Bændablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. apríl 2018
Árlega hafa sæðingastöðvarnar
veitt verðlaun til ræktenda þeirra
sæðingastöðvahrúta sem þótt hafa
skarað fram úr sem kynbótagripir.
Annars vegar eru veitt verðlaun
fyrir besta lambaföðurinn og hins
vegar fyrir mesta kynbótahrútinn.
Það er faghópur sauðfjárræktar
hjá RML sem velur hrútana og mótar
reglur um val þeirra.
Besti lambafaðirinn
Við val á besta lambaföðurnum er
horft til útkomu þeirra hrúta sem
skiluðu 100 eða fleiri fullstigðuum
hrútum í gegnum sæðingar sl. haust.
Hrúturinn þarf að ná 110 stigum í
BLUP kynbótamati fyrir gerð og
fitu og að lágmarki 95 stigum
fyrir frjósemi og mjólkurlagni.
Þungaeinkunn hrútsins þarf að
vera yfir 105. Sérstaklega er horft
til niðurstaðna úr ómmælingum og
stigun lambanna.
Í ár var það Börkur 13-952
frá Efri-Fitjum sem hampar
verðlaununum. Hann er ræktaður
af þeim Gunnari Þorgeirssyni og
Grétu Brimrúnu Karlsdóttur. Börkur
hlaut eftirfarandi umsögn:
„Besti lambafaðir sæðinga-
stöðvanna veturinn 2016 til 2017
er Börkur 13-952 frá Efri-Fitjum í
Fitjárdal, Vestur-Húnavatnssýlsu.
Val hans byggir á niðurstöðum úr
lambaskoðunum og kjötmati haustið
2017.
Börkur er sonur Birkis 10-893
frá Bjarnastöðum. Í æðum hans
rennur talsvert Hestsblóð, en Þráður
06-996 frá Hesti er móðurfaðir hans
og einnig má finna Hörva 92-972 í
bakættum í gegnum Ljóra 95-828
frá Þóroddsstöðum. Þessar ættlínur
hafa blandast með frábærum hætti
við það öfluga afurðafé sem ræktað
er á Efri-Fitjum.
Börkur var fenginn til notkunar
á sæðingastöðvunum haustið 2015
að aflokinni afkvæmarannsókn fyrir
úrvalshrúta í Miðfjarðarhólfi sem
fram fór á Þóroddsstöðum. Er hann
annar hrúturinn úr þeirri rannsókn
sem vinnur til þessara verðlauna.
Börkur var tvo vetur á stöð, fékk
strax mikla notkun og var mest
notaði hrútur stöðvanna veturinn
2016 til 2017.
Afkvæmi Barkar eru jafnan
fremur bollöng og vel gerð hvar
sem á þeim er tekið. Þau búa yfir
mikilli holdfyllingu, eru hóflega
feit og geysilega þroskamikil.
Stendur hann nú í 115 stigum í
kynbótamati fyrir gerð, 111 stigum
fyrir fitu og með fallþungaeinkunn
upp á 147. Þá er hann ákaflega
lofandi sem ærfaðir og er hann
því einn af mestu kostagripum
stöðvanna til framræktunar á
helstu úrvalseiginleikum. Því
miður er hann fallinn en Börkur
var frábær kynbótahrútur sem
hlýtur með sóma nafnbótina „besti
lambafaðirinn“ framleiðsluárið
2017.“
Mesti kynbótahrúturinn
Kynbótahrúturinn þarf bæði að
hafa verið góður lambafaðir og
ærfaðir. Meðal krafna sem til
hans eru gerðar er að hann eigi
a.m.k. tvo árganga af dætrum
sem komið hafa til uppgjörs og
eru tilkomnar í gegnum sæðingar.
Hann hafi að lágmarki 105 stig í
BLUP kynbótamati fyrir gerð og
mjólkurlagni og 100 stig fyrir fitu
og frjósemi.
Kynbótahrúturinn árið 2018
er Váli frá Gunnarsstöðum í
Þistilfirði. Ræktandi hans eru
Gunnarsstaðir sf.. Váli hlaut hann
eftirfarandi ummæli:
„Mesti alhliða kynbótahrútur
sæðingastöðvanna árið 2018 er
Váli 10-907 frá Gunnarsstöðum í
Þistilfirði.
Váli kom til notkunar á
sæðingastöð sumarið 2013 og var
valinn þangað eftir að hafa sýnt
góðan árangur sem lambafaðir
heima á Gunnarsstöðum. Váli er
undan Stála 06-831 en í móðurætt
má m.a. finna sæðingahrútana
Leka 00-880 og Bút 93-982 ásamt
valinkunnum heimahrútum.
Váli var notaður á
sæðingastöðvunum í tvo vetur og
eru skráðar alls 1.099 sæddar ær við
honum í Fjárvísi. Til fullnaðardóms
komu 254 lambhrútar og 407
gimbrar.
Í samanburði sæðinga stöðvahrúta
eru afkvæmi Vála í góðu meðaltali
hvað varðar gerð þeirra en meiri
breytileiki þó í hrútum heldur en í
gimbrum hvað það varðar. Styrkur
afkvæma hans hefur fremur legið í
hagstæðara kjötmati en mælingum
á lifandi lömbum auk góðs þroska
þeirra og hóflegrar fitusöfnunar.
Sem ærfaðir eru kostir Vála sem
kynbótahrúts ótvíræðir en dætur
hans eru ágætlega frjósamar og
mjög öflugar afurðaær og sýndu
þær strax þann eiginleika skýrt
sem lambgimbrar. Hróður Vála
sem ærföður hefur vaxið æ síðan.
Hann á nú um 400 dætur samkvæmt
skýrsluhaldi Fjárvíss.
Váli 10-907 er hér með útnefndur
„mesti kynbótahrútur stöðvanna
2018“ og ber þann titil með sóma.“
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
RÚÐUR Í MIKLU ÚRVALI
John Deere
Zetor
Case IH
McCormick
Steyr
Claas
Ford
Fiat
New Holland
Deutz-Fahr
Massey Ferguson
EIGUM TIL Á LAGER RÚÐUR Í FLEST ALLAR
GERÐIR DRÁTTARVÉLA – FRÁBÆR VERÐ
SÉRPÖNTUM RÚÐUR Í ALLAR GERÐIR
DRÁTTARVÉLA MEÐ SKÖMMUM FYRIRVARA
Sæðingahrútar verðlaunaðir
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Eyþór Einarsson
ábyrgðarmaður í
sauðfjárrækt
ee@rml.is
Börkur 13-952 frá Efri-Fitjum hampar verðlaununum sem besti lambafaðirinn.
Váli 10-907 er útnefndur mesti kynbótahrútur sæðingastöðvanna 2018.