Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018
Álfasteinn í Hörgársveit
hlaut Orðsporið
Leikskólinn Álfasteinn í
Hörgársveit hlaut Orðsporið,
hvatningarverðlaun sem veitt
eru þeim sem þykja hafa
skarað fram úr í að efla orðspor
leikskólastarfs í landinu og hafa
unnið ötullega í þágu leikskóla
og leikskólabarna. Hörgársveit
hlaut Orðsporið 2018 fyrir að vera
það sveitarfélag sem hefur hæst
hlutfall leikskólakennara í starfi
við uppeldi og menntun barna.
Orðsporið var afhent á Degi
leikskólans fyrr í þessum mánuði.
Markmið dagsins er að beina sjónum
að því gróskumikla starfi sem fram
fer í leikskólum landsins.
Hæft fólk með viðeigandi
menntun
Að mati valnefndar um Orðsporið
2018 er mikilvægt að hafa vel
menntaða starfsmenn í leikskólum
landsins því það muni án efa skila
sér í auknum gæðum í skólastarfinu
og fagmennsku og um leið
styrkja leikskóla sem áhugaverða
vinnustaði. Hörgársveit hefur sett
sér það markmið að í skólunum
starfi hæft fólk með viðeigandi
menntun við bestu námsaðstæður
og vinnuskilyrði sem völ er á.
Í skólastefnu Hörgársveitar
kemur fram að leiðarljós
sveitarfélagsins er að vinna
markvisst að því að mennta börn í
metnaðarfullu skólastarfi þar sem
velferð barnanna og starfsfólks
er í fyrirrúmi og að menntunin
nýtist til framtíðar. Er það m.a.
gert með því að vera með virkar
starfsþróunaráætlanir sem eru
endurskoðaðar árlega. Þetta skilar
sér í stöðugleika í starfsmannahaldi
og góðum starfsanda. /MÞÞ
GLERÁRTORGI | SMÁRATORGI | KRINGLAN | LINDESIGN.IS
AFSLÁTTUR AF
DÚNSÆNGUM OG KODDUM
S: 5272600 - www.velavit.is
Varahlutir - Viðgerðir
Vélavit
Sala Þjónusta
Startarar og Alternatorar
í flestar gerðir véla og tækja
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 8. mars
Á myndinni eru: Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara,
Þórður Árni Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands, Hugún Ósk
Hermannsdóttir, leikskólastjóri Álfasteins, Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri
Hörgársveitar, Klara E. Finnbogadóttir, sérfræðingur hjá Sambandi
íslenskra sveitarfélaga, Björk Óttarsdóttir, sérfræðingur hjá mennta- og
menningarmálaráðuneytinu, og Sigurður Sigurjónsson, starfandi formaður
Félags stjórnenda leikskóla.