Bændablaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 9
9Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018
Drög að lands-
áætlun
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
hefur kynnt til umsagnar drög
að landsáætlun sem fjallar um
hvernig eigi að byggja upp helstu
innviði til verndar náttúru og
menningarsögulegum minjum.
Fjallar áætlunin um stefnumótun
vegna uppbyggingar innviða á
ferðamannastöðum, leiðum og
svæðum. Jafnframt er kynnt
verkefnaáætlun um þau verkefni
sem á að vinna á næstu þremur
árum.
Samhliða landsáætluninni eru
kynnt drög að umhverfisskýrslu í
samræmi við lög um umhverfismat
áætlana. /VH
Fundað um
grásleppu
Alþjóðlegur upplýsingafundur um
grásleppumál - LUROMA - var
haldinn í Reykjavík 2. febrúar
síðastliðinn. Fundurinn er árlegur
og var nú haldinn í 30. skiptið.
Landssamband smábátaeigenda
hafði veg og vanda að fundinum.
Snarpar umræður urðu um
málefnið á fundinum sem lauk með
samþykkt áskorunar til sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra. Í henni
kemur fram fullur stuðningur
við kröfu LS til atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytisins um að
beita sér fyrir endurskoðun á skýrslu
Hafrannsóknastofnunar. /VH
Vöruviðskiptin
óhagstæð
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofunnar fyrir janúar 2018
nam fob verðmæti vöruútflutnings
48,5 milljörðum króna.
Þá nam fob verðmæti vöruinn-
flutnings 53,9 milljörðum króna.
Vöruviðskiptin í janúar, reiknuð
á fob verðmæti, voru því óhagstæð
um 5,4 milljarða króna.
/VH
Atvinnuleysi 2,6%
Á fjórða ársfjórðungi 2017
voru að jafnaði 199.600
manns á aldrinum 16–74 ára
á vinnumarkaði. Af þeim voru
194.400 starfandi og 5.200 án
vinnu og í atvinnuleit.
Á vef Hagstofunnar segir að
atvinnuþátttaka hafi verið 81,2%,
hlutfall starfandi 79,1% en
atvinnuleysi 2,6%. Samanborið
við fjórða ársfjórðung 2016
fjölgaði starfandi fólki um 2.700
en hlutfall starfandi af mannfjölda
lækkaði um 1,8 prósentustig. Á
sama tíma fjölgaði atvinnulausum
lítillega, eða um 200 manns, og
hlutfall atvinnulausra af vinnuafli
hækkaði um 0,1 prósentustig.
Atvinnulausar konur voru 2.300 og
var atvinnuleysi á meðal kvenna
2,5%. Atvinnulausir karlar voru
2.900, eða 2,7%. Atvinnuleysi var
2,5% á höfuðborgarsvæðinu og
2,7% utan þess. /VH
Sala og ráðgjöf
Sími 540 1100
www.lifland.is
lifland@lifland.is
Reykjavík
Lyngháls
Borgarnes
Borgarbraut
Akureyri
Óseyri
Blönduós
Efstubraut
Hvolsvöllur
Ormsvöllur
GEA Mlone
“Fullt af nýjum hugmyndum og lausnum”
“Þegar við létum teikna fjósið töldum við að
búið væri að hugsa fyrir flestu sem skipti
máli. Við ákváðum samt að fá sérfræðing
frá Líflandi til þess að fara yfir teikningarnar
hjá okkur og ég sé ekki eftir því. Hann fór
yfir teikningarnar og benti okkur á fullt af
nýjum hugmyndum og lausnum sem voru
bæði hagstæðari og auðvelduðu alla umferð
gripa um fjósið. Þessar lausnir hafa einnig
sparað okkur mikla vinnu í fjósinu. Ég mæli
eindregið með því að panta viðtal hjá Líflandi
og fá ráðgjöf ef þú ert í þeim hugleiðingum að
breyta hjá þér.”
Hulda Sigurðardóttir, Stekkjarflötum.
Við viljum bjóða þér að fá fund með sérfræðingi okkar frá
GEA sem hefur aðstoðað fjölda við skiptavina okkar við að
endur skipuleggja og bæta sín fjós.
Á fundinum er farið yfir teikningar af fjósinu og viðraðar
hugmyndir að betra fyrirkomulagi, með tilliti til umferðar
gripa, vinnuhagræðingar og nýtingar mjaltaþjóna.
Hafðu samband við sölumenn okkar í síma 540 1100 eða
með tölvupósti á og
pantaðu tíma í ráðgjöf.
Bætum
fjósið
saman
GEA Monobox Mjólkurtankar
frá GEA
Margverðlaunaðar
mottur frá Kraiburg
Stálinnréttingar frá GEA
Sótt um lóð fyrir gagnaver á Blönduósi
Einkahlutafélagið Borealis Data
Center hefur sent skipulags-,
umhverfis- og umferðarnefnd
Blönduósbæjar umsókn um
lóð fyrir gagnaver á svæði
sem er í skipulagsferli við
Svínvetningabraut.
Uppi eru áform um að byggja tvö
hús á lóðinni á þessu ári, samtals um
1.200 fermetrar að stærð. Stefnt er
að því að reisa fleiri hús á sömu lóð
á komandi árum.
Nefndin tók jákvætt í erindi
frá félaginu og mælir með því við
byggðaráð að lóðinni verði úthlutað
til félagsins með fyrirvara um
samþykki Skipulagsstofnunar.
Borealis Data Center átti fund
með sveitarstjórn Blönduósbæjar
í júní í fyrra en fyrirtækið var að
leita að hentugri staðsetningu fyrir
gagnaver þar sem nægt landrými
væri og gott aðgengi að raforku.
Samkvæmt fundargerð
nefndarinnar verður fyrsta húsið
stálgrindarhús á steyptum sökkli
klætt með samlokueiningum. Húsið
verður um 16x40 og 640 fermetrar
að stærð. Næsta hús verður um
12x48, eða um 580 fermetrar.
Mikil vinna hefur farið
fram á Blönduósi við að kynna
sveitarfélagið sem ákjósanlegan
kost fyrir gagnaver. Búið er að
eyrnamerkja í aðalskipulagi
Blönduósbæjar rúmlega 270 hektara
lóð undir slíka starfsemi. Nálægðin
við Blönduvirkjun er mikill kostur
og engin náttúruvá er á svæðinu.
/MÞÞ