Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 12

Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018 Nýverið gerði Matartíminn, veit inga svið Sölufélags garð- yrkjumanna, rammasamning við Reykjavíkurborg um rekstur mötuneyta fyrir leik- og grunnskólana. Matartíminn var stofnaður í júní 2017, í samvinnu Sölufélags garðyrkjumanna (SFG) og þeirra Herborgar Svönu Hjelm og Birgis Reynissonar. Herborg segir að í dag þjónusti Matartíminn tvö þúsund börnum og starfsmönnum daglega og þjónusti um 15 leikskóla. „Við Birgir byrjuðum síðasta sumar á því að gera matseðla í samvinnu við leikskóla og þegar matseðlarnir voru orðnir þannig að börnin voru orðin mjög sátt við matseðilinn þá fórum við að þjónusta leikskóla og grunnskóla,“ segir Herborg. Skordýraeitur í þvagsýnum barna í Danmörku Matartíminn er starfræktur í höfuðstöðvum fyrirtækisins að Brúarvogi 2, að sögn Herborgar, undir ötulli stjórn fagaðila og sérfræðinga. „Hjá okkur starfar matreiðslumeistari og matreiðslumenn með mikla reynslu af að elda í stóreldhúsum, svo hef ég um 11 ára reynslu af rekstri skólamötuneyta. Sölufélag garðyrkjumanna leggur mikinn metnað í að auka hlut íslenskra afurða á borðum skólabarna, þá sér í lagi íslenskt grænmeti, kjöt og fisk. Upphaf rekstrarins má rekja tvö ár aftur í tímann þegar fregnir bárust að skordýraeitur mældist langt yfir hættumörkum í þvagsýnum barna á leikskólaaldri í Danmörku. Í framhaldi fóru íslenskir garðyrkjubændur að velta fyrir sér hvernig væri hægt að fá leik- og grunnskólabörn til að neyta meira af íslensku grænmeti og sú leið var valin að koma á fót veitingasviði. Hugsjónin snýr einnig að matarsóun en SFG nýtir grænmetið frá bændum betur, afskurður er notaður í súpur og sósur. Með þessu náum við að vera samkeppnishæf í verði. Hingað til hefur ekki verið gerð grundvallarkrafa um gæði hráefnis þegar keyptur er matur frá þriðja aðila, né um umhverfisþætti eins og kolefnisfótspor og sjálfbærni – en þar er okkar sérstaða á markaði, ásamt íslenska grænmetinu,“ segir Herborg. Hún segir að mikil fram- leiðslugeta sé fyrir hendi hjá Matartímanum og getur fyrir- tækið tekið að sér fjölbreytt verkefni. „Við f r a m l e i ð u m sósur, súpur og grænmetisbuff fyrir heildsölur og veitingastaði. Mikil eftirspurn er eftir græn- m e t i s f æ ð i úr íslensku grænmeti og neytendur eru alltaf að verða betur upplýstir um mikilvægi þess að neyta íslensks grænmetis og hráefnis úr nærumhverfinu.“ Flest allt gert frá grunni „Við gerum flest allan mat frá grunni, notum engin aukaefni né sykur og mjög lítið af salti. Við notum íslenskt grænmeti, íslenskan fisk og íslenskt kjöt. Sósur eru úr grænmeti, við þykkjum sósur með kartöflum, ekki kartöflumjöli, og bjóðum upp á kartöflumús en ekk i kartöfluduft. Við nýtum grænmeti sem ekki ratar í búðir. Við bökum allt sjálf og má nefna að við höfum verið að baka brauð úr byggi frá Þorvaldseyri undir Eyja- fjöllum. Matseðlar eru unnir eftir ráðleggingum embættis landlæknis. Það skiptir miklu máli að fæðuvalið sé næringarríkt og fjölbreytt. Þannig er hægt að borða allan mat af og til og í hóflegu magni. Með því að fylgja ráðleggingum um mataræði er auðveldara að tryggja að líkaminn fái þau næringarefni sem börn og ungmenni þurfa yfir daginn. Hitaeiningaþörf leikskólabarna á aldrinum tveggja til fimm ára er um 70% af dagsþörfinni og hádegisverður fyrir grunnskólabörn á aldrinum 6–16 ára er um 33% af dagsþörfinni – kolvetni eiga að vera um 50–60%, prótein 15–30 prósent og fita frá 15 prósent upp í 40 prósent. Allir matseðlar eru næringar vútreiknaðir,“ segir Herborg og vísar síðan til vefjar Matartímans fyrir þá sem vilja kynna sér betur matseðlana (http:// matartiminn.is/matsedlar.html). Álitleg litrík samsetning Herborg segir að miklu máli skipti við matseðlagerðina að hafa matinn litríkan og skemmtilegan fyrir börnin – því börnin borða fyrst með augunum. „Það verður líka að leyfa börnunum að velja sjálf á diskana og það þarf að passa vel upp á áferðina á matnum. Við, ásamt starfsmönnum í leikskólum og grunnskólum, tökum eftir því að mikil aukning á neyslu á grænmeti verður þegar við höfum starfað í einhvern tíma í mötuneytum. Við skýrum það þannig að við leggjum mikla áherslu á að hafa grænmetið litríkt og að raða saman litum sem vekja áhuga hjá börnum – en svo þarf að skera grænmetið þannig að það henti ungum börnum. Börnin eru líka mjög dugleg að borða súpur úr blómkáli, spergilkáli, sveppum, gulrótum og kartöflum.“ /smh Veitingasvið Sölufélags garðyrkjumanna gerir samning við Reykjavíkurborg um þjónustu við mötuneytin: Um tvö þúsund börn og starfsmenn daglega í mat FRÉTTIR Gúrkur, tómatar og rauðkál skorið niður. Herborg Svana Hjelm. Íslensk kjötsúpa. Guðmundur Egill Ragnarsson matreiðslumeistari og Birgir Reynisson, framleiðslustjóri í eldhúsi Sölufélags garðyrkjumanna í Brúarvogi í Reykjavík. Mynd / smh - búðum frá Matartímanum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.