Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 18

Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018 Liðið ár og starfið fram undan hjá Bændasamtökum Íslands: Fjölbreytt verkefni í þágu bænda Bændasamtök Íslands eru heildarsamtök íslenskra bænda. Þau eru málsvari sinna félagsmanna og vinna að framförum og hagsæld í landbúnaði. Þunginn í starfi Bændasamtaka Íslands er fjölbreytt hagsmunabarátta fyrir land búnaðinn, allt frá því að kynna störf bænda og afurðir þeirra með marg víslegum hætti og til þess að gera samninga við stjórnvöld um stuðning við landbúnað á breiðum grunni. Aðild að samtökunum geta átt einstaklingar og félög einstaklinga og lögaðila sem standa að búrekstri. Aukaaðild er möguleg fyrir einstaklinga sem styðja við markmið samtakanna. Í árslok 2017 voru félagsmenn samkvæmt félagatali rétt um 3.400 talsins. Á vef Bændasamtakanna, bondi.is, er hægt að nálgast nánari upplýsingar um starfsemina og skrá sig í samtökin. 27 stöðugildi Hjá Bændasamtökunum starfa um þrjátíu manns í 27 stöðugildum. Meginstarfsemi samtakanna er í Bændahöllinni en þau eru einnig með starfsstöð á Akureyri, auk þess sem nokkrir starfsmenn hafa aðsetur annars staðar. Þá eiga og reka samtökin Nautastöðina á Hesti og Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins sem rekur 13 starfsstöðvar víðs vegar um land. Hótel Saga ehf. og fasteignafélagið Bændahöllin ehf. eru í eigu Bændasamtakanna. Samtökin eiga hlut í einangrunarstöð fyrir holdanaut á Stóra-Ármóti ásamt hlut í Landsmóti ehf. Sindri Sigurgeirsson er formaður Bændasamtakanna og Sigurður Eyþórsson er framkvæmdastjóri. Formaður BÍ er talsmaður samtakanna og kemur fram fyrir þeirra hönd. Búnaðarþing fram undan Búnaðarþing er æðsta stofnun BÍ en þar sitja fulltrúar aðildarfélaganna og móta stefnu samtakanna. Á síðasta ári var í fyrsta skipti unnið eftir nýju skipulagi þar sem Búnaðarþing er haldið á tveggja ára fresti og ársfundur þar á milli. Búnaðarþing verður sett í Súlnasal Hótel Sögu mánudaginn 5. mars nk. að morgni til. Athöfnin er öllum opin en skráning er á vefsíðu samtakanna, bondi.is. Þingið sjálft stendur yfir í tvo daga. Hagsmunagæsla fyrir bændur Stærsti einstaki þáttur í starfi BÍ er að gæta hagsmuna bænda. Bændasamtökin veita umsagnir um fjölda lagafrumvarpa, þingsályktunartillagna, skýrslna og reglugerða á ári hverju. Auk þess fylgja þeim margs konar fundir í ráðuneytum og með þingnefndum til að fara yfir umsagnir eða gera grein fyrir hagsmunum bænda við afgreiðslu margvíslegra mála. Samvinna við búgreinafélög er mikil enda lykilatriði til þess að nýta krafta bænda sem best. Þau mál sem hafa verið hvað mest áberandi síðustu misseri tengjast búvörusamningum, rekstrarvanda í sauðfjárræktinni, minnkandi áhrifum tollverndar og hráakjötsmálinu svokallaða. Þá eru loftslagsmál og aðgerðir til þess að sporna við aukningu gróðurhúsalofttegunda mál málanna í dag. Búvörusamningar Framkvæmd búvörusamninga er ekki lengur á hendi BÍ, en heilmikil vinna er tengd því að fylgjast með henni í því skyni að gæta hagsmuna félagsmanna. Sérfræðingar frá BÍ tóku þátt í vinnu við endurskoðun reglugerða sem fylgja samningunum, m.a. til að skoða og endurbæta framkvæmdina þegar fyrsta gildisár þeirra var að mestu liðið. Fram undan er þátttaka í nýjum samráðshópi um endurskoðun búvörusamninga sem landbúnaðarráðherra skipaði á dögunum. Rekstrarvandi í sauðfjárræktinni Mjög mikill tími hefur farið í vinnu vegna vandans sem uppi er í sauðfjárræktinni. Fundir voru með þáverandi ráðherra og stjórnvöldum allt frá lokum mars og út árið. Allt var reynt til að ná sátt á milli bænda og stjórnvalda um aðgerðir til lausnar. Það gekk ekki vel, þar sem óyfirstíganlegur ágreiningur reyndist milli þáverandi ráðherra og bænda í málinu. Á endanum lagði ráðherra landbúnaðarmála fram tillögur í eigin nafni sem samtök bænda stóðu ekki að. Í kjölfar þess sprakk þáverandi ríkisstjórn, vegna annars máls, en það þýddi hins vegar að engin hreyfing fékkst á málið fyrr en að loknum kosningum og myndun nýrrar ríkisstjórnar. Í stjórnarsáttmála hennar er kveðið á um að leysa eigi vanda sauðfjárbænda til skemmri og lengri tíma. Í fjáraukalögum 2017 sem samþykkt voru undir lok ársins var svo samþykkt að veita 665 m. kr. til að lausnar skammtímavandans. Eftir stendur að lausnir til þess að vinna á langtímavanda sauðfjárræktarinnar eru ekki komnar til framkvæmda. Tollverndin Bændasamtök Íslands leggja áherslu á að tollvernd verði áfram beitt til að jafna samkeppnisstöðu íslenskrar framleiðslu gagnvart innfluttri. Nýlegir samningar við ESB um aukinn tollfrjálsan aðgang búvara að íslenskum markaði vekja ugg meðal bænda. Bændasamtökin hafa gert kröfu um að tollvernd verði viðhaldið og magntollum beitt í ríkari mæli. Að mati samtakanna hallar verulega á samkeppnisstöðu íslenskra bænda um þessar mundir gagnvart innflutningi. Hráakjötsmálið EFTA-dómstóllinn kvað upp þann dóm 14. nóvember sl. að sú tilhögun að skylt sé að frysta hrátt kjöt í að minnsta kosti 30 daga áður en það er flutt hingað, standist ekki EES-samninginn. Þetta gildir líka um bann við innflutningi á ógerilsneyddum eggjum og ógerilsneyddri mjólk. Ekki var þó gerð athugasemd við að bannað sé að markaðsfæra ógerilsneydda mjólk, enda er innlendum framleiðendum það óheimilt. Í stuttu máli telur dómstóllinn að ekki megi setja nein sérstök skilyrði fyrir innflutning þessara vara af EES-svæðinu því eftirlit í upprunalandi eigi að gilda. Þessu hafa forsvarsmenn Bændasamtakanna mótmælt og talið að áhættan sem fylgir innflutningi á hráu kjöti og ferskum eggjum sé óásættanleg. Fyrir liggur að framundan er mikil barátta á vegum BÍ við að verja sem best heilsu manna og dýra við þessar breyttu kringumstæður. Henni er hvergi nærri lokið. RML á fullu stími Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf. er að fullu í eigu BÍ. Félagið lauk stefnumótunarvinnu á síðasta ári og nú er unnið að innleiðingu þeirra verkefna sem í henni felast sem mun halda áfram allt þetta ár. Tekist hefur að reka RML með afgangi frá árinu 2015 og gera eiginfjárstöðu þess jákvæða. RML verður áfram á næstu árum að aðlagast nýjum veruleika í ljósi breytinga í kjölfar brottfalls tekna af búnaðargjaldi og það verður veruleg áskorun sem fyrirtækið ætlar sér að mæta að sögn stjórnenda. Upplýsingatæknin mikilvæg Hjá Bændasamtökunum er starfandi upplýsingatæknideild sem sinnir hugbúnaðarþróun, rekstri tölvukerfa sem bændur nota í sínum daglegu störfum ásamt notendaþjónustu. Alls starfa 10 manns í deildinni auk verktaka. Þjónustufulltrúar eru þrír, einn kerfisstjóri, fimm aðilar sem koma að hugbúnaðargerð og gagnagrunnssmíði og einn kynbótasérfræðingur. Viðfangsefni deildarinnar eru fjölbreytt, allt frá þróun og rekstri hugbúnaðar til ýmiss konar þjónustu, s.s. við starfsfólk BÍ og Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og bændur sjálfa. Almannatengsl og útgáfustörf Á útgáfu- og kynningarsviði BÍ starfa fimm manns auk verktaka að fjölbreyttum verkefnum. Bændablaðið er gefið út 24 sinnum á ári og Tímarit Bændablaðsins kemur út tvisvar í ár. Ýmis verkefni koma inn á borð sviðsins, s.s. almannatengsl og upplýsingagjöf, rekstur vefsíðna, skólaverkefni og þátttaka í viðburðum og sýningum. Vinnuverndarverkefnið Búum vel er rekið innan sviðsins og nú nýlega var hleypt af stokkunum verkefninu Hleðsla í hlaði sem gengur út á að fjölga rafhleðslustöðvum til sveita. Alþjóðlegt samstarf Bændasamtök Íslands taka virkan þátt í samstarfi norrænna bændasamtaka, NBC. Ísland fer með formennsku í samstarfinu 2017–2019. Fundir formanna bændasamtakanna eru haldnir árlega og verður hann í sumar haldinn í Danmörku. Enn fremur starfa margir starfs- og vinnuhópar, s.s. á sviði eignarréttar, dýraheilbrigðis, uppbyggingar félagsstarfsins og fleira. Þannig hefur BÍ aðgang að öflugu tengslaneti sérfræðinga á ýmsum sviðum. Á síðastliðnu ári voru Embluverðlaunin, sem eru norræn matarverðlaun, afhent í fyrsta skipti en það er samstarfsverkefni NBC styrkt af norræna ráðherraráðinu. Embluverðlaunin verða næst afhent á Íslandi árið 2019. BÍ er einnig aðili að alþjóðasamtökum bænda WFO. Árið 2018 verður ár breytinga Árið 2018 verður áfram ár breytinga hjá BÍ eins og síðustu ár. Mótun starfsemi BÍ heldur áfram. Rekstur samtakanna byggist nú á þríþættum tekjum, þ.e. félagsgjöldum, eigin tekjum eins og af sölu forrita og eignatekjum. Allir þessir þættir geta sveiflast á milli ára. Enginn mun greiða til samtakanna nema að taka um það meðvitaða ákvörðun og það þýðir líka að þau verða að greina á milli þess í allri sinni starfsemi hvort verið er að þjónusta félagsmenn eða aðra. Um leið þarf að viðhalda vilja félagsmanna til að greiða til samtakanna. Munurinn hefur og mun áfram koma fram í mismunandi verði fyrir þjónustuna, svo sem á skýrsluhaldsforritum samtakanna, eða hvort þjónustan er í boði yfirleitt, til dæmis varðandi orlofshús, starfsmenntastyrki, styrki úr velferðarsjóði, lögfræðiráðgjöf og annað sambærilegt. Forsvarsmenn BÍ stefna að sjálfsögðu að því að sem flestir sem starfa í landbúnaði verði félagsmenn. Það verður viðvarandi áskorun og þeir sem kjósa að vera með verða að finna greinilega mun samanborið við þá sem kjósa að vera það ekki. Samtökin verða áfram að vera sterkur og öflugur málsvari íslensks landbúnaðar. /TB, SE, EB, ÞÞÞ Í Bændahöllinni er meðal annars starfsfólk á skrifstofu BÍ sem sinnir hagsmunabaráttu bænda, annast fjárreiður, Mynd / TB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.