Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 41

Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018 SKÓGRÆKT&LANDGRÆÐSLA Lífið er vatn og vatn fyrir alla Ísland var fyrr á tíð eðlilega skilgreint sem túndra, ekki það að það hafi verið á túndrubeltinu heldur einfaldlega vegna ástandsins á landinu. Það var og er enn skilgreint hnattrænt á barrskógarbeltinu og verður líklega í laufskógabeltinu ef fram fer sem horfir. Landnemar gengu á landsins gersemar. Aðstæður breyttust og hefur það haft áhrif á þjóðina og aukið á harða lífsbaráttu. Ágangur mannsins í tímans rás gekk mjög á landsins gæði. Upp úr þarsíðustu alda mót- um,1900, var landið orðið gróður- snautt og auðnir sanda og hásléttna voru einkenni Íslands, ásamt jöklum. Átak var hafið til að binda þessi auðu svæði þrautseigum gróðri svo landið fyki ekki út á haf. Nokkru síðar hófst yfirgrips- mikil aðgerð um land allt við að ræsa fram votlendi með það fyrir augum að stækka ræktarland og haga (beitiland). Meiri framleiðni gróðurs, sem nýtist í fóður, er á framræstu landi en í mýrum. Aðferðir til að hefta sandfok Í áranna rás hefur gengið vel að finna aðferðir til að hefta sandfok og binda land en verkefnin eru enn stór. Ein aðferð er að nýta hávaxnari gróður en grös til bindingar og eru ýmsar tegundir hentugar, t.d. tré. Gróður þarf vatn til uppbyggingar. Þar sem tóra nægjusamar og þrautseigar plöntur er væntanlega vottur af vatni. Regnvatn drýpur ekki eins hratt í gegnum jarðveginn þar sem plöntur nýta sér það og því má segja að vatnið staldri lengur við. (Líkt og með peningahagkerfið, því meira sem peningar nýtast í heimabyggð, því blómlegri er byggðin.) Að nota skógrækt til landbóta bindur ekki bara jarðveg heldur býr skógurinn til skjól fyrir landsvæðið í kring. Þetta felur í sér ótalmarga kosti. Tré, eins og annar gróður, nýta fyrst og fremst vatn og loft til uppbyggingar. Því umfangsmeiri og stærri sem plantan sækist eftir að vera, því meira vatn þarf hún til að binda kolefni úr loftinu. Þar sem mörg tré koma saman er mikið vatn á ferðinni. Á sumrin nýtist vatnið uppvexti trjáa og dýra. Að vetri safnast snjór fyrir í skóginum og bráðnar svo hægt fram eftir vori. Þannig nýtist vætan lífríkinu betur en ef snjórinn bráðnaði allur hratt í fyrstu vorhlýindunum eins og gjarnan gerist á gróðursnauðu landi. Stærstu tré hátt til fjalla Stærstu tré jarðar (m.a. mammúttré (Sequoia)) er að finna hátt uppi í fjöllum þar sem mikill raki er í loftinu, eins konar háfjallaregnskógur. Regn er ferskvatn; flyst í formi skýja frá heitu lofti úr sjónum í suðri og ummyndast í dögg eða úrkomu þegar kólnar eða þegar norðar dregur. Mikilvægt er að ferskvatn staldri sem lengst við á landi frekar en að renna hindranalaust í sjóinn. Selta sjávarins er grundvöllur að jafnvægi loftslags í hnattrænum skilningi. Ef gróðurs nyti ekki við myndi regnvatnið skolast eftir fjallshlíðunum, á hraðri leið sinni til sjávar en síður ofan í grunnvatnið. Allt gróið land hægir á streymi ferskvatns til sjávar en votlendi stöðvar það tíma-bundið. Vatn er í grunninn samsett úr vetni og súrefni. Þegar vatn staðnar súrnar jarðvegur. Í votlendi vex lágvaxinn og sérhæfður gróður. Ef hraðað er á rennsli vatns um votlendi (landið ræst fram) þornar landið smám saman og aðstæður fyrir annan gróður batna, þar á meðal gjöful grös og tré. Gróið land besta nýtingin Land, sem er gróðri klætt, er besta nýting lands fyrir líf. Því meiri gróður, því meira annað líf. Líf, eins og við þekkjum það, byggist á vatni. Ef Ísland væri klætt gróðri frá fjöru til fjalla tæki vatnið lengri tíma að ferðast til sjávar en nú er. Ef Ísland væri gróðri klætt væri minna um votlendi og enn minna um súrar mýrar. Með hávaxnari gróðri hægist enn frekar á hraða vatnsins til sjávar. Ávinningurinn er endalaus: Jafnara ferli vatns frá fjöllum til fjara eykur gróður, bindir kolefni, bætir beitarskilyrði, jafnar rennsli í ám þrátt fyrir vatnsaukningu og það vatn sem loks rennur til sjávar er hlaðið náttúrlegum næringarefnum fyrir lífríki sjávar. Mýrar væru áfram til, en óþarfi væri að ræsa þær fram því gnægð væri af öðru gjöfulla landi. En Ísland er ekki klætt gróðri Hér hefur nokkuð verið alhæft og hlutir einfaldaðir í því skyni að benda á skynsam- legar áherslur í landgræðslu og skógrækt. Nauðsynlegt er að líta á votlendismálin frá víðu sjónarhorni. Ekki má gleyma skógrækt í því samhengi. Skógrækt er vænlegur valkostur á framræstu landi og þar sem ekki hentar eða vilji er fyrir að fylla í skurði og bleyta í landi á ný. Til lengri tíma er skógrækt ódýr og arðvænleg leið til að ná fram bindingu í framræstu landi. Beita þarf af skynsemi þeim aðferðum sem tiltækar eru, hvort sem það er endurheimt votlendis, landgræðsla eða skógrækt. 30.janúar 2018 Hlynur Gauti Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landssamtaka skógareigenda. Að nota skógrækt til landbóta bindur ekki bara jarðveg heldur býr skógurinn til skjól fyrir landsvæðið í kring. Hlynur Gauti Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landssamtaka skógareigenda. Fé í vetrarskógi að Víðivöllum ytri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.