Bændablaðið - 13.12.2018, Page 76

Bændablaðið - 13.12.2018, Page 76
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201876 Hér eru lagðar þrjár þrautir fyrir unga fólkið. Þótt þessar þrautir séu hugsaðar fyrir unga fólkið er vel hægt að gera úr þessu keppni milli yngri og eldri á heimilinu. Spennandi getur verið að sjá hvorum hópnum gengur betur. Þó þeir eldri séu reynslumeiri og ættu þar með að hafa nokkurt forskot, þá er yngra fólkið oft frjórra í hugsun og fljótari að átta sig á hlutunum. Það er því alls ekkert sjálfgefið hvaða hópur hefur betur. Lausnir á þessum gátum má finna á smáauglýsingasíðum aftast í blaðinu. Ú Ú T É X R Ð I Æ S Ð D Æ H T H K R Í A O Ö B D G D H R Y Þ U J Í B L U N D I A V K Æ J H Á T I Ó M R F N Ð R Á F F L Æ O J H N A J V B H A F Ö R N U R Ú E S J Ó S V A L A F P L Á Á Á X Ð Þ Ö G U A L Æ R T Ö O H M M G O A R I T A A I I Æ L L JÓLAÞRAUTIR FYRIR UNGA FÓLKIÐ Sala á jólatrjám er mikilvæg tekjulind skógræktarfélaganna. Nú stendur sem hæst sú vertíð og gera félögin sitt besta til að búa til skemmtilega jólastemningu fyrir viðskiptavini sína. Í jólaskógum þeirra eru fjórar tegundir algengastar; stafafura, rauðgreni, blágreni, sitkagreni – auk þess sem unnið er að því að gera fjallaþin að markaðsvöru. Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur starfrækt jólamarkað í gamla bænum við Elliðavatn, í núverandi formi, undanfarin sex ár og selt hoggin jólatré úr jólaskógum sínum utan dyra við gamla bæinn. Þar verður opið báða daga um næstu helgi og svo laugardaginn 22. desember, en lokað á Þorláksmessu. Færri komast á sölubásana en vilja Bændablaðið fangaði stemninguna við Elliðavatnsbæinn um síðustu helgi og tók Tinna Ottesen, starfsmaður Skógræktarfélags Reykjavíkur, á móti blaðamanni. „Við reynum að vera með allar íslenskar tegundir jólatrjáa og fáum meira að segja blágreni að austan og jafnvel slæðist fjallaþinur með. Það er talað um að það geti verið framtíð í honum því hann hefur marga eftirsóknarverða eiginleika. Megnið af því sem við erum með hér kemur úr Heiðmörk og salan á stafafuru er mest. Við höfum verið að selja tré sem eru ekki dæmigerð í útliti eða formi og hefðbundin jólatré – og við köllum þau einstök tré. Núna bjóðum við líka upp á alveg sérstaka útlitstegund, en það eru löng og mjó tré sem henta þá vel í fjölbýli og á aðra staði þar sem lítið rými er. Það er talsverð ásókn í að fá að selja á markaðnum en flestir þeirra sem eru að selja hér handverk og matvöru koma ár eftir ár. Við viljum að hér séu hágæða vörur og reynum að velja inn samkvæmt þeirri stefnu. Það er líka mjög gaman að segja frá því að fólk nær að selja nokkuð vel á básunum sínum,“ segir Tinna. Einkenni og umhirða jólatrjáa Nánari upplýsingar um jólaskóga skógræktarfélaganna er að finna á vef Skógræktarfélags Íslands, skog.is, auk þess sem einkenni trjátegundanna eru útlitstuð þar og æskileg umhirða þeirra. /smh Sala jólatrjáa í jóla skóg- unum í fullum gangi Myndir / smh

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.