Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 46

Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018 Fyrir nokkru átti ég erindi á Selfoss og notaði tækifærið í þeirri ferð að prófa Jeep Grand Cherokee Laredo frá Íslensk bandaríska í Mosfellsbæ. Í stuttu máli þá var þessi bíll langt fyrir ofan það sem ég hafði gert mér í hugarlund fyrir aksturinn. Nánast fullkominn bíll með mikið afl og þægindi Jeep Grand Cherokee Laredo er ódýrasti bíllinn af fimm í Cherokee fjölskyldunni og minnst í hann lagt. Vélin er 3000cc. dísil og á að skila 250 hestöflum, skiptingin er 8 þrepa og finnur maður nánast aldrei þegar skiptingin skiptir um þrep. Krafturinn í vélinni er mjög skemmtilegur og aldrei vantaði afl þegar gefið var í. Dráttargeta bílsins er 3.265 kg miðað við að það sem dregið er sé með bremsubúnaði. Í bílnum sem ég prófaði var bara hiti í framsætunum, en í öllum hinum er hiti í aftursætum. Allt pláss er gott fyrir farþega og fótarými meira en í flestum sambærilegum jepplingum. Sætin eru þægileg og fann ég ekkert fyrir óþægindum á einn eða annan hátt þegar ég var búinn að stilla sætið eins og ég vildi hafa það í byrjun ökuferðar (hefur komið fyrir að ég hafi þurft að margstilla sæti í prufuakstri). Aðeins breyttur bíll, sem naut sín í snjónum Bíllinn sem ég prófaði kostar 8.990.000 krónur, (5 tegundir og sá dýrasti kostar 13.590.000). Prufubíllinn var aðeins breyttur, með aukabúnað sem er loftpúðafjöðrun (kostar aukalega 390.000) og á öðrum felgum og 32 tommu dekkjum (kostar aukalega 380.000). Þannig að bíllinn sem ég prófaði kostar 9.760.000. Þegar ekið er ákveðið í hálku og snjó finnst mér skriðvörn og spólvörn koma misfljótt inn og það truflar mig þegar allur kraftur er tekinn af manni þegar spólvörnin eða skriðvörnin fer á. Í Jeep Grand Cherokee Laredo kemur skriðvörnin og spólvörnin mátulega seint inn og aðeins lítill hluti af hrossastóðinu undir húddinu hættir að vinna þannig að maður hefur gott afl til að halda ferð þó að bíllinn sé aðeins laus á veginum. Persónulega finnst mér þessi búnaður mun skemmtilegri til aksturs heldur en sá búnaður sem er í flestum bílum í dag (er ekki að mæla gegn skriðvörnum og spólvörnum í öðrum bílum, en sá búnaður hentar mjög vel sérstaklega fyrir þá sem ekki eru vanir akstri í snjó og hálku). Mikið lagt upp úr öryggi fyrir farþega Jeep Grand Cherokee Laredo er sérstaklega vel styrktur bæði í hliðum og toppi með það í huga að ef slys verður komi nánast ekkert fyrir farþega bílsins. Styrkingar eru í hurðum og loftpúðar eru bæði í hliðum og fyrir framan ökumann og farþega. Í mælaborðinu er 7 tommu skjár sem er m.a. bakkmyndavél, en á þessum skjá er hægt að fá mikið af upplýsingum s.s. hita á vél, skiptingu og fl. Einnig er hægt að fá ýmislegt fleira á þennan skjá. Fyrir mig, sem er frekar tölvuheftur, fannst mér lítið mál að fletta mig áfram á þessum skjá. Að loknum akstri skoðaði ég í aksturstölvu bílsins uppgefna eyðslu eftir rúma 100 km. Miðað við að hafa verið að keyra í þæfingssnjó og hálku var eyðsla mín ekki nema 8,6 lítrar. Þetta fannst mér frekar ótrúverðug tala þar sem ég hafði verið frekar í óþekkari kantinum og með hægri fótinn í þyngra lagi. É ÁV LAB SINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is eep Gr C rok e re oJ L dhedan e a : Jeep Grand Cherokee Laredo. Myndir / HLJ Ekki er hægt að skilja takkann eftir svona svo að það þarf að muna að kveikja ljósin. Margar stillingar eru í boði fyrir drifbúnaðinn. Til að vera löglegur í umferð þarf afturljós sem þarf að kveikja. Á þessum bíl er munurinn ótvíræður, hvort ljósin eru kveikt eða ekki, en þetta var eini mínusinn sem ég fann að bílnum. Fullbúið varadekk er stór plús. Dráttargeta 3.265 kg Hæð 1.790 mm Breidd 1.940 mm Lengd 4.830 mm Helstu mál og upplýsingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.