Bændablaðið - 13.12.2018, Qupperneq 81
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 2018 81
Hér er flott jólahúfa á káta
krakka.
Stærð: 2 (3/4) 5/8 (9/12) ára
Höfuðmál: ca 48/50 (50/52) 52/54 (54/56) cm
Lengd: 38 (41) 42 (45) cm
Garn: Drops Merino Extra Fine fæst í Handverkskúnst
100-100-100-100 g litur 11, rauður
50-50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50-50 g litur 05, ljós grár
Prjónar: Sokkaprjónar nr 3,5, 40 cm hringprjónar
nr 2,5 og 3,5.
Prjónfesta :22 lykkjur á breidd og 30 umferðir á
hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
Mynstur: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.3.
ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki
þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan
prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna
eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu
lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 2
lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja),
prjónið 2 lykkjur slétt saman.
HÚFA:
Húfan er prjónuð í hring. neðan frá og upp. Skiptið
yfir á sokkaprjón eftir þörfum.
Fitjið upp 104 (112) 112 (120) lykkjur á hringprjón
2,5 með ljósgrár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan
stroff (= 2 sl,2 br) 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5.
Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 8 lykkjur jafnt
yfir umferðina = 96 (104) 104 (112) lykkjur. Prjónið
A.1 hringinn (= 12-13-13-14 mynstureiningar með
8 lykkjum). Í umferð merktri með ör er aukið út um
0 (1) 1 (2) lykkjur jafnt yfir = 96 (105) 105 (114)
lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er
prjónað A.2 hringinn. Í umferð merktri með ör er
fækkað um 0 (1) 1 (2) lykkjur jafnt yfir = 96 (104)
104 (112) lykkjur. Prjónið A.3 hringinn (= 12-13-
13-14 mynstureiningar með 8 lykkjum). Prjónið
áfram slétt prjón með rauðum lit þar til stykkið
mælist 16 (17) 18 (19) cm. Setjið 1 prjónamerki í
byrjun umferðar og 1 prjónamerki eftir 48 (52) 52
(56) lykkjur (prjónamerki merkja hliðar). Í næstu
umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við
hvert prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls 23
(25) 25 (27) sinnum = 4 lykkjur á prjóni í öllum
stærðum. Klippið frá, dragið bandið í gegnum
þær lykkjur sem eftir eru, herðið á bandi og festið
vel. Húfan mælist ca 38 (41) 42 (45) cm ofan frá
og niður.
Gangið frá endum, festið skúf eða dusk á enda
húfunnar.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Jólahúfa á káta krakka
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
6 8 4 9 5 1
1 5 8
2 1 6 3
6 1 7
4 2 8 9
5 3 4
4 9 7 5
2 6 3
9 6 7 2 8 4
Þyngst
2 8
6 3 9
4 7 6
5 1 8
6 7 4
1 7 9
4 3 2
5 8 4
8 7
8 9
4 5 7
1 2 8
3 6
7 9 8 2
3 6
8 6 5
2 9 4
5 3
8 4 3
9
7 5 2
3
9 1 8
7
4 5 1
3
6 7 2
Lömbin eru uppáhalds
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Sigurður Gísli á tvö systkini,
eldri systur og yngri bróður.
Hann býr á Kirkjubæjarklaustri
II og foreldrar hans eru
sauðfjárbændur þar.
Honum finnst mjög skemmtilegt
í fótbolta og hjálpar stundum heima
við búskapinn og heimilisstörfin.
Nafn: Sigurður Gísli Sverrisson.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Krabbi.
Búseta: Kirkjubæjarklaustur II.
Skóli: Kirkjubæjarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast
í skólanum? Náttúrufræði og
samfélagsfræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Lömb.
.
Uppáhaldsmatur: Lambalæri.
Uppáhaldshljómsveit: Queen.
Uppáhaldskvikmynd: Þór ragnarök.
Fyrsta minning þín? Að vera með
jólaköttinn frá leikskólanum Kærabæ.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi fótbolta og blak.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Veit það ekki.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Að fara í alla rússíbanana
í Legolandi síðasta sumar.
Hvað ætlar þú að gera skemmtilegt
um jólin? Opna pakka.
Næst » Sigurður Gísli skorar á Stellu
Björk Harðardóttur, Efri-Ey I, að
svara næst.
Bonito ehf. • Praxis • Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími 568 2870
www.praxis.is •
Óskum viðskiptavinum
okkar og landsmönnum
öllum gleðilegra jólahátíðar
og farsældar á nýju ári
...Þegar þú vilt þægindi
LOKAÐ vegna jólaleyfa 18. desember–6. janúar