Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017
Haldið verður upp á 100 ára
afmæli Kötlugossins 1918
Í Vík í Mýrdal er í undirbúningi
að halda upp á 100 ára afmæli
Kötlugossins á nýju ári, en Katla
gaus síðast 12. október 1918. Gosið
var með stærstu Kötlugosum frá
því að land byggðist.
Haldið verður upp á tímamótin
12. október í Vík 2018 samhliða
Regnbogahátíð Mýrdælinga
sem er árleg bæjarhátíð. „Já,
við ætlum að minnast þessara
tímamóta með veglegum hætti
með fræðasamfélaginu og er
undirbúningur að fara af stað.
Við gerum ráð fyrir tveggja daga
dagskrá þar sem við munum kalla á
helstu sérfræðinga landsins á sviði
jarð- og náttúruvísinda til að fræða
okkur um gosið 1918 og afleiðingar
þess. Auk þess mun verða fjallað um
söguna og þau áhrif sem stórgos á
Suðurlandi hafa haft á mannlífið á
svæðinu,“ segir Ásgeir Magnússon,
sveitarstjóri Mýrdalshrepps, sem á
sæti í undirbúningsnefnd afmælisins.
Ásgeir leggur áherslu á að hér
verði um að ræða bæði fræðandi og
skemmtileg erindi sem eigi erindi
við sem flesta. En skynjar Ásgeir
að íbúar í Mýrdal séu mikið að
hugsa um Kötlu og afleiðingar slíks
goss í dag? „Nei, það finn ég ekki
á íbúunum, fólk er ekki óttaslegið,
það er ekki mín tilfinning.“ /MHH
FRÉTTIR
Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is
BÍLAR
Kæli- & frystibúnaður
frá Carrier í miklu úrvali.
Fyrir allar gerðir af sendi- og flutningabílum.
HURÐIR
Hentar afar vel fyrirtækjum
í landbúnaði, sjávarútvegi og iðnaði.
fyrir kæla
KÆLI & FRYSTI
BÚNAÐUR
Hafðu samband í síma 587 1300
og við sérsníðum lausn sem hentar þér!
Hótel Rangá sýnir virðingarvert fordæmi:
Starfsfólk gefur björgunarsveitum
peninga í stað þess að þiggja þjórfé
Starfsfólk á Hótel Rangá gáfu
björgunarsveitunum á Hellu og
Hvolsvelli tvær milljónir króna
sem það hefði annars fengið í eigin
vasa í þjórfé frá gestum hótelsins.
„Við ákváðum það á Hótel Rangá
fyrir tveimur árum að þiggja ekki
þjórfé. Við segjum gestunum hins
vegar að við vitum að mörgum þyki
ánægjulegt að leggja fram einhverja
fjármuni sem virðingarvott fyrir
góða þjónustu. Við bjóðum þeim
að leggja fram peninga sem renna
til björgunarsveita á svæðinu.
Þetta hefur vakið afskaplega
jákvæð viðbrögð meðal gesta
okkar enda vorum við að gefa
björgunarsveitunum á svæðinu
tvær milljónir króna,“ segir Friðrik
Pálsson hótelstjóri, aðspurður hvað
yrði um það þjórfé sem safnaðist
á hótelinu. Með stórauknum fjölda
ferðamanna til Íslands hefur það
færst í vöxt að þjórfé sé greitt.
„Já, víða um heim eru menn að
reyna að hverfa frá þessu kerfi, meira
að segja Bandaríkjamenn, þar sem
laun þjóna eru jafnvel aðeins 250 til
400 krónur á tímann og þeir þurfa
svo að vera eins og rukkarar fyrir
hönd veitingahússeigandans að fá
upp í launin sín,“ bætir Friðrik við.
Hvor björgunarsveitin fékk 1 milljón
króna, þ.e. Flugbjörgunarsveitin
á Hellu og Björgunarsveitin
Dagrenning á Hvolsvelli. /MHH
Það voru þær Harpa Sif Þorsteinsdóttir, gjaldkeri Björgunarsveitarinnar Dagrenningar á Hvolsvelli, og Margrét Ýrr
Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Fimm þúsund tjón voru metin eftir
Suðurlandsskjálftann 2008
Þann 29. maí í vor verða 10 ár liðin
frá Suðurlandsskjálftanum sem
varð 29. maí 2008 en hann var af
stærðinni 6,3. Upptök skjálftans
voru í Ölfusi, milli Hveragerðis
og Selfoss.
Mikið tjón varð á fasteignum og
lausafé á svæðinu og einnig varð
töluvert tjón á veitukerfum Árborgar
og Hveragerðisbæjar. Alls voru
metin um 5.000 tjón vegna skjálftans
á vegum Viðlagatryggingar Íslands.
Heildartjón, að meðtöldum
matskostnaði, nam um 10 milljörðum
króna og samsvarar það rúmum 15
milljörðum króna á verðlagi dagsins
í dag. Jarðskjálftinn er stærsti
tjónsatburður Viðlagatryggingar frá
stofnun hennar árið 1975 í kjölfar
eldgossins í Vestmannaeyjum 1973
og snjóflóðsins í Neskaupstað 1974.
Enn berast tilkynningar um tjón
„Þótt brátt séu liðin 10 ár frá
jarðskjálftanum berast okkur enn
þá einstaka tilkynningar um tjón,
einkum vegna skemmda sem af
einhverjum ástæðum hafa ekki
verið sýnilegar eigendum. Dæmi
um slík tjón eru skemmdir á
fráveitulögnum undir gólfplötum
fasteigna. Frestur til að tilkynna
tjón sem ætla má að tjónþola
hafi verið kunnugt um er hins
vegar liðinn. Stofnunin tekur við
tilkynningum og lætur meta tjón
ef skilyrði um fresti og fyrningu
eru uppfyllt. Í árslok 2018 fyrnast
öll tjónamál vegna jarðskjálftans,“
segir Jón Örvar Bjarnason,
byggingarverkfræðingur hjá tjóna-
og áhættumati hjá Viðlagatryggingu
Íslands.
Fimmta hvert heimili án bruna-
og náttúruhamfaratrygginga
Jón Örvar segir mikilvægt að
eigendur fasteigna og innbúa hugi
vel að vátryggingarvernd gagnvart
nátt úru hamförum. Allar húseignir
á Íslandi eru vátryggðar gegn
nátt úruhamförum, þar sem um
lögboðna skyldutryggingu er að
ræða. Til að innbú sé vátryggt þarf
það hins vegar að vera brunatryggt
hjá vátryggingarfélagi (VÍS,
Sjóvá, TM eða Verði). Eigendur
innbúa snúa sér því til almennu
vátryggingarfélaganna vegna þess.
„Sérfræðingur í áhættumati
hjá okkur telur að um 70–80%
af heimilum á Íslandi séu með
brunatryggingu á innbúum og þar
með vátryggð hjá stofnuninni gegn
náttúruhamförum. Því má gera ráð
fyrir því að nærri fimmta hvert
heimili í landinu sé án bruna- og
náttúruhamfaratrygginga og geti
því ekki búist við að fá tjón sitt bætt
vegna slíkra atburða,“ segir Jón
Örvar. /MHH
Myndir / MHH
Mynd / MHH
Fálki með skotsár
Bændur á Hnjúki í Vatnsdal
handsömuðu fálka í liðinni viku.
Var hann settur í búr og í samráði
við Náttúrufræðistofnun fluttur
suður í Húsdýragarðinn.
Hann var skaddaður á væng en
dýralæknir sem annaðist hann sá
að um skotsár var að ræða. Fálkinn
reyndist fullorðinn kvenfugl sem
gefið var nafnið Ógn
Þetta kemur fram á Facebook-síðu
Lögreglunnar á Norðurlandi vestra.
Vakti lögregla athygli á því að fálkar
eru alfriðaðir samkvæmt lögum um
vernd, friðun og veiðar á villtum
fuglum og villtum spendýrum. Brot
geta varðað sektum eða fangelsi
allt að tveimur árum og sviptingu
skotvopna- og veiðileyfis. Virða
skal það refsingu til þyngingar ef um
sjaldgæfar eða fágætar fuglategundir
er að ræða. /MÞÞ
Mynd / Lögreglan á Norðurlandi vestra