Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 43

Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018 hafa verið gerðir samningar við bændurna í nágrenni kúabúanna um öflun gróffóðursins. Afgasaðri mykju hvers kúabús fyrirtækisins er svo ekið til viðkomandi bónda sem sér um gróffóðuröflunina og nýtist hún því afar vel. Segja má að öll kúabú Modern Dairy séu nokkuð nálægt hvert öðru og er staðsetning þeirra bæði valin út frá mögulegum kaupum á gróffóðri en einnig með tilliti til markaðssetningar mjólkurafurða. Búin eru því öll nokkuð nálægt Peking og staðsett í 7 mismunandi héruðum í austurhluta Kína. Líklega eru ekki nema um 1.500 km á milli þeirra kúabúa Modern Dairy sem eru lengst frá hvert öðru en rétt er að minna á í þessu sambandi að Kína er um 9,6 milljónir ferkílómetrar að stærð svo heimamönnum þykja t.d. þúsund kílómetrar ekki sérlega mikil vegalengd! Á hlutabréfamarkaði Árið 2010 var fyrirtækið sett á almennan hlutabréfamarkað í Hong Kong og varð það þá fyrsta mjólkurframleiðslufyrirtækið í heiminum sem var á markaði. Síðustu árin hefur reksturinn verið í járnum og varð það til þess að fyrir tveimur árum keypti kínverska afurðafélagið Mengniu, sem er næststærsta afurðafyrirtæki Kína og að hluta í eigu afurðafélagsins Arla, meirihlutaeigana hlutafjárins í Modern Dairy. Mengniu er nú að breyta rekstrinum á Modern Dairy frá því að vera með litlar afurðastöðvar reknar á hverju kúabúi yfir í að reka búin sem hefðbundin kúabú. Mjólk er nú sótt á öll búin daglega og henni ekið yfir í næstu afurðastöð Mengniu. Þetta á þó ekki við um kúabúið Bengbu, en það er langstærsta kúabúið í Kína með 20 þúsund mjólkurkýr, þar sem stærðin gerir það að verkum að það er hagkvæmt að reka afurðastöð á sama blettinum og kúabúið. Skipulögð eins Það er afar áhugavert að heimsækja kúabú Modern Dairy enda eru þau öll byggð upp með svipuðum hætti og á svipaðri hugmyndafræði. Búin eru byggð þannig upp að gönguleiðir kúa til og frá mjaltaaðstöðu séu sem stystar og að auðvelt sé að aka vörum til og frá búunum. Skipulag Bengbu kúabúsins er dæmigert fyrir þá uppsetningu á fjósum og annarri aðstöðu sem hér um ræðir og sést þessi hönnun vel á meðfylgjandi mynd. Ótal flokkar kúa Þegar fjöldi kúa skiptir þúsundum eða tugum þúsunda á einu og sama kúabúinu liggur beint við að búa til mismunandi framleiðsluhópa og er kúnum á Bengbu kúabúinu bæði skipt upp í hópa eftir afurðastigi en einnig eftir stöðu á mjaltaskeiði. Þannig er einn hópur með kúm frá burði og fyrstu 21 dagana eftir burð, næsti hópur fram að staðfestu fangi og svo er næsti hópur megin framleiðsluhópurinn. Sá hópur heldur sér fram undir geldstöðu en svo eru kýrnar settar í tvo geldstöðuhópa eftir því hve langt er í væntanlegan burð. Innan hvers framleiðsluhóps er kúnum svo skipt upp í tvo flokka eftir daglegri nyt; yfir og undir 30 kílóum á dag. Smitgát er mikilvæg Það er alls ekki einfalt að vera með þúsundir af kúm á einu og sama kúabúinu enda í raun kjöraðstæður fyrir bakteríur að halda velli vegna þess hve gripirnir eru margir. Þessi þéttni á gripum getur verið erfið viðureignar og jafnvel þó svo að plássið sem hver gripur fær og hefur aðgengi að sé það sama og á minni búum þá vofir alltaf yfir ákveðin hætta á því að smitsjúkdómar geti komið upp. Vegna þessa er smitgát á kúabúum Modern Dairy afar mikil og t.d. fer enginn inn á kúabúið nema með því að skipta um föt og fara í sturtu og skiptir þar engu máli hvort er um starfsfólk að ræða eða þjónustuaðila. Allir fara í föt viðkomandi bús eftir að hafa farið í sturtu. Þá eru allir bílar stótthreinsaðir við komu á búið og strangt eftirlit haft með öllum aðföngum. Margir fastráðnir dýralæknar Modern Dairy er með rúmlega 5 þúsund starfsmenn í dag og vinna þeir bæði við kúabúskapinn sjálfan sem og við þá afurðavinnslu sem enn er starfrækt og vegna stærðar kúabúanna eru margir fastráðnir dýralæknar í vinnu og eru nokkrir við störf á hverju búi. Þessi staða gerir það að verkum að afar vel er staðið bæði að burðarhjálp og annarri aðstoð við skepnurnar og eru t.d. sólarhringsvaktir hjá dýralæknum á Bengbu kúabúinu svo viðbragðstími þeirra er afar stuttur ef einhver gripur þarf á læknisþjónustu að halda. Vegna umfangs rekstursins er Modern Dairy einnig með rannsóknastofur á þeirra vegum sem sjá um ræktun júgurbólgugerla og sjá auk þess um allskonar gæðaeftirlit innan búanna s.s. á mjólkurafurðum. Vegna stærðar landsins og dreifð kúabúa Modern Dairy er ekki hagkvæmt að vera einungis með eina rannsóknastöð og því er fyrirtækið bæði með rannsóknastöð norðan og sunnan við Peking. Með eigin ráðgjafarþjónustu Eins og gefur að skilja hafa ótal fyrirtæki sem eru í sölu og þjónustu mikinn áhuga á samstarfi við Modern Dairy enda eftirsóknarvert að geta getið þess við viðskiptavini sína að vera með eitt stærsta mjólkurframleiðslufyrirtæki heims í viðskiptum. Vegna þessarar stöðu, og stærðar Modern Dairy, er fyrirtækið með allmarga sérfræðinga í vinnu og segja má að þeir myndi sameiginlega eigin ráðgjafaþjónustu fyrirtækisins. Þannig er fyrirtækið t.d. með sinn eigin yfirdýralæknir sem sér um stefnumótun varðandi meðhöndlanir og sér um endurmenntun annarra dýralækna fyrirtækisins. Þá er sér fóðurráðgjafadeild sem sér um að gera allar heilfóðuruppskriftir fyrir hvert bú, gera fóðurathuganir og mælingar, innkaup á fóðri o.þ.h. Þá kaupir fyrirtækið ráðgjafarþjónustu á sviði kynbóta og frjósemi og nýtur auk þess ráðgjafar frá Mengniu og Arla varðandi mjólkurgæðamál og júgurheilbrigði. Ekki frekari stækkun Eins og áður sagði er Modern Dairy með 15 kúabú þar sem mjólkurframleiðsla fer fram og nemur dagleg framleiðsla fyrirtækisins 3,3 milljónum lítra og þar af framleiðir stærsta búið nærri hálfa milljón lítra. Forsvarsmenn og eigendur fyrirtækisins hafa nú ákveðið að ekki verði um frekari stækkun að ræða í bráð og að á næstu 2–3 árum verði fyrst og fremst horft til aukinnar innri hagræðingar og eflingar þeirra framleiðslutækja sem nú þegar eru til staðar. Er þar sérstaklega horft til aukinna afurða kúnna en meðalnytin er ekki nema rétt rúmlega 9,5 tonn, sem þykir ekki mikið þegar Holstein kýr eru annars vegar sem mjólkaðar eru þrisvar á dag. Fagráð í sauðfjárrækt stendur fyrir opnum fagráðsfundi föstu- daginn 2. mars næstkomandi. Fundurinn verður haldinn í Bændahöllinni við Hagatorg og hefst klukkan 12.30. Markmið fundarins er að kynna helstu verkefnin sem fagráð hefur hvatt áfram að undanförnu og ræða framþróun málefna sem tengjast sauðfjárræktinni. Kynntar verða rannsóknarniðurstöður, staða verkefna rædd og færðar fréttir af erlendum vettvangi og nýjungum í kynbótum. Til umfjöllunar verður m.a. verkefni er tengjast gæðum lambakjöts, þróun kynbótamats fyrir þunga lamba, hagnýting erfðamengisúrvals í kynbótum, rannsóknir á öndunarfærasjúkdómum og fósturláti í gemlingum svo eitthvað sé nefnt. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Opinn fagráðsfundur 2. mars Inngangur Verkefni fagráðs Gunnar Þórarinsson, formaður Fagráðs í sauðfjárrækt Ræktunarmarkmið fyrir íslenska sauðfjárstofninn uppfærð. Eyþór Einarsson, RML Gæði lambakjöts Rannsóknir á gæðum lambakjöts – kynning á niðurstöðum Guðjón Þorkelsson, MATÍS og Emma Eyþórsdóttir, LBHÍ Viðhorf neytenda – hvað má betur fara? Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Icelandic lamb Sýn sláturleyfishafa á gæði lambakjöts og gæðamati framtíðarinnar Bára Eyfjörð Heimisdóttir, flytur erindi sem heitir: Sýn sláturleyfishafa á gæði lambakjöts og gæðamati framtíðarinnar. Þróun kynbótamats fyrir þunga lamba Kynning á niðurstöðum verkefnis Elsa Albertsdóttir, BÍ Kaffihlé Sheep breeders round table 2017 Helstu niðurstöður frá ráðstefnu breskra sauðfjárbænda Eyjólfur Ingvi Bjarnason RML, Emma Eyþórsdóttir LBHÍ og Eyþór Einarsson RML. Nýjar aðferðir í kynbótum Hagnýting erfðamengisúrvals í kynbótum Baldur Helgi Benjamínsson, BÍ Rannsóknir á sauðfjársjúkdómum Rannsóknir á öndunarfærasjúkdómum og fósturláti í gemlingum Charlotta Oddsdóttir, LBHÍ Almennar umræður Fundi slitið 17.00 Dagskrá Mynd / SS Led húsnúmer Falleg húsnúmer · sérsmíðum númer á öll hús · Sendu okkur mynd þegar þú ert búinn að setja þitt húsnúmer upp Best er að panta í gegnum facebooksíðuna okkar. Einnig hægt að hringa í sími 789 3010 · Ledlýsing sem endist og eyðir litlu rafmagni · Hægt að fá í lituðu áli eða ryðfríu stáli · Verið velkomin á facebooksíðu okkar: Led húsnúmer · Sendu okkur mynd þegar þú ert búinn að setja þitt húsnúmer upp og við setjum það á facebooksíðuna okkar Smiðjuvegur 30, 200 Kópavogur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.