Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 2

Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018 Starfsmönnum Suðurverks og Metrostav hefur gengið vel við gröft Dýrafjarðarganga sem byrjað var á síðastliðið haust. Göngin, sem verða 5,3 km að lengd og með 7,5 km vegtengingum, eiga að verða tilbúin 2020. Göngin munu leysa af hólmi erfiðan fjallveg yfir Hrafnseyrarheiði á milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar sem lokaður er mánuðum saman vegna snjóa á hverju ári. Ljóst er þó að gerð ganganna verður til lítils nema samhliða verði unnið við endurbætur á veginum til vesturs yfir Dynjandisheiði. Það verkefni er nú í ferli hjá Vegagerðinni og unnið að umhverfismati. Búnir að grafa um 1.300 metra Í sjöundu viku þessa árs voru grafnir 66,1 metri og í lok þessarar viku verður væntanlega búið að grafa um 1.300 metra af göngunum og þá eftir um 4 kílómetrar. Lítið um vandamál við gangagröftinn Guðmundur Rafn Kristjánsson, deildarstjóri hjá Vegagerðinni á Ísafirði, segir að gangagröfturinn hafi gengið vel. „Menn hafa ekki lent í neinum vandamálum vegna vatnsleka þó vatns verði auðvitað vart annað slagið. Þá hefur bergið verið þokkalegt, en kargi hefur þó stundum verið að stríða þeim. Helsti vandinn hefur verið vegna veðurs í vetur. Það hefur gengið svolítið erfiðlega að koma mannskap til og frá borsvæðinu þegar skipt er um vaktir vegna veðurs.“ Hann segir að gangamenn reiði sig yfirleitt á að fara með bát til og frá Bíldudal, en veður hefur stundum hamlað því. Þá sé mikið mál að opna Hrafnseyrarheiði til að komast yfir á Þingeyri. Í Arnarfirði fram að jólum Guðmundur Rafn segir að grafið sé inn í fjallið frá Arnarfirði. Þar verði haldið áfram fram undir jól á þessu ári þegar gangamenn flytji búnað sinn yfir að gangamunna Dýrafjarðarmegin. Þá verður væntanlega búið að grafa tvo þriðju hluta ganganna eða að þeim hluta sem göngin liggja hæst. Segir Guðmundur Rafn að það henti betur að grafa svo mikið Arnarfjarðarmegin til að fá efni í uppfyllingar þar vegna vegagerðar að gangamunna. /HKr. Búnaðarþing 2018 haldið á Hótel Sögu 5. og 6. mars: Skilvirk starfsemi og góð nýting fjármuna til umræðu Búnaðarþing 2018 fer fram í byrjun mars. Fjöldi mála er á dagskrá þingsins og má þar nefna innflutning á hráu kjöti, félagskerfi landbúnaðarins, loftslagsmál, endurskoðun búvörusamninga og tollamál. Félagskerfi og nýtt félagsgjaldakerfi, sem innleitt var í ársbyrjun 2017, verður eitt margra umfjöllunarefna á Búnaðarþingi sem fer fram í Bændahöllinni 5. og 6. mars næstkomandi. Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir að fyrirkomulag á innheimtu félagsgjalda og það hvernig best sé að haga starfsemi samtaka bænda og uppbygging starfseminnar til lengri tíma verði rætt. „Við munum ræða skilvirkni starfseminnar og hvernig sé best að nýta fjármuni samtakanna bændum til hagsbóta. Aðildarfélög innan Bænda- samtaka Íslands eru mörg og ýmsar skoðanir á því hvernig á að gera hlutina og ég geri ráð fyrir að við munum skoða samþykktir samtakanna og innri mál þeirra.“ Umhverfis- og loftslagsmál ofarlega á baugi Vinnuhópur um umhverfismál á vegum BÍ, undir forystu Oddnýjar Steinu Valsdóttur, hefur skilað af sér tillögu að umhverfisstefnu BÍ sem verður lögð fyrir þingið. Sindri segir að loftslagsmálin verði klárlega áberandi á þinginu. „Skoðanir á aðgerðum til að stemma stigu við losun gróðurhúsa- lofttegunda eru mismunandi, eins og við höfum meðal annars séð á síðum Bændablaðsins. Vísindamenn greinir á um aðferðir, rannsóknir og gögn og sitt sýnist hverjum. Það eru til margar aðferðir, eins og endurheimt votlendis, aukin skógrækt og aukin landgræðsla. Ég held að við verðum að nýta allar þessar aðferðir eftir því sem hentar á hverjum stað. Þetta gerist ekki nema með góðri samvinnu við bændur og aðra landeigendur.“ Í umhverfisnefnd þingsins verður til umræðu umhverfisstefna landbúnaðarins og hvernig við eigum að forgangsraða aðgerðum á því sviði á næstu misserum. Þar eru loftslagsmálin vissulega í forgrunni, en horft er til fleiri þátta eins og orkuskipta og orkunýtingar, endurvinnslu og aukins hlutar innlendra aðfanga. Búvörusamningarnir og endurskoðun þeirra „Endurskoðun búvörusamninganna verða einnig til umræðu á þinginu enda þurfa Bændasamtökin að marka sér ákveðna stefnu um hvað þau vilja fá út úr endurskoðuninni. Fyrri endurskoðun samninganna á að ljúka 2019 og við þurfum því að ræða núna hvaða breytingar bændur vilja sjá. Ég á von á að við munum ræða bæði mjólkur- og sauðfjársamninginn hvað mest og þá ekki síst kvótakerfið í mjólkurframleiðslu og hvaða stefnu á að taka í því máli. Við þurfum einnig að ræða hvernig við sjáum fyrir okkur niðurtröppun á beingreiðslum sauðfjár til bænda eins og sauðfjársamningurinn fjallar um. Til þingsins mun koma mál frá stjórninni þar sem tekið er á því hvaða sýn stjórnin hefur á því hvað sé nauðsynlegt að ræða við endurskoðun búvörusamninganna, þar með talið þessi og fleiri mál,“ segir Sindri. Tollar og hrátt kjöt Sindri segir að auk fyrrgreindra verði tollamál og innflutningur á hráu kjöti áberandi mál á Búnaðarþingi. „Í fyrsta lagi er það tolla- samningurinn við Evrópusambandið og úrskurður EFTA dómstólsins um að Ísland sé að brjóta ákvæði EES-samningsins með því að hefta innflutning á ófrosnu kjöti, ógerilsneyddum eggjum og ógerilsneyddri mjólk til landsins. Innflutningur á kjöti er nú þegar mikill. Vegna hás gengis krónunnar er tollverndin ekki að jafna samkeppnisstöðu innlendrar framleiðslu gagnvart erlendri, eins og hún á að gera. Við verðum að setja fram skýra sýn á hvernig við ætlum að tryggja starfsskilyrði kjöt- og mjólkurframleiðenda í landinu. Í núverandi árferði gengur dæmið ekki upp. Tollverndin hefur ekki verið leiðrétt og magntollarnir eru flestir sama krónutala og 1995. Þar af leiðandi hefur verðgildi þeirra dregist saman og verndin sem þeir áttu að veita er orðin að engu. Hvað varðar breytingarnar á tollasamningnum 1. maí næstkomandi og mögulegan innflutning á hráu kjöti í kjölfar niðurstöðu EFTA-dómstólsins, þá er verið að stíga skref til verra fyrirkomulags en hefur verið í gildi hvað varðar matvælaöryggi. Það er mál sem við getum og eigum ekki að sætta okkur við. „Að við skulum eiga á hættu að hingað flæði kamfílóbakter eða salmonellusmitaður kjúklingur án þess að við fáum þar nokkuð að gert er ekki ásættanlegt. Á sama tíma getum við náttúrlega ekki gert þá kröfu til íslenskra framleiðenda að þeir fargi öllum kjúklingi komi upp salmonellusmit eða meðhöndli sérstaklega allan kamfílóbakter smitaðan kjúkling. Í raun er fáránlegt að við skulum vera að ræða um að við fáum ekki einhverjar viðbótartryggingar vegna hugsanlegs salmonellusmits á við Norðurlöndin þegar ástandið hér er mun betra en hjá þeim og við verjum neytendur langbest fyrir sýkingum af þessum löndum. Þetta eitt sýnir hvað kerfið er meingallað. Íslensk stjórnvöld verða einfaldlega að fara til Brussel, berja í borðið og gera kröfu um að við megum áfram hafa þær sóttvarnir sem við þurfum. Ef ákvæðin í 13. grein EES, sem fjalla um heilsuvernd manna og dýra, eru allt í einu ekki lengur í gildi er EES- samningurinn orðið eitthvað annað en við samþykktum á sínum tíma,“ segir Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands. /VH FRÉTTIR Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands og bóndi í Bakkakoti, sem innleitt var í ársbyrjun 2017. Úrskurður EFTA-dómstólsins varðandi innflutning á hráu kjöti, ógerilsneyddum eggjum og mjólk veldur bændum áhyggjum. Sindri segir að íslensk stjórnvöld verði einfaldlega að fara til Brussel, berja í borðið og gera kröfu um að Íslendingar megi áfram hafa þær sóttvarnir sem þeir þurfa. ofarlega á baugi. Búnaðarþing verður sett í endurnýjuðum Súlnasal Hótel Sögu mánudaginn 5. mars kl. 10.30. Þar verður hátíðardagskrá til hádegis. Myndir / HKr. Framkvæmdir við Dýrafjarðargöng ganga vel Starfsmönnum Suðurverks og Metrostav miðar vel við gröft Dýrafjarðar- ganga. Eiga þeir nú eftir um 4 km af 5,3 km heildarlengd ganganna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.