Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017 Baráttan við ofursýklana er hörð og þar óttast menn að stríðið sé nánast tapað ef ekki komi til ný undralyf. Það undralyf kann mögulega að vera í sjónmáli einhvers staðar í framtíðinni ef marka má frétt BBC um efni sem fundist hefur í jarðvegi. Í frétt BBC sem birt var 13. febrúar sl. segir að hópur vísindamanna hjá Rockefeller- háskólanum í Bandaríkjunum vonist nú til að náttúrulegt efni geti hugsanlega verið lausnin í baráttunni við sýkingar sem sýklalyf ráði ekki við. Malacidin-efni úr jarðvegi sem geta tortímt ofurbakteríum Tilraunir sýna að efni, sem kölluð eru Malacidins, geta tortímt fjölmörgum bakteríusjúkdómum sem hafa þróað með sér ónæmi fyrir þekktum sýklalyfjum. Malacidins geta einnig drepið svokallaða ofurbakteríu (superbugs – MRSA). Grein um árangurinn hefur verið birt í ritinu Nature Microbiology og gefur mönnum vonir um að komið sé nýtt vopn í baráttunni við sýklana. Kemur fram að sýklalyfjaónæmir sýklar drepi nú um 700.000 manns á ári og eru þeir taldir ein mesta ógnin við heilsu jarðarbúa í dag. Jarðvegurinn er fullur af alls konar örverum sem framleiða hugsanlega mikið af læknandi efnum eins og þeim sem drepa sýkla. Teymi vísindamanna hjá Rockefeller-háskólanum í New York undir stjórn dr. Sean Brady hefur verið önnum kafið við að rannsaka þessi efni. Notuðust þeir við genaraðgreiningartækni við að rannsaka yfir 1.000 jarðvegssýni sem tekin voru vítt og breitt um Bandaríkin. Þeir uppgötvuðu að Malacidin var að finna í mörgum sýnanna og töldu að það gæti haft merkilega þýðingu. Prófuðu þeir efnið á rottum sem smitaðar höfðu verið í sár á húð með sýklalyfjaónæmum sýklum. Vísindamennirnir eru nú að vinna að frekari tilraunum við að auka lyfjahæfni efnisins í von um að hægt verði að þróa það til að meðhöndla sýkingar í fólki. Langur vegur frá uppgötvun viðurkenndra lyfja Dr. Sean Brady segir að ómögulegt sé að segja hvenær eða jafnvel hvort þessi uppgötvun leiði til þess að efni eins og Malacidins mun verða notuð í lækningaskyni. „Það er langur og erfiður vegur frá því að bakteríudrepandi efni finnst þar til það fær viðurkenningu til að hægt sé að fara nota það til lækninga.“ Uppgötvunin leysir ekki þann bráðavanda sem uppi er Colin Garner, prófessor við sýklalyfjarannsóknir í Bretlandi (Antibiotic Research UK), segir að uppgötvun á nýju sýkladrepandi efni til að að nota gegn MRSA-sýkingum séu vissulega góðar fréttir. Þetta leysi þó ekki þann bráðavanda sem uppi er. „Okkar áhyggjur eru einkum varðandi svokallaðar „gram- neikvæðu“ bakteríur sem erfitt er að meðhöndla og eru stöðugt að auka þol sitt. Þessar „gram-neikvæðu“ bakter íur orsaka meðal annars lungnabólgu, blóð- og þvag sýkingar sem og sýkingar í húð. Við þurfum nauðsynlega ný sýklalyf til að vinna á þessum sýkingum.“ /HKr. Vísindamenn finna efni í jarðvegi sem getur drepið ofurbakteríur – Óvíst hvort eða hvenær það nýtist til lækninga og leysir ekki þann bráðavanda sem uppi er, segir prófessor í sýklalyfjarannsóknum Til sölu: Tækjabúnaður til eggjaframleiðslu Ergo auglýsir til sölu innréttingar og tæki til eggjaframleiðslu sem samanstendur af hillum, búrum, færiböndum, vatns- og fóðurkerfum ásamt fóðursílóum sem koma úr þrotabúi. — Jansen Aviary varpkerfi með vatns- og fóðurkerfum og fráfæriböndum fyrir allt að 18.850 fugla. Jansen Poultry varpkerfi með vatns- og fóðurkerfum fyrir allt að 4.700 fugla. Jansen Nivo Varia gólfkerfi fyrir ungaeldi með vatns- og fóðurkerfum, u.þ.b. 15.000 ungar. Pökkunarstöð sem samanstendur af Sideliner 5 180 eggjaþvottavél, lýsingarvél, VDX 15000 eggjapökkunarvél og Pelbo eggjabrotsbúnaði. 4 stk. fóðursíló ásamt fóðursniglum. Búnaðurinn hefur verið tekinn niður og honum pakkað í 5 stk. 40 feta gáma. — Nánari upplýsingar veitir Ásmundur Guðnason hjá Ergo Sími: 440 4405 / Netfang: ag@ergo.is Krókhálsi 5g, Járnhálsmegin 587 5650 arentsstal.is arentsstal@arentsstal.is Um er að ræða framtíðarstarf á verkstæði í bæði inni- og útivinnu. Vinnutími frá 8.00–16.15. Hæfniskröfur: Æskilegt er að viðkomandi hafi sveinspróf/menntun eða reynslu af störfum tengdum járn- og rennismíði. Stundvísi. Sjálfstæð vinnubrögð, framtakssemi og jákvæðni. Góða þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum. Lyftararéttindi eða önnur vinnuvélaréttindi eru kostur. Upplýsingar eru í síma 587 5650 eða arentsstal@arentsstal.is Guðmundur, Magnús og Gauti. Starfsmaður óskast TÆKNI&VÍSINDI Í óhreinindum jarðvegsins þrífast ýmsar undraverðar örverur sem geta verið manninum til mikils gagns. Það virðist því vera heilmikið til í þeirri speki sem mjög er þekkt á Íslandi og segir: Af misjöfnu þrífast börnin best. Rafbíll í hleðslu. Ekki fer mikið fyrir hleðslubúnaðinum frá EO á húsveggnum á bak við bílinn. Mikil gerjun virðist vera í kringum rafbílavæðingu landsmanna um þessar mundir. Nýir og langdrægari bílar bætast stöðugt í bílaflóruna og tegundum búnaðar til hleðslu rafbíla fjölgar. Enn eitt fyrirtækið sem býður upp á búnað til hleðslu rafbíla er nú að hasla sér völl hér á landi. Þar er um að ræða Bresk-íslenska verslunarfélagið, sem flytur inn hleðslustöðvar frá breska framleiðandanum EO Charging undir merki EO Ísland. Áður hefur komið fram að Bændasamtök Íslands hafa tekið upp samstarf við ferðaþjónustubændur, Orkusetur og Hleðslu ehf. um uppbyggingu hleðslu á sveitabæjum. Hugmynd þessara samstarfsaðila er að byggja upp þjónustunet á meðal bænda og styrkja þannig innviði fyrir notkun rafbíla úti á landsbyggðinni. Hleðsla ehf. er umboðsaðili GARO hleðslustöðva á Íslandi og sérhæfir sig í lausnum fyrir hleðslu á rafmagnsbílum. Fyrirtækið byggir á reynslu starfsmanna við uppbyggingu innviða fyrir rafmagnsbíla í Noregi. Hefur fyrirtækið gert þjónustu- og uppsetningarsamning við Rafmiðlun hf. EO Ísland með sniðugt app Varðandi nýjasta fyrirtækið á þessum markaði, Bresk-íslenska verslunarfélagið, þá segir Gyða Jónsdóttir sölustjóri að þau séu að flytja inn rafbíla-hleðslustöðvar frá EO Charging í Bretlandi, bæði fyrir heimili og fyrirtæki. Er það gert undir nafninu EO Íslandi. Hún segir að einn helsti ávinningurinn varðandi þessar stöðvar sé EO-app sem rafbílaeigendur geta notað í gegnum venjulega snjallsíma til að tengja sig við rafmagn. Fjölmargar EO - Mini hleðslustöðvar í fjórum mismunandi litum. Stöðugt bætast við nýir möguleikar varðandi hleðslu rafbíla á Íslandi – EO Ísland með breskar stöðvar sem tengjast farsíma notenda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.