Bændablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 34

Bændablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. apríl 2018 Ekkert lát virðist vera á uppgangi í ferðaþjónustunni og fara ábúendurnir á Brunnhóli, við rætur Vatnajökuls, ekki varhluta af því blómaskeiði sem verið hefur undanfarin ár. Hjónin Sigurlaug Gissurardóttir og Jón Kristinn Jónsson keyptu jarðirnar Árbæ og Brunnhól í Austur-Skaftafellssýslu árið 1980, en þá var þar stundaður blómlegur kúabúskapur og hefur svo verið allar götur síðan, nú í eigu sonar þeirra, Sæmundar Jóns. Fljótlega sáu þau þó tækifæri í ferðaþjónustunni og í ónotuðu íbúðarhúsi buðu þau upp á þjónustu fyrir ferðamenn frá árinu 1986. Eftirspurnin á þeim tíma var ekkert í líkingu við það sem er í dag, en dafnaði þó jafnt og þétt. Framkvæmt var í takt við eftirspurn. Á þeim tæplega 40 árum sem þau hafa búið á Hornafirði, þar af boðið upp á gistingu í 33 ár, hefur mikið vatn runnið til sjávar. Þrátt fyrir gott orðspor af gistingunni þá er það þó heimagerði jöklaísinn sem framleiddur er úr mjólk af kúabúinu sem er í dag ímynd staðarins. Mikill fjöldi ferðamanna kemur dag hvern til að fá sér ís og framkvæmdir eru á fullu við fjölgun á gistirýmum staðarins. „Dagarnir fljúga hér áfram og ég rembist eins og rjúpan við staurinn að láta enda ná saman. Við erum að bæta við 12 herbergjum við vesturendann sem verða öll með útsýni að jöklum. Húsið verður byggt úr límtréseiningum sem IDEX flytur inn frá Austurríki og það verður farið að reisa þær strax eftir páska, við erum bjartsýn á að geta tekið herbergin í notkun í kringum 20. júní ef allt gengur upp,“ segir Sigurlaug, sem hafði átt annasaman dag rétt fyrir páska þegar blaðamaður Bændablaðsins náði af henni tali enda vegurinn um Skeiðarársand lokaður sem þýddi alls kyns erindi og reddingar vegna ferðamanna á Brunnhóli þann daginn. Liður í kynslóðaskiptum Á Brunnhóli er unnið eftir Agenda21-hugmyndafræðinni þar sem lögð er áhersla á hágæðaþjónustu og virðingu fyrir umhverfinu. Ábúendurnir leggja einnig ríka áherslu á að skila landinu af sér óspilltu til komandi kynslóða. „Þessar framkvæmdir eru liður í kynslóðaskiptum því við Jón erum hægt og hljótt að draga okkur í hlé, minnka við okkur vinnuna niður í fullan vinnudag til að byrja með. Á sama tíma erum við að bæta starfsmannaaðstöðuna hjá okkur, við erum með 5 starfsmenn yfir veturinn og þeir fara upp í 12–14 á sumrin. Eftir framkvæmdirnar getum við boðið upp á 32 herbergi. Við höfum verið lengi í þessu og erum með fastar ferðaskrifstofur sem beina meginþorra af gestunum til okkar en við verðum einnig að vera á www.booking.com,“ útskýrir Sigurlaug og segir að mikil breyting hafi orðið á kauphegðun ferðamanna á allra síðustu árum. Aðspurð um veitingasöluna hjá sér segir hún: „Við höfum ekki auglýst veitingasöluna beint og erum þar fyrst og fremst að þjóna okkar gestum, en sífellt fleiri detta þó inn fyrirvaralaust.“ Það tengist ekki síst íssölunni sem hefur vaxið jafnt og þétt og þau hafa kosið að líta á sem afþreyingu en ekki veitingasölu. „Um íssöluna má segja eins og allt annað að orðsporið er besta auglýsingin enda hefur allt frá upphafi ekki verið lagt í mikinn kostnað við auglýsingar, en við alla tíð verið virkir þátttakendur í sölu- og kynningarkerfi Ferðaþjónustu bænda, nú Hey Starfsmannafatnaður fyrir hótel og veitingahús Höfðabakka 9, 110 Reykjavík Sími 525 8210 eddaehf@eddaehf.is www.eddaehf.is Allt lín fyrir: Hótelið • Gistiheimilið • Bændagistinguna • Airbnb Veitingasalinn • Heilsulindina • Þvottahúsið • Sérverslunina Rúmföt og handklæði fyrir ferðaþjónustuna Eigum allt fyrir: • Þjóninn • Kokkinn • Gestamóttökuna • Þernuna • Vikapiltinn • Hótelstjórnandann 85 ÁRA Hjónin Sigurlaug Gissurardóttir og Jón Kristinn Jónsson á Brunnhóli í Austur-Skaftafellssýslu hafa boðið upp á þjónustu fyrir ferðamenn í rúmlega 30 ár og standa nú í framkvæmdum til að stækka gistirými staðarins. og önnur starfsmannaaðstaða. sjá má á þessari mynd. Ábúendur á Brunnhóli við Hornafjörð standa í stórræðum: Ferðaþjónustubændur blómstra við rætur Vatnajökuls
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.