Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 55

Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018 Sveitarstjórnarkosningar eru í vor. Þá verða margir kallaðir en fáir útvaldir. Ljóst er að þeir útvöldu hér vestra verða að huga að eftirtöldum þremur stórmálum Vestfirðinga sem eru hvarvetna í umræðu. Þau eru nátengd hvert öðru. Yfirgnæfandi meirihluti Vestfirðinga virðist sömu skoðunar í þessum miklu hagsmunamálum. Teljast það nokkur tíðindi út af fyrir sig. Nú verða menn að standa saman. Halda áfram að nýta landsins gæði en hafa náttúruna samt alltaf í hávegum. Ákalla alla sína góðu vini og verndardýrlinga til trausts og halds, með Jón forseta í fararbroddi. 1. Vestfirska rafmagnið Það var kraftaverk að rafvæða Vestfirði fyrir 60 árum. Og koma orkunni nánast á hvert byggt ból. Mikilvirkir, stórhuga og lagtækir menn voru þar að verki. Ekki er vitað til að nokkur Vestfirðingur né aðrir hafi beðið tjón á sálu sinni þrátt fyrir alla þá nauðsynlegu tréstaura sem stóðu undir rafmagnslínunum og standa enn. Hitt er annað að auðvitað vilja flestir góðir menn að rafstrengir séu í jörðu. Það ætti nú ekki að vera ofverkið okkar í dag miðað við fyrri afrek í dreifingu rafmagns. Vestfirðinga sárvantar öruggt og stöðugt rafmagn. Lái þeim hver sem vill. Þetta eilífa basl þeirra að halda rafmagninu inni er löngu orðinn brandari á landsvísu. En þeir eiga að framleiða sitt rafmagn sjálfir. Þeir eru ekkert of góðir til þess! Á Vestfjörðum er hægt að reisa og reka öruggustu vatnsvirkjanir landsins. Það hlýtur bara að vera þjóðhagslega hagkvæmt. Flestar ef ekki allar stórvirkjanir okkar eru staðsettar á sívirku eldgosabelti landsins. Sú staða getur því hæglega komið upp að Vestfirðir fái ekki eitt einasta kílóvatt eftir hundinum að sunnan, jafnvel langtímum saman. Á þetta hafa vísir menn margoft bent. Frumkvöðlar Hvalárvirkjunar eru ungir Vestfirðingar. Þeir hafa verið aldir upp við að bjarga sér sjálfir þegar í harðbakkann slær líkt og gilt hefur á Vestfjörðum frá upphafi byggðar. Hafa staðið í þessu basli á eigin forsendum og ekki látið deigan síga. Slíkt er alltaf traustvekjandi og mikils virði. Miklu veldur sá er upphafinu veldur. En fjármunir verða að koma annars staðar frá. 2. Fiskeldið „Fiskeldi á Vestfjörðum hefur virkað sem kraftaverkalyf á byggðarlög, sem heltekin voru af hrörnunarsjúkdómi. Sá sem hefur vaknað eldsnemma á Bíldudal, fundið driftina í mannlífinu á leið til vinnu, orkuna, hamarshöggin og baráttuna um lausu bílastæðin, skilur hvað fiskeldi hefur fært inn í vestfirskt samfélag, líf, vöxt og menningu.“ Svo skrifar Pétur Markan, sveitarstjóri í Súðavík. Á bak við þennan grípandi texta býr mikil trú á landið og gullkistuna okkar. Sporin hræða að vísu. Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar og fleiri fóru flatt á fiskeldinu á sinni tíð. Menn fóru allt of geyst. Steingrímur sagði að aðstæður til fiskeldis hér á landi væru ekki verri en annars staðar. Líklega væru þær betri ef eitthvað væri. Almenn skynsemi segir okkur að við verðum að nýta þá möguleika sem eru í farvatninu. Annað væri glapræði. En við skulum flýta okkur hæfilega. Lærum af reynslunni. Róm var ekki byggð á hverjum degi! Sleppum öllum æðibunugangi. Þá mun vel fara. Það eru gömul og sígild sannindi. En spyrja verður: Hvert fer arðurinn af fiskeldinu? 3. Almennilegan veg í Gufudalssveit Á ótrúlega skömmum tíma lögðu vestfirskir vegagerðarmenn vegi svo til að hverjum einasta bæ á Vestfjörðum. Það var torsótt vegagerð. En eyðilögðu þessir brautryðjendur landið? Auðvitað hafa verið lagðir hér vegir sem menn hafa ekki verið ánægðir með staðsetningu þeirra. Og komið hefur fyrir að gróið land hefur goldið þess. Þá hafa menn bara bölvað Vegagerðinni og lífið haldið áfram. Sumir segja að ekki megi leggja veg um Teigsskóg og Hallsteinsnes í Gufudalshreppi. Þá sé voðinn vís. Þeir góðu menn átta sig ekki á að búið er að leggja vegi vítt og breitt um alla Vestfirði á mjög svo sambærilegum stöðum við þennan margumrædda góða skóg. Jafnvel malbikaða tvíbreiða vegi, sem víða eru svo til á sama stað og gömlu akvegirnir. Fáir meinbugir þar á. Náttúran alveg söm við sig eftir því sem séð verður. Þráteflinu í Gufudalssveit verður að ljúka. Við þurfum þokkalegan heilsársveg í stað moldarveganna sem eftir eru í sveitinni. Ódrjúgsháls og Hjallaháls heyra til liðnum tíma. Stóra spurningin er náttúrlega hvort ekki er hægt að ljúka vegalagningu í Gufudalssveit án þess að fara um Teigsskóg eða bíða í áratugi eftir jarðgöngum. Nokkrir spekingar hafa komið með ábendingar um önnur vegstæði. Þær mætti skoða betur. Á að setja málið í gerðardóm? Menn hafa nefnt að taka eigi land eignarnámi undir veginn og jafnvel setja lög. Skoða mætti líka hvort ekki væri heppilegast að Alþingi eða Hæstiréttur skipi gerðardóm hinna bestu manna til að ljúka þessu endalausa þrátefli. Sagan segir okkur að slíkt hafi oft verið gert þegar mál hafa verið komin í óefni, sbr. hvað gerðist á Þingvöllum árið 1000. Ákvarðanir gerðardómsins ættu að vera bindandi fyrir alla aðila. Dómurinn fái skamman tíma til að ljúka störfum. Og heimamenn í Reykhólahreppi verði þar í oddaaðstöðu. Það væri tilbreyting í því. Hallgrímur Sveinsson Guðmundur Ingvarsson Bjarni G. Einarsson www.bbl.is Varahlutir og viðgerðarþjónusta fyrir JCB traktorsgröfur S: 5272600 - www.velavit.is Varahlutir - Viðgerðir Vélavit Sala Þjónusta www.versdagsins.is Uppl. í síma 893-8424 / set@velafl.is og á 694-3700 / gk@velafl .is www.velafl.is Caterpillar M316C Árg. 2005, 13.000 vst. Rótortilt og smurkerfi. Verð 4.300.000 + vsk. Hyundai R360LC-7 Árg. 2006, 7.500 vst. Fleyglagnir, hraðtengi og gómskófla. Verð 5.900.000 + vsk. MAN 26-430 6x2 Árg. 2006, 527.000 km. Góð dekk, tilbúinn fyrir malarvagn. Ozgul malarvagn. Árg. 2017, nýr. Wabco bremsukerfi. Álfelgur og Bridgeston dekk. Verð 5.500.000 + vsk. MAN TGX26-540 6x4 Árg. 2012, 415.000 km. Nýr mótor settur í bílinn í 300.000 km. Nýleg kúpling og vatnskassi. Vökvakerfi fyrir malarvagn. Verð 6.900.000 + vsk. Hitachi ZX19-5 Árg. 2017, 100 vst. Hraðtengi og 3 skóflur. Verð 2.950.000 + vsk.            Veittir eru styrkir úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að leggja vatnsveitu að einstökum bæjum í dreifbýli samkvæmt reglugerð nr. 180/2016. Rafrænar umsóknir skal fylla út á Bændatorginu (www.bondi.is) eigi síðar en 1. mars 2018. Með umsókn skal fylgja mat búnaðarsambands á þörf býlisins fyrir viðkomandi framkvæmd og staðfest kostnaðar- og framkvæmdaáætlun. Rafrænt umsóknarform og reglugerð er að finna á Bændatorginu. Aðeins er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum Bændatorgið. VATNSVEITUR Á LÖGBÝLUM Hydrowear vetrargalli blár Loðfóðraður en vattfóðraður í ermum og skálmum Efnið í gallanum er vatnsfráhrindandi Rennilás að framan og á skálmum. Stærðir S – 3XL. Jobman vetrargalli svartur Léttur vattfóðraður galli. Pólýester með PU-húð að innan sem ver gegn vindi og vatni. Rennilásar á skálmum upp að mjöðm auðveldar að fara úr og í. Stærðir: S-3XL Wenaas vetrargalli gulur/svartur Léttur og þægilegur Vattfóðraður með rennilás. Stærðir: M - 2XL Kuldagallar á tilboði KH Vinnuföt Nethyl 2a 110 Reykjavík Sími: 577 1000 info@khvinnufot.is www.khvinnufot.is Hver galli LESENDABÁS Þrjú stórmál á Vestfjörðum í forgang
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.