Bændablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 10

Bændablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. apríl 2018 Komist hefur upp um kjötsvindl í Belgíu þar sem útrunnið og jafnvel ónýtt kjöt hefur verið flutt út undir fölskum vottorðum til Hong Kong, Fílabeinsstrandarinnar og til Kosovo. Var kjötinu dreift í gegnum matvælafyrirtækið Veviba sem staðsett er í Wallonia-héraði í Belgíu. Það voru samtök sláturhúsa, bænda, kjötiðnaðarins og heildsala í Belgíu (FEBEV) sem upplýsti um málið á dögunum. Er þetta enn eitt dæmið um kjötsvindl þar sem gæðavottunarkerfi matvælaiðnaðarins í ESB-ríkjunum er misnotað og falsaðir pappírar notaðir. Stutt er síðan fréttir bárust frá Írlandi um grun um að verið væri að selja á svörtum markaði kjöt af sjálfdauðum og sjúkum dýrum sem átti að farga. Gáfu samtökin út sameiginlega yfirlýsingu í kjölfar upplýsinga frá belgíska matvælaeftirlitinu (AFSCA) um málið. Í yfirlýsingu AFSCA kemur fram að útrunnið og jafnvel óætt kjöt hafi verið sent af Veviba undir fölskum pappírum til Hong Kong, Fílabeinsstarndarinnar og til Kosovo. Refsinga krafist „Það verður að ávíta þetta fólk og refsa því fjárhagslega,“ sagði Dirk Dobbelaere, yfirritari hjá samtökum kjötiðnaðarins í Belgíu. Michael Gore, talsmaður FEBEV, sagði að megnið af kjötinu hafi verið flutt út frosið. Eigi að síður hafi um 100 kg af ófrosnu kjöti líka verið í þessum sendingum. Kjötinu hafi verið blandað í hakk-kjötrétti, að því er fram kemur í Global Meat News. Rætt er um að yfirvöld verði að bregðast hratt við ef takast eigi að endurheimta tiltrú almennings á markaðnum og að fólk geti treyst því kjöti sem það kaupir í stórmörkuðum. Er þetta ekki síst athyglisvert fyrir Íslendinga í ljósi þess að innflytjendur matvæla á Íslandi hafa iðulega fullyrt að hættan á að verið sé að flytja inn lélega, hættulega eða svikna vöru sé mjög lítil. Hefur þar verið bent á öryggið sem felst í opinberum vottorðum sem vörunni fylgir, en það er einmitt þetta eftirlitskerfi sem hefur ítrekað verið svindlað á. Dreifingarfyrirtæki með 30% markaðshlutdeild Í úttekt AFSCA sem gerð var í febrúar kom í ljós að á 133 af 200 vörubrettum frá Veviba var kjöt sem stóðst ekki kröfur matvælaeftirlitsins. Þetta er fyrirtæki sem er með 30% hlutdeild á kjötmarkaði í Belgíu og selur m.a. í stórverslanirnar Coilruyt og Delhaize. Menn verða að spyrja spurninga Haft er eftir Gore að ekki væri endilega þörf á meira eftirliti en skoða yrði hvernig því besta yrði betur náð út úr því kerfi sem er við lýði. Hann sagði að á endanum væru allir ábyrgir fyrir því að öll matvælakeðjan virki rétt. Þar verði menn að spyrja spurninga. Ef verið sé að koma vöru á markað á verði sem sé of gott til að vera satt, þá eigi menn að spyrja spurninga. „Er þetta lögformlega mögulegt og getum við ekki komið á einn stað einhvers konar samskiptakerfi til að varpa ljósi á svona hluti?“ spurði Gore. Fagnaði Gore einnig fyrirhugaðri rannsókn yfirvalda í Belgíu á mismunandi verðmyndun í matvælakeðjunni. /HKr. Kjötskandall í Belgíu og krafist aukins eftirlits: Útrunnið og ónýtt kjöt selt úr landi undir fölskum pappírum – Blandað saman við hakk og kjötrétti í þrem löndum í Evrópu, Afríku og Kína Þau tímamót urðu í byrjun marsmánaðar að íbúafjöldi í Skútustaðahreppi fór í fyrsta skipti frá árinu 1993 í 500 manns, samkvæmt mannfjöldatölum frá Hagstofu Íslands. Íbúarnir eru nú alls 505 talsins. Frá árinu 2013 hefur íbúum í Skútustaðahreppi fjölgað úr 370 í 505, eða um 36,5%. Á rúmlega einu ári hefur íbúum fjölgað um tæp 19%, eða úr 425 í 505. Um 130 manns hafa annað ríkisfang en íslenskt, eða um fjórðungur. Íbúarnir voru flestir 1980 Íbúafjöldi í Skútustaðahreppi hefur sveiflast nokkuð í gegnum tíðina. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru þeir fæstir 276 talsins árið 1910 en flestir árið 1980, eða 547 sem var í miðjum Kröflueldum. Þetta var á árum Kísiliðjunnar og hélst fólksfjöldinn yfir 500 allt til ársins 1994 en þá fór hann niður í 497 íbúa. Eftir það fækkaði íbúum smátt og smátt. Kísiliðjunni var lokað í nóvember 2004 en þá voru íbúar 442. Í kjölfarið fór að halla verulega undan fæti og fór fólksfjöldinn niður í 370 árið 2013. Síðan þá hefur þróunin snúist við. Jákvæð áskorun fyrir sveitarfélagið Þessi fjölgun í Skútustaðahreppi helst í hendur við öflugt atvinnulíf. Harðduglegir og útsjónarsamir Mývetningar hafa byggt upp í sameiningu öflugt sveitarfélag. Íbúafjölgunina undanfarin ár má án nokkurs vafa fyrst og fremst rekja til uppgangs ferðaþjónustunnar og að hún er orðin að heilsárs atvinnugrein í meira mæli en áður. Ungt fjölskyldufólk hefur flutt í sveitina og erlendu vinnuafli fjölgar. Þessi mikla fólksfjölgun þrýstir á innviði sveitarfélagsins. En þetta er fyrst og fremst jákvæð áskorun fyrir sveitarfélagið, segir í frétt á heimasíðu Skútustaðahrepps. Íbúi nr. 500 í Skútustaðahreppi er Jónas Þór Ingólfsson, sem flutti lögheimili sitt nýverið í Helluvað. Hann er uppalinn í Mývatnssveit, fór suður að mennta sig sem mannvirkjajarðfræðingur en er nú snúinn aftur í heimahagana. /MÞÞ Íbúar í Skútustaðahreppi orðnir ríflega 500 talsins: Öflugt atvinnulíf og upp- gangur í ferðaþjónustu Hlaða með hraðhleðslu fyrir rafbíla hefur verið tekin í notkun í Skútustaðahreppi, hún er staðsett við Fosshótel í Reykjahlíð. Með opnun hraðhleðslustöðvarinnar hefur ON varðað allan hringveginn hlöðum. Friðrik Jakobsson, sem starfar við ferðaþjónustu í Mývatnssveit, fékk sér fyrstu hleðsluna þegar stöðin var formlega tekin í notkun. Viðstaddir voru þeir Þorsteinn Gunnarsson sveitarstjóri og Bjarni Már Júlíusson, framkvæmdastjóri ON, sem kvaðst vonast til þess að tímamótin hvetji ekki einungis landsmenn til að skipta yfir í rafmagn í samgöngum heldur ekki síður ferðafólk. Auk hraðhleðslunnar við Fosshótel í Reykjahlíð er þar líka hefðbundin AC hleðsla. Á milli Mývatns og Egilsstaða eru 165 kílómetrar og þar á milli er hlaða ON á Skjöldólfsstöðum í Jökuldal. Hún er nú búin AC hleðslu sem verður uppfærð fyrir sumarið. Vorið 2017 opnaði ON leiðina milli Akureyrar og Reykjavíkur og hefur ekki látið deigan síga síðan. Hlöður ON eru nú 31 talsins og á næstu vikum og mánuðum bætast um 20 við, á höfuðborgarsvæðinu og í öllum öðrum landshlutum. Aukin umferð eykur kolefnisspor Mikil fjölgun ferðamanna síðustu ár hefur gert það að verkum að kolefnisspor samgangna á landi hefur vaxið, þvert á markmið um minnkað kolefnisspor. Margt ferðafólk leigir sér bíl og ferðast á eigin vegum. Talið er að ríflega 20 þúsund bílaleigubílar séu í landinu og kolefnisspor þeirra sé meira en 100 þúsund tonn kolefnisígilda á ári. Til samanburðar eru rafbílar hér á landi um fimm þúsund eftir að hafa fjölgað um nálægt þrjú þúsund á árinu 2017. Mikil tækifæri Bjarni Már telur að sóknarfæri séu nú fyrir þessa öflugu atvinnugrein og segir ON hvergi nærri hætt sinni uppbyggingu á innviðum fyrir orkuskipti í samgöngum. Nýlegar kannanir sýni að Íslendingar séu tilbúnari en flestar aðrar þjóðir til að skipta yfir í rafbíl og gera það fyrr. ON muni því halda áfram að gera sitt besta til að auðvelda landsmönnum slíka ákvörðun. / MÞÞ Hringvegurinn opinn rafbílaeigendum: Hraðhleðslustöð fyrir rafbíla opnuð í Mývatnssveit Sveitarfélögum fækkar um tvö: Kosið verður um nafn í nýju sveitarfélagi á Garðskaga FRÉTTIR Enn eitt svindlið með sölu í ESB löndunum skekur nú markaðinn í Belgíu. Þar var útrunnið og ónýtt kjöti selt úr landi á fölskum pappírum og nýtt í hakk og tilbúna rétti í þrem löndum. Mynd / Global Meat sitt nýverið í Helluvað. Myndin er tekin við Vaðlaheiðargöng þar sem Jónas Þór starfar. Sveitarfélögum landsins fækkar um tvö eftir næstu sveitarstjórnarkosningar og verða þá alls 72. Íbúar Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar samþykktu sameiningu sveitarfélaganna laugar- daginn 24. mars og 11. nóvember síðastliðinn hafði verið samþykkt sameining sveitarfélaganna Garðs og Sandgerðis. Atkvæðagreiðsla um nafn nýs sveitarfélags á Garðskaga Íbúafjöldi í sameinuðu sveitarfélagi Garðs og Sandgerðis verða um 3.200 en heldur fleiri íbúar eru í Sandgerði, eða um 1.700 á móti um 1.500 í Garðinum. Fram undan er atkvæðagreiðsla um nýtt nafn hins sameinaða sveitarfélags en nokkrar tillögur um nafn verða lagðar fram innan tíðar. Nefnd sem undirbýr atkvæðagreiðsluna kallaði eftir tillögum frá íbúum og bárust alls 392 tillögur. Um 5.000 íbúar eftir sameiningu Fjarðabyggðar og Breiðdalshrepps Íbúafjöldi Fjarðabyggðar eftir sameininguna við Breiðdalshrepp verður tæplega 5.000 en nú búa í Fjarðabyggð kringum 4.800 íbúar og 182 í Breiðdalshreppi. Í Breiðdalshreppi samþykktu 100 manns sameininguna, eða 85% þeirra sem greiddu atkvæði, en á kjörskrá voru 155 og kjörsókn var 64,5%. Í Fjarðabyggð var 36% kjörsókn og samþykktu 87% sameininguna. Árið 1950 voru sveitarfélögin 229 og hefur þeim fækkað í nokkrum skrefum. Árin 1994 til 2006 var mikið um sameiningar og fækkaði sveitarfélögum þá úr 196 í 79 og síðan í 74 með síðustu sameiningum. /MÞÞ Frá vinstri: Áslaug Thelma Einarsdóttir, Bjarni Már Júlíusson og Friðrik Jakobsson við opnun hlöðunnar við Fosshótel í Reykjahlíð. Mynd / On
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.