Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 48

Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018 Í Kerlingardal eru hefðbundin bústörf á jörðinni. Ábúendurnir Karl Pálmason og Victoria Reinholdsdóttir reka auk þess lítið sambýli fyrir fatlaða og hafa gert frá 1997, sem skapar þrjú til fjögur störf. Victoria er grunnskólakennari við Víkurskóla. Býli: Kerlingardalur. Staðsett í sveit: Mýrdalshreppi. Ábúendur: Karl Pálmason og Victoria Reinholdsdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Karl, Victoria, Ásrún, Andrea, Eyjólfur, Karl Anders, Olof Jóhann og hundurinn Lappi. Gerð bús? Blandaður búrekstur ásamt rekstri á litlu sambýli fyrir fatlaða. Fjöldi búfjár og tegundir? 380 kindur, 80 holdanautgripir og 14 aliendur. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Hefðbundin bústörf eftir árstíðum. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Vorið, burðurinn og smölun þegar vel gengur. Leiðinlegust er girðingarvinna í vondu veðri. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Svipaður búskapur ásamt ferðaþjónustu. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Þurfa að bretta upp ermar á flestum sviðum. Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Vonandi höndla menn að efla hann og þróa. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Geta verið á mörgum sviðum en þarfnast meiri eftirfylgni. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, smjör, ostur, egg, tyttu- berjasulta og tómatssósa. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Kindasteik og nautasteik. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Sauðburður í öskufalli í Grímsvatnagosi. Lambahryggvöðvi og kjúklingabaunaeftirréttir Fólk er kannski ekki vant því að borða eftirrétti með kjúklingabaunum í. En það er í raun hægt að gera ýmislegt með kjúklingabaunum, eins og Bjarni Gunnar sýnir hér fram á. Vegan-marengs › Safi úr einni dós af kjúklingabaunum › 1/4 tsk. vínsteinslyftiduft (creme of tartar) eða smá sítrónusafi › Smá salt › 3/4 bolli flórsykur eða sykur Gott að vera með: Einn stór sprautupoki og 1 stórstjörnu túða. Setjið safann af kjúklingabaunum beint í skálina á hrærivél með písk. Það ætti að vera um 3/4 bolli vökvi. Geymið baunirnar til annarrar notkunar. Bætið vínsteinslyftidufti við (eða smá sítrónusafa) og klípu af salti og þeytið á miðlungshraða þar til þetta er orðið mjög loftkennt. Þeytið áfram, bætið svo sykri, einni matskeið í einu, og haldið síðan áfram að þeyta þar til blandan er orðin eins stíf og glansandi marengs – í um fjórar mínútur. Setjið blönduna yfir í stóran sprautupoka sem er með stóra stjörnutúðu. Sprautið toppa með um tveggja sentimetra millibili á smjörpappírinn. Bakið þar til marengsinn er harður og ekki lengur glansandi – í um það bil tvær klukkustundir. Setjið efstu ofnplötuna neðst og neðstu plötuna efst. Slökkvið á ofninum og látið marengsinn sitja í honum lokuðum eftir bakstur þar til hann þornar í gegn, í um það bil eina klukkustund (marengs mun haldast góður í loftþéttu íláti í allt að 3 daga). Hollara Snickers-stykki Þetta sælgæti er hollara en það sem gerist og gengur, gert með hollari sætuefnum eins og hunangi eða pálmasykri og sætum döðlum. › 2 tsk. kókosolía › 2 bollar döðlur › 1/2 bolli (50 g) kakóduft › 1 bolli (90 g) kókosmjöl › Smá sætuefni, kókospálmasykur eða hunang › 400 g dós sigtaðar kjúklingabaunir › 1/3 bolli (95 g) hreint hnetusmjör › 2 tsk, vanilluduft eða fræ af vanillustöng › 1 1/2 bolli (225 g) ristaðar hnetur, má nota saltaðar jarðhnetur › 40 g ósaltað smjör › 200 g dökkt súkkulaði, hakkað 1. Smyrjið 20 sentimetra breiða pönnu með smjörpappír á. Fyrir botninn: bræðið 1 tsk af kókosolíu í litlum potti við lágan hita. Setjið döðlurnar saman við og hrærið til að hita þær í gegn. Flytjið yfir í matvinnsluvél með kakói, þurrkuðum kókos og einni matskeið af hunangi. Vinnið saman þar til allt er vel blandað saman. Dreifið yfir bakkann og þjappið niður. Kælið fyrir næsta lag. Geymið helming fyrir næsta lag. 2. Bætið hnetusmjöri við afganginn af grunninum, ásamt kjúklingabaunum og vanillu og vinnið þar til grunnurinn er þykkur og með sléttri áferð. Dreifið yfir döðlugrunninn og jafnið yfirborðið með skeið. Kælið í klukkustund. 3. Til að búa til hnetukaramellu: Setjið hnetur, smjör og 2 matskeiðar af hollu sætuefni eins og hunangi eða pálmasykri í pott yfir lágan hita og hrærið þar til þetta bráðnar saman. Kælið örlítið og dreifið síðan yfir hnetusmjörfyllinguna, pressið niður til að búa til jafnt lag. Setjið í frysti í eina klukkustund til að grunnurinn harðni. 4. Bræðið súkkulaði í skál sem er sett yfir vatnsbað (ekki láta skálina snerta vatnið). Kælið örlítið. Hellið síðan yfir hnetukaramelluna og sléttið með sleif. Kælið í eina klukkustund, eða þar til súkkulaðið er hart. Skerið þá í lengjur og framreiðið. Lambahryggvöðvi kryddaður með lauk, hvítlauk og suðrænum kryddum › 2 lambahryggvöðvar › 1 saxaður laukur › 1 rif saxaður hvítlaukur › 1 biti saxað engifer › ½ ferskur chilipipar, kjarnhreinsaður › 50 g púðursykur › 2 msk ólívuolía › 2-3 msk hvítvínsedik › 100 ml tómatsósa › 100 ml hrein jógúrt › 2 msk mangó-chutney › ½ tsk negull, malaður › ½ tsk cumin, malað › salt og pipar eftir smekk Þegar þetta lamb er sett í ofninn fyllist eldhúsið af suður-afrískri kryddlykt sem sendir mann hálfa leið til Afríku. Aðferð Öllu er blandað saman og smurt yfir lambahryggvöðvann sem búið er að krydda með salti, pipar, cumin og negul. Ofnbakað við 220 gráður í 10 mínútur og svo lækkað niður í 100 gráður í um 10–15 mínútur, eða þar til kjarnhiti nær 62 gráðum. Framreiðið með ristuðu rótargrænmeti og sýrðum rjóma, með ögn af mango-chutney sósu eða gamaldags mömmusósu og kartöflum. Bjarni Gunnar Kristinsson Matreiðslumeistari MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Kerlingardalur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.