Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 31

Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018 Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir: Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir eftir umsóknum um styrki til stuðnings við nýsköpun, vöruþróun kynningar- og markaðsstarf til stuðnings íslenskri sauðfjárrækt. Sjá nánari upplýsingar inn á heimasíðu sjóðsins www.fl.is, undir Markaðssjóður/verklagsreglur. Styrkþegar geta verið einstaklingar, hópar, félög, samtök, rannsóknarstofnanir, háskólar eða fyrirtæki. Styrkhæf eru þau verkefni sem talin eru styrkja íslenska sauðfjárrækt og falla undir það að teljast nýsköpun, vöruþróun, kynningar- eða markaðsstarf. Umsókn skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar: a) Listi yfir þá sem eiga aðild að verkefninu. b) Yfirlit um tilgang og markmið verkefnis. c) Tímaáætlun verkefnisins og upplýsingar um helstu áfanga þess. d) Fjárhagsáætlun verkefnisins í heild. e) Upplýsingar um hvernig niðurstöður verkefnisins verða kynntar eða nýttar. Umsóknafrestur er til 1. apríl n.k. Reglur um styrkina og umsóknareyðublöð má finna á www.fl.is/ markaðssjóður. Aðeins er tekið við umsóknum á eyðublöðunum sem þar er að finna. Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyri 311 Borgarnesi, merktum: Markaðssjóður. Nánari upplýsingar veitir Þórhildur Þorsteinsdóttir, framkvæmda- stjóri Framleiðnisjóðs landbúnaðarins hjá thorhildur@fl.is. Framleiðnisjóður landbúnaðarins Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnesi Sími 430-4300 Bylting í hreinlæti! Hafðu samband og pantaðu kynningu fyrir þitt fyrirtæki Sími 480-0000 sala@aflvelar.is www.i teamglobal.com Auðveldari og betri þrif, sparar tíma og léttir lífið Mótorar og varahlutir á lager Hröð og góð þjónusta Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON á ÍSLANDI MHG VERSLUN EHF 544-4656 - MHG.IS Samstarfssamningur milli Byggðastofnunar og atvinnuþróunarfélaga: Vilji til að efla byggðamál og tryggja búsetu Nýr samstarfssamningur milli Byggðastofnunar og átta atvinnuþróunarfélaga um land allt hefur verið undirritaður. Hann gildir til næstu fimm ára. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, var viðstaddur undirritunina og sagði hann það eindreginn vilja ríkisstjórnarinnar að efla byggðamál og tryggja búsetu vítt og breitt um landið. Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins. Samningarnir byggjast á samtali Byggðastofnunar og félaganna á síðastliðnu starfsári. Í nýjum samningum er leitast við að taka mið af breyttu starfsumhverfi félaganna en á liðnum árum hefur hlutverk atvinnuráðgjafarinnar breyst frá því að veita fyrst og fremst einyrkjum og litlum fyrirtækjum rekstrarráðgjöf í það að þjónusta einyrkja, stór og lítil fyrirtæki og sveitarfélög. Félögin hafa í vaxandi mæli tekið að sér að leiða saman aðila í fjölbreytileg verkefni. Það form sem atvinnuþróunarfélögin starfa í þarf að vera lifandi og taka breytingum í takt við þarfir hvers tíma. Verðmæt þekking í atvinnuráðgjöf Sigurður Ingi sagði þegar sjást í fjárlögum ársins aukin framlög til samgöngumála, heilsugæslustöðva á landsbyggðinni og til menntamála. Fram undan væri gerð fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar sem yrði lögð fram í mars og þar muni einnig sjást enn betur áform ríkisstjórnarinnar um þessi mál sem önnur. Þá sagði ráðherra að meðal verkefna sem tengjast sveitarstjórnar- og byggðamálum með beinum hætti í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar væri að skilgreina hlutverk landshlutasamtaka, styrkja sóknaráætlanir, nýta námslánakerfið og önnur kerfi sem hvata til að setjast að í dreifðum byggðum, ljúka ljósleiðaravæðingu og að innanlandsflug yrði hagkvæmari kostur fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Sagði hann vert að þakka atvinnuþróunarfélögunum fyrir aðkomu þeirra að þeim þætti. Ráðherra sagði atvinnuráðgjöf búa yfir verðmætri þekkingu á nærumhverfinu og myndi tengslanet um landið allt. Einnig sagði hann nú unnið að gerð byggðaáætlunar og væri sérstök áskorun að samþætta byggðamál við aðra málaflokka í öðrum. Skerpt á viðmiðum Í ávarpi Aðalsteins Þorsteinssonar, forstjóra Byggðastofnunar, við athöfnina kom fram að sjálfstæði félaganna væri mikilvægt og að þau lytu ekki boðvaldi Byggðastofnunar eða ríkisins eða einstakra sveitarfélaga. Á hinn bóginn hljóti ríkisvaldið að gera kröfur um að tilteknum reglum og lágmarksviðmiðum sé fylgt um ráðstöfun þess fjár sem það lætur af hendi rakna til verkefna í byggðarlögunum. Í nýju samningunum er því skerpt á viðmiðum um árlega markmiðssetningu og mat á árangri af starfinu auk þess sem fjallað er um útvistun á starfi atvinnuráðgjafarinnar og fleira mætti nefna. /MÞÞ Frá undirskriftinni með fulltrúum Byggðastofnunar og átta atvinnuþróunarfélaga og Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Fulltrúar Byggðastofnunar og atvinnuþróunarfélaganna skrifa undir nýjan samning. Upplýsingamiðstöðin á Akureyri komin í Vakann Upplýsingamiðstöðin á Akureyri er nýjasti þátttakandinn í Vakanum, en upplýsingamiðstöðvar landshlutanna hafa verið að bætast í hóp Vakafyrirtækja, hver af annarri. Upplýsingamiðstöðin er landshlutamiðstöð í upplýsingaveitu ferðamanna á Norðurlandi eystra og gegnir sem slík lykilhlutverki í upplýsingamiðlun til erlendra og innlendra ferðamanna á svæðinu. Gæði, vandvirkni og samræming þjónustu og fagleg upplýsingagjöf eykur líkur á ánægju gesta og annarra þeirra sem leita upplýsinga, aðstoðar og annarrar þjónustu hjá miðstöðinni. Straumur ferðamanna um upplýsingamiðstöðina eykst stöðugt enda er hún í alfaraleið í Menningarhúsinu Hofi. „Það er okkur mikið kappsmál í öllum okkar störfum að veita sem besta þjónustu og viðhafa hlutleysi gagnvart öllum hagsmunaaðilum í upplýsingagjöf. Í amstri dagsins getur verið erfitt að koma umbótavinnu við en Vakinn gefur kærkomið tækifæri til þess,“ segir Hulda Jónsdóttir, umsjónarmaður Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna á Akureyri, í spjalli á vef Ferðamálastofu. „Innleiðing Vakans gerir allt okkar starf mun faglegra og skilvirkara.“ Akureyrarstofa annast daglegan rekstur Upplýsingamistöðvarinnar en hún er kostuð af Akureyrarbæ í samstarfi við sveitarfélögin í Eyjafirði með stuðningi Ferðamálastofu. Upplýsingamiðstöðin í Hofi er opin daglega frá byrjun maí til lok september og virka daga frá október til apríl. /MÞÞ Hulda Jónsdóttir stolt af viður- kenningu Vakans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.