Bændablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 12

Bændablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. apríl 2018 Andri Guðmundsson frá Selfossi hefur verið ráðinn nýr forstöðumaður Skógasafns undir Eyjafjöllum. Hann tekur við starfinu af Sverri Magnússyni sem lætur af störfum sökum aldurs. Andri tekur við nýja starfinu 1. júlí í sumar. Hann hefur unnið á Skógasafni frá 2015 og tekið þátt í flestu sem tengist faglegu safnastarfi og hefur starfað með fólki með þverfaglegan bakgrunn. „Starf forstöðumanns leggst vel í mig. Það er margt sem ég þarf að koma mér inn í svo breytinga er ekki að vænta fyrst um sinn. Það sem ég hef í öndvegi er að halda áfram með það góða starf sem hér hefur verið unnið og leiða safnið áfram inn í framtíðina,“ segir Andri. Á síðastliðnum tveimur árum fór gestafjöldinn á safninu yfir 73 þúsund manns á ári. Stöðugildi á safninu eru tólf en á sumrin fjölgar starfsmönnum töluvert. Andri er með M.Sc í hagnýtri menningarmiðlun frá HÍ og með BA-próf í þjóðfræði frá HÍ, auk þess að vera stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurlands. /MHH Gagnaveita Reykjavíkur og Sveitarfélagið Árborg hafa gert með sér samkomulag um ljósleiðaravæðingu alls þéttbýlis í sveitarfélaginu en það er Selfoss, Stokkseyri og Eyrarbakki. Verkefninu verður lokið á næstu þremur árum. Með framkvæmdunum munu heimilum í þessum byggðakjörnum standa til boða eitt gíga gæðasamband ljósleiðarans, sem gefur kost á 1000 megabitum til og frá heimili. Flest stærstu fjarskipta- og afþreyingarfyrirtæki landsins bjóða þjónustu sína um ljósleiðarann og viðskiptavinum stendur til boða val á milli fjölmargra þjónustuleiða Vodafone, Nova, 365, Hringdu og Hringiðunnar. Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Árborgar, fagnar samkomulaginu um ljósleiðarann. Sjálfsagður hlutur „Öflug fjarskiptatenging er orðin jafn sjálfsagður hlutur í nútíma sveitarfélagi og vatn, rafmagn og fráveita. Íbúum Árborgar fjölgar hratt og við erum ánægð með að fá ljósleiðarann í hverja íbúð í bænum. Atvinnulíf verður hér líka samkeppnishæfara með bættum fjarskiptatengingum og við sjáum fram á gróskumikinn vöxt í sveitarfélaginu með því að þjónusta við íbúa og atvinnulíf eflist með tilkomu ljósleiðarans. Árborg kemst í fremstu röð sveitarfélaga í þessu tilliti.“ /MHH Ljósleiðari inn á öll heimili í Árborg FRÉTTIR Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson Skógasafn undir Eyjafjöllum: Andri Guðmundsson er nýr forstöðumaður Áfangaáætlun á Vestfjörðum: Vinna við lokaáfanga á fullu skriði Vinna við áfangastaðaáætlun á Vestfjörðum er á fullu skriði. Lokaáfangi verkefnisins er hafinn en áætluninni verður skilað inn til Ferðamálastofu í vor. Síðasti opni fundurinn vegna áfangastaðaáætlunar á Vestfjörðum var haldinn í lok febrúar síðastliðinn á Patreksfirði. Við gerð áfangastaðaáætlunar á Vestfjörðum hefur landshlutanum verið skipt í þrjú svæði. Til að draga fram áherslur og þarfir á hverju svæði fyrir sig hafa verið haldnir opnir fundir á Ísafirði, Patreksfirði og á Hólmavík. Á þessum fundum hefur verið farið yfir atriði sem tengjast vinnunni við gerð áfangastaðaáætlunar og aðgerðaáætlun sem hún felur í sér, og verkefnum hagsmunaaðila forgangsraðað. Að auki hafa sveitarfélög á Vestfjörðum verið fengin til að forgangsraða verkefnum á sínum svæðum sem og á Vestfjörðum í heild. Heilsárssamgöngur í forgang Á opna fundinum á Patreksfirði voru dregnar fram áherslur hagaðila á forgangsröðun aðgerða. Mikil og góð umræða skapaðist á fundinum um þau verkefni sem þykja þörf á svæðinu. Kosið var um hvaða verkefni þóttu brýnust og hlutu málefni sem tengjast heilsárssamgöngum á svæðinu mörg atkvæði. /MÞÞ Íbúar í Borgarfirði eystri: Vilja slitlag um Njarðvíkur- skriður strax í sumar Þrír íbúar og fulltrúar sveitar- félagsins Borgarfjarðar eystri afhentu Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, lista með 2.461 nafni þess efnis að ráðherra setti Borgarfjarðarveg nr. 84 á samgönguáætlun. Þau Steinunn Káradóttir, Eyþór Stefánsson og Óttar Már Kárason afhentu ráðherra listann en í áskoruninni til ráðherra segir: Byrjað verði á slitlagi nú í sumar „Við leggjum til að hafist verði handa við að leggja bundið slitlag um Njarðvíkurskriður sumarið 2018 samhliða öðrum framkvæmdum þar og að aðrir hlutar vegarins verði síðan malbikaðir í kjölfarið.“ Endurbætur brýnar Þremenningarnir sögðu brýnt að hefjast sem fyrst handa við endurbætur á Borgarfjarðarvegi, samfélagið þar krefðist þess enda væri mikilvægt að tryggja íbúum greiða leið milli Borgarfjarðar eystri og Héraðs. Sigurður Ingi tók undir mikilvægi þess að hefja umræddar endurbætur og kvaðst fara yfir málið, að því er fram kemur í frétt á vef stjórnarráðsins. /MÞÞ Tillaga frá aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda: Gæðastýringar- og býlisstuðnings- greiðslur verði frystar í fjögur ár Á nýliðnum aðalfundi Lands- samtaka sauðfjárbænda (LS) var samþykkt tillaga úr endur- skoðunarnefnd um breytingar á greiðslu fyrir komulagi til sauðfjárbænda frá gildandi samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktar milli ríkis og sauðfjárbænda. Í þeim er meðal annars gert ráð fyrir að stuðningsgreiðslur vegna gæðastýringar og býlisstuðnings verði frystar á hverri jörð frá og með árslokum 2018 til ársins 2023. Unnsteinn Snorri Snorrason, framkvæmdastjóri LS, segir að tillagan gangi fyrst og fremst út á að frysta greiðslur í samningnum með ákveðnum undantekningum og með það að markmiði að minnka framleiðsluhvata. Tillagan verði höfð að leiðarljósi við endurskoðun sauðfjársamnings. Brostinn rekstrargrundvöllur Í ályktun fundarins vegna tillögunnar segir að þetta sé gert vegna hruns í afurðaverði og þar af leiðandi brostins rekstrargrundvallar sauðfjárbúa. Er gert ráð fyrir að greiðslurnar verði frystar eins og þær líta út í ársáætlun 2018, en samt með viðmið í framleiðslu betra ársins í afkomu af árunum 2016 og 2017. „Greiðslur verði skilyrtar við búsetu og atvinnurekstur á viðkomandi jörð. Greiðslumark verði áfram framseljanlegt og geta greiðslur þess vegna flust búa á milli í samræmi við viðskipti bænda þar um. Framlög samkvæmt samningnum árin 2019, 2020, 2021 og 2022 verði þau sömu og árið 2018 að teknu tilliti til verðlagsbreytinga og vatnshalla samnings,“ segir í ályktuninni. Gert er ráð fyrir að ásetnings- hlutfall fari ekki undir 0,5 en einstökum bændum verði heimilt að draga meira úr eða hætta sauðfjárframleiðslu og halda öllum eða hluta af sínum greiðslum gegn tilteknum skilyrðum. Til dæmis gæti það verið af aldurstengdum ástæðum eða vegna fjárfestinga eða uppbygginga á jörðunum. Þráðurinn tekinn upp aftur frá 2023 Frá árinu 2023 er, samkvæmt tillögunni, gert ráð fyrir að greiðslufyrirkomulagið taki upp þráðinn aftur í samningnum eins og því er lýst fyrir árið 2019 og haldi þannig áfram. /smh Fjárhæðir í milljónum króna 2018 2019 2020 2021 2022 Beingreiðslur 2.267 2.256 2.142 2.132 2.114 Gæðastýring 1.679 1.672 1.603 1.597 1.582 Gripagreiðslur 0 0 0 0 0 Býlisstuðningur 194 193 185 185 183 Ullarnýting 437 436 430 428 424 Fjárfestingastuðningur 48 48 95 95 94 Svæðisbundinn stuðningur 145 145 143 143 141 Aukið virði afurða 145 145 95 95 94 Alls 4.915 4.895 4.693 4.675 4.632 Fjárhæðir í milljónum króna 2018 2019 2020 2021 2022 Beingreiðslur 2.267 2.205 1.944 1.635 1.319 Gæðastýring 1.679 1.674 1.652 1.816 1.970 Gripagreiðslur 0 0 95 225 355 Býlisstuðningur 194 242 239 238 235 Ullarnýting 437 436 430 428 424 Fjárfestingastuðningur 48 48 95 95 94 Svæðisbundinn stuðningur 145 145 143 143 141 Aukið virði afurða 145 145 95 95 94 Alls 4.915 4.895 4.693 4.675 4.632
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.