Bændablaðið - 22.02.2018, Page 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 22. febrúar 2018
hafa verið gerðir samningar við
bændurna í nágrenni kúabúanna
um öflun gróffóðursins. Afgasaðri
mykju hvers kúabús fyrirtækisins er
svo ekið til viðkomandi bónda sem
sér um gróffóðuröflunina og nýtist
hún því afar vel. Segja má að öll
kúabú Modern Dairy séu nokkuð
nálægt hvert öðru og er staðsetning
þeirra bæði valin út frá mögulegum
kaupum á gróffóðri en einnig
með tilliti til markaðssetningar
mjólkurafurða. Búin eru því
öll nokkuð nálægt Peking og
staðsett í 7 mismunandi héruðum
í austurhluta Kína. Líklega eru ekki
nema um 1.500 km á milli þeirra
kúabúa Modern Dairy sem eru
lengst frá hvert öðru en rétt er að
minna á í þessu sambandi að Kína
er um 9,6 milljónir ferkílómetrar
að stærð svo heimamönnum þykja
t.d. þúsund kílómetrar ekki sérlega
mikil vegalengd!
Á hlutabréfamarkaði
Árið 2010 var fyrirtækið sett á
almennan hlutabréfamarkað í
Hong Kong og varð það þá fyrsta
mjólkurframleiðslufyrirtækið í
heiminum sem var á markaði.
Síðustu árin hefur reksturinn verið
í járnum og varð það til þess að
fyrir tveimur árum keypti kínverska
afurðafélagið Mengniu, sem er
næststærsta afurðafyrirtæki Kína
og að hluta í eigu afurðafélagsins
Arla, meirihlutaeigana hlutafjárins
í Modern Dairy. Mengniu er nú
að breyta rekstrinum á Modern
Dairy frá því að vera með litlar
afurðastöðvar reknar á hverju kúabúi
yfir í að reka búin sem hefðbundin
kúabú.
Mjólk er nú sótt á öll búin
daglega og henni ekið yfir í næstu
afurðastöð Mengniu. Þetta á þó
ekki við um kúabúið Bengbu, en
það er langstærsta kúabúið í Kína
með 20 þúsund mjólkurkýr, þar sem
stærðin gerir það að verkum að það
er hagkvæmt að reka afurðastöð á
sama blettinum og kúabúið.
Skipulögð eins
Það er afar áhugavert að heimsækja
kúabú Modern Dairy enda eru þau
öll byggð upp með svipuðum hætti
og á svipaðri hugmyndafræði. Búin
eru byggð þannig upp að gönguleiðir
kúa til og frá mjaltaaðstöðu séu
sem stystar og að auðvelt sé að aka
vörum til og frá búunum. Skipulag
Bengbu kúabúsins er dæmigert fyrir
þá uppsetningu á fjósum og annarri
aðstöðu sem hér um ræðir og sést
þessi hönnun vel á meðfylgjandi
mynd.
Ótal flokkar kúa
Þegar fjöldi kúa skiptir þúsundum
eða tugum þúsunda á einu og sama
kúabúinu liggur beint við að búa til
mismunandi framleiðsluhópa og er
kúnum á Bengbu kúabúinu bæði
skipt upp í hópa eftir afurðastigi
en einnig eftir stöðu á mjaltaskeiði.
Þannig er einn hópur með kúm
frá burði og fyrstu 21 dagana eftir
burð, næsti hópur fram að staðfestu
fangi og svo er næsti hópur megin
framleiðsluhópurinn. Sá hópur
heldur sér fram undir geldstöðu
en svo eru kýrnar settar í tvo
geldstöðuhópa eftir því hve langt
er í væntanlegan burð. Innan hvers
framleiðsluhóps er kúnum svo skipt
upp í tvo flokka eftir daglegri nyt;
yfir og undir 30 kílóum á dag.
Smitgát er mikilvæg
Það er alls ekki einfalt að vera með
þúsundir af kúm á einu og sama
kúabúinu enda í raun kjöraðstæður
fyrir bakteríur að halda velli vegna
þess hve gripirnir eru margir. Þessi
þéttni á gripum getur verið erfið
viðureignar og jafnvel þó svo að
plássið sem hver gripur fær og hefur
aðgengi að sé það sama og á minni
búum þá vofir alltaf yfir ákveðin
hætta á því að smitsjúkdómar geti
komið upp.
Vegna þessa er smitgát á
kúabúum Modern Dairy afar mikil
og t.d. fer enginn inn á kúabúið
nema með því að skipta um föt
og fara í sturtu og skiptir þar
engu máli hvort er um starfsfólk
að ræða eða þjónustuaðila. Allir
fara í föt viðkomandi bús eftir að
hafa farið í sturtu. Þá eru allir bílar
stótthreinsaðir við komu á búið
og strangt eftirlit haft með öllum
aðföngum.
Margir fastráðnir dýralæknar
Modern Dairy er með rúmlega 5
þúsund starfsmenn í dag og vinna
þeir bæði við kúabúskapinn sjálfan
sem og við þá afurðavinnslu sem
enn er starfrækt og vegna stærðar
kúabúanna eru margir fastráðnir
dýralæknar í vinnu og eru nokkrir
við störf á hverju búi. Þessi staða
gerir það að verkum að afar vel
er staðið bæði að burðarhjálp og
annarri aðstoð við skepnurnar
og eru t.d. sólarhringsvaktir hjá
dýralæknum á Bengbu kúabúinu
svo viðbragðstími þeirra er afar
stuttur ef einhver gripur þarf á
læknisþjónustu að halda.
Vegna umfangs rekstursins
er Modern Dairy einnig með
rannsóknastofur á þeirra vegum
sem sjá um ræktun júgurbólgugerla
og sjá auk þess um allskonar
gæðaeftirlit innan búanna s.s. á
mjólkurafurðum. Vegna stærðar
landsins og dreifð kúabúa Modern
Dairy er ekki hagkvæmt að vera
einungis með eina rannsóknastöð
og því er fyrirtækið bæði með
rannsóknastöð norðan og sunnan
við Peking.
Með eigin ráðgjafarþjónustu
Eins og gefur að skilja hafa ótal
fyrirtæki sem eru í sölu og þjónustu
mikinn áhuga á samstarfi við
Modern Dairy enda eftirsóknarvert
að geta getið þess við viðskiptavini
sína að vera með eitt stærsta
mjólkurframleiðslufyrirtæki heims
í viðskiptum. Vegna þessarar
stöðu, og stærðar Modern Dairy,
er fyrirtækið með allmarga
sérfræðinga í vinnu og segja má
að þeir myndi sameiginlega eigin
ráðgjafaþjónustu fyrirtækisins.
Þannig er fyrirtækið t.d. með
sinn eigin yfirdýralæknir
sem sér um stefnumótun
varðandi meðhöndlanir og
sér um endurmenntun annarra
dýralækna fyrirtækisins. Þá er sér
fóðurráðgjafadeild sem sér um að
gera allar heilfóðuruppskriftir fyrir
hvert bú, gera fóðurathuganir og
mælingar, innkaup á fóðri o.þ.h. Þá
kaupir fyrirtækið ráðgjafarþjónustu
á sviði kynbóta og frjósemi og nýtur
auk þess ráðgjafar frá Mengniu og
Arla varðandi mjólkurgæðamál og
júgurheilbrigði.
Ekki frekari stækkun
Eins og áður sagði er Modern
Dairy með 15 kúabú þar sem
mjólkurframleiðsla fer fram
og nemur dagleg framleiðsla
fyrirtækisins 3,3 milljónum lítra og
þar af framleiðir stærsta búið nærri
hálfa milljón lítra. Forsvarsmenn
og eigendur fyrirtækisins hafa nú
ákveðið að ekki verði um frekari
stækkun að ræða í bráð og að á
næstu 2–3 árum verði fyrst og
fremst horft til aukinnar innri
hagræðingar og eflingar þeirra
framleiðslutækja sem nú þegar
eru til staðar. Er þar sérstaklega
horft til aukinna afurða kúnna
en meðalnytin er ekki nema rétt
rúmlega 9,5 tonn, sem þykir ekki
mikið þegar Holstein kýr eru
annars vegar sem mjólkaðar eru
þrisvar á dag.
Fagráð í sauðfjárrækt stendur
fyrir opnum fagráðsfundi föstu-
daginn 2. mars næstkomandi.
Fundurinn verður haldinn í
Bændahöllinni við Hagatorg
og hefst klukkan 12.30.
Markmið fundarins er að kynna
helstu verkefnin sem fagráð hefur
hvatt áfram að undanförnu og ræða
framþróun málefna sem tengjast
sauðfjárræktinni. Kynntar verða
rannsóknarniðurstöður, staða
verkefna rædd og færðar fréttir af
erlendum vettvangi og nýjungum
í kynbótum. Til umfjöllunar
verður m.a. verkefni er tengjast
gæðum lambakjöts, þróun
kynbótamats fyrir þunga lamba,
hagnýting erfðamengisúrvals
í kynbótum, rannsóknir á
öndunarfærasjúkdómum og
fósturláti í gemlingum svo
eitthvað sé nefnt. Allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Opinn fagráðsfundur 2. mars
Inngangur
Verkefni fagráðs
Gunnar Þórarinsson, formaður Fagráðs í sauðfjárrækt
Ræktunarmarkmið fyrir íslenska sauðfjárstofninn uppfærð.
Eyþór Einarsson, RML
Gæði lambakjöts
Rannsóknir á gæðum lambakjöts – kynning á niðurstöðum
Guðjón Þorkelsson, MATÍS og Emma Eyþórsdóttir, LBHÍ
Viðhorf neytenda – hvað má betur fara?
Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Icelandic lamb
Sýn sláturleyfishafa á gæði lambakjöts og gæðamati
framtíðarinnar
Bára Eyfjörð Heimisdóttir, flytur erindi sem heitir: Sýn
sláturleyfishafa á gæði lambakjöts og gæðamati framtíðarinnar.
Þróun kynbótamats fyrir þunga lamba
Kynning á niðurstöðum verkefnis
Elsa Albertsdóttir, BÍ
Kaffihlé
Sheep breeders round table 2017
Helstu niðurstöður frá ráðstefnu breskra sauðfjárbænda
Eyjólfur Ingvi Bjarnason RML, Emma Eyþórsdóttir LBHÍ og
Eyþór Einarsson RML.
Nýjar aðferðir í kynbótum
Hagnýting erfðamengisúrvals í kynbótum
Baldur Helgi Benjamínsson, BÍ
Rannsóknir á sauðfjársjúkdómum
Rannsóknir á öndunarfærasjúkdómum og fósturláti í gemlingum
Charlotta Oddsdóttir, LBHÍ
Almennar umræður
Fundi slitið 17.00
Dagskrá
Mynd / SS
Led húsnúmer
Falleg húsnúmer · sérsmíðum númer á öll hús
· Sendu okkur mynd þegar þú ert búinn að setja þitt húsnúmer upp
Best er að panta í gegnum facebooksíðuna okkar.
Einnig hægt að hringa í sími 789 3010
· Ledlýsing sem endist og eyðir litlu rafmagni
· Hægt að fá í lituðu áli eða ryðfríu stáli
· Verið velkomin á facebooksíðu okkar: Led húsnúmer
· Sendu okkur mynd þegar þú ert búinn að setja þitt húsnúmer
upp og við setjum það á facebooksíðuna okkar
Smiðjuvegur 30, 200 Kópavogur