sem tilgreind eru í staðlinum. Aukin
vitund almennings um meðferð
sláturdýra og þrýstingur á úrbætur,
sem og aðgerðir framleiðenda til að
bregðast við því, stuðlaði að gerð
þessa staðals.
Staðlinum er ætlað að hjálpa
matvæla- og fóðuriðnaðinum
að tryggja velferð sláturdýra í
gegnum virðiskeðjuna með því að
þróa dýravelferðaráætlun sem er í
samræmi við velferðarviðmið (e:
Terrestrial Animal Health Code)
Alþjóða dýravelferðarstofnunarinnar
(OIE). Aðild að henni eiga 181 ríki,
þ.m.t. Ísland, en meginmarkmið
hennar er að bæta dýraheilbrigði á
heimsvísu.
Á Íslandi
Þegar þetta er ritað er enginn
íslenskur framleiðandi með sérstaka
dýravelferðarvottun. Allnokkrir gera
þó út á aukna dýravelferð í sinni
framleiðslu og markaðssetningu,
en neytendur þurfa í þeim tilvikum
að treysta orðum framleiðandans.
Rétt er að taka það fram
að í reglum um lífræna vottun
eru strangar kröfur gerðar til
dýravelferðar og má því segja að
hún feli í sér dýravelferðarvottun.
Nú eru fjórtán framleiðendur með
slíka vottun (ræktun sauðfjár,
nautgripa, varphænsna og eldisseiða,
auk eins sláturhúss). Vottunarstofan
Tún er faggild til slíkrar vottunar,
en að því frátöldu er enginn aðili
hér á landi með faggildingu til
vottunar samkvæmt sérstökum
dýravelferðarstaðli.
– Oddný Anna Björnsdóttir er
sjálfstætt starfandi ráðgjafi og bóndi
í Gautavík. Greinar í Bændablaðinu
um vottanir og upprunamerkingar
byggjast á verkefni sem hún vann
fyrir Íslandsstofu veturinn 2018.
Greiningin er aðgengileg í heild
sinni á vef Íslandsstofu.
VOTTANIR & UPPRUNAMERKINGAR MATVÆLA
Oddný Anna Björnsdóttir
objornsdottir@gmail.com
Dýravelferðarvottanir