Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018
Ungir umhverfissinnar eru félagasamtök og
vettvangur ungs fólks sem vill láta gott af sér
leiða í umhverfismálum. Félagið var stofnað
árið 2013 og telur rúmlega 640 meðlimi allt
í kringum landið.
Hlutverk félagsins er að vera málsvari ungs
fólks í umhverfismálum, hvetja til upplýstrar
umræðu og standa vörð um rétt komandi
kynslóða til jafns aðgangs að náttúruauðlindum.
Fjölbreytt málefnastarf
Pétur Halldórsson, líffræðingur og formaður
samtakanna, segir að hjá félaginu starfi
málefnanefndir um skólp og sorp, miðhálendið,
sjávarmengun, auðlindanýtingu, friðlýst svæði,
samgöngur, landgræðslu, matvælaframleiðslu,
vatnsvernd, loftslagsmál, fiskeldi og
alþjóðasamstarf.
„Undir félagið falla einnig tvær
landshlutanefndir, á Suðurlandi og Austurlandi,
sem vinna að svæðisbundnum málefnum.
Í gegnum slíkt málefnastarf verður til
sérfræðiþekking ungs fólks með mismunandi
reynslu og sýn á umhverfismál. Slík reynsla
og þekking er nauðsynleg til að félagið geti
tekið upplýsta afstöðu þegar kemur að því að
hafa áhrif á ákvarðanatöku og stefnumótun
stjórnvalda í skipulagsgerð og við mat á
umhverfisáhrifum framkvæmda.“
Fræðsla
„Eitt af helstu verkefnum samtakanna er
að stuðla að fræðslu og vitundarvakningu
ungmenna með framhaldsskólakynningum á
landsvísu.
Kynningarnar varpa ljósi á hvernig
umhverfismál snerta ungt fólk og hvernig það
sjálft getur haft áhrif á ákvarðanir stjórnvalda
og daglegt líf. Frá október 2016 hafa 25
framhaldsskólar af 30 verið heimsóttir.
Stefnt er að því að heimsækja hina
fimm fyrir lok vetrarins og í framhaldinu
að heimsækja alla framhaldsskóla landsins
árlega.
Kynningarnar eru því lausnamiðuð
fræðsla um umhverfismál, líkt og kallað
var eftir á X. umhverfisþingi umhverfis- og
auðlindaráðuneytisins 2017,“ segir Pétur.
Vitund ungmenna um skipulagsmál
Að sögn Péturs vinna samtökin að rannsókn
sem er styrkt af Skipulagsstofnun um vitund
ungmenna um skipulagsmál. „Rannsóknin
felst í söfnun gagna og greiningu á svörum
ungmenna á landsvísu um hversu meðvitað
ungt fólk er um rétt sinn til að hafa áhrif á
ákvarðanatöku stjórnar í skipulagsmálum.“
Alþjóðasamstarf
„Ungir umhverfissinnar eru m.a. í samvinnu
við hóp ungs fólks í Alaska sem kallast Arctic
Youth Ambassadors og er málsvari ungs fólks
þar varðandi samfélags- og umhverfismál.
Samvinnan er að hluta á vegum vinnuhóps
Norðurskautsráðsins um líffræðilegan
fjölbreytileika, Conservation of Arctic Flora
and Fauna, og hefur einnig hlotið styrk frá
bandaríska sendiráðinu á Íslandi.
Í kjölfar þessarar samvinnu kemur félagið
nú að undirbúningi samráðsvettvangs
ungmenna í umhverfis- og samfélagsmálum
á norðurslóðum,“ segir Pétur. /VH
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Fyrir skemmstu flutti þátturinn vísur þeirra félaga Sigurðar frá Brún og Höskuldar frá Vatnshorni.
Eftir Sigurð liggja nokkrar ljóðabækur, en
kveðskapur Höskuldar lifir helst og mest
í muna fólks. Lengi hefur mig grunað að
hjá afkomendum Höskuldar og Sólveigar
Bjarnadóttur frá Vatnshorni leyndist
sitthvað af kveðskap hans. Sigríður frú
á Kagaðarhóli í Svínavatnshreppi er ein
lifandi barna Höskuldar og Sólveigar. Því
gerði ég mér erindi til frænku minnar til
vísnasnapa. Þar kom ég ekki að tómum
kofunum. Handskrifaðar lausavísur auk
heilla rímnaflokka átti Sigríður eftir föður
sinn í ótal kistlum og kommóðum. Í þessum
þætti verður birt brot af aflanum. Fyrst birtist
lesendum „Úr rímum af Sigurði Jónssyni
frá Brún“. Mansöngshluti rímunnar heitir
„Skammdegis andvökur“.
I.
Hverjum fegin fagnar sprett,
fríða sveigir hána
þegar hún teygir tána létt
trausta spegilgljána.
Þreyta má ég móanölt,
mig þó ávallt fýsi
þetta háa, hýra tölt
heyra á bláum ísi.
Gripin hrynja hrein og snjöll,
hratt þau dynja á beðinn.
Klakabrynjan kliðar öll,
klungrin stynja freðin.
Hálsinn léttan hátt við brjóst,
höfuð sett í taumum,
ganglag mettað gleði og þjóst
gefst nú rétt í draumum.
Máninn þjórar, á því enn
úti slórir fagur.
Gáska órar grípa menn,
glaðnar stórum hagur.
Kannski bíður klár við stall
kvikur, fríður, alinn,
fljótur gríðar, fimur, snjall,
fáka prýði valin.
ll. hluti rímunnar. Ferðalög Sigga:
Feyskist víðir, fölna tún,
fjölgar hríðum stærri,
alltaf síðan Siggi Brún
sást að ríða nærri.
Lét hann skotta skjóttan lit,
skarta flott á vegum,
fór með hotti og hófaþyt,
hér um vottanlegum.
Kringum trippa- og fola fans,
fjörs með kippi létta
Snúður,Vippi og Snælda hans
snerust lyppið netta.
Oft var takið æst og þétt,
ef hann rak með fleirum,
þegar Vaka viðbragðslétt
var að blaka eyrum.
Hugann seiðir hæð og mór,
hátt hann reið með slögum.
Margar leiðir fann og fór
frammí heiðar drögum.
Hátt til fjalla frosts um nátt
fölur hallast máni.
Jökla skalla jafnt og þrátt
jagar mjallar gráni.
Um vindgnúinn fannafald
ferð hann snúa kunni,
við að búa upp tösku og tjald
talaði drjúgum munni.
Lék með ólgu í æðunum,
úfna kólgu í svipnum,
kuldabólgu í kvæðunum,
að klækja sólgna gripnum.
Oft er klökugt upp um fjöll,
óvís þök um nætur.
Veðra hrök og vatnaföll
velta um jökulrætur.
196
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
LÍF&STARF
Ungir umhverfissinnar:
Fræðsla og vitundarvakning
um umhverfismál
Hugmyndasamkeppni um nýtingu varmaorku á Suðurlandi
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
(SASS), Nýsköpunarmiðstöð Íslands
(NMÍ) og Orka náttúrunnar (ON) hafa
gert með sér samkomulag um að efna
til hugmyndasamkeppni um nýtingu
varmaorku á Suðurlandi á þessu ári.
Tilgangur samkeppninnar er að fá fram
hugmyndir um nýtingu varmaorku sem
víða finnst í formi jarðhita á Suðurlandi og
býður upp á fleiri tækifæri en nýtt eru í dag.
„Markmiðið er að nýta betur verðmætin sem
eru í orkunni, auka fjölbreytni í atvinnulífi
með umhverfismál að leiðarljósi og vinna
að nýsköpun í orkutengdri starfsemi,“ segir
Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri
SASS. Dómnefnd skipa Gunnar Þorgeirsson,
formaður SASS, Sigurður Þór Sigurðsson,
formaður Atorku (Samtök atvinnurekenda
á Suðurland), Berglind Rán Ólafsdóttir,
forstöðumaður fyrirtækjamarkaða ON,
Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands (NMÍ) og
Albert Albertsson, stjórnarformaður Íslenska
jarðvarmaklasans. Haraldur Hjaltason,
ráðgjafi hjá Artemis, hefur verið ráðinn
sem verkefnisstjóri og mun hann starfa með
dómnefndinni. Samkeppnin sjálf verður
auglýst þegar nær dregur. /MHH