Bændablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 16

Bændablaðið - 12.04.2018, Blaðsíða 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. apríl 2018 Sú var tíðin að veiðar og vinnsla á rækju voru stór grein innan íslensks sjávarútvegs. Nú eru rækjuveiðarnar ekki nema svipur hjá sjón og framleiðsla rækjuafurða aðeins brot af því sem var þegar best lét. Frá síðustu aldamótum hefur rækjuiðnaðurinn byggst á innfluttu hráefni að verulegu leyti. Rækjuiðnaðurinn hefur mikla sérstöðu innan íslensks sjávarútvegs vegna fjölbreytts uppruna hráefnis og leitun er að annarri grein sem gengið hefur í gegnum jafnmiklar sveiflur og rækjan. Segja má að hráefni fyrir rækjuiðnaðinn hvíli á þrem stoðum. Í fyrsta lagi er rækja sem veidd er á grunnslóð, í öðru lagi úthafsrækja sem veidd er á Íslandsmiðum og í þriðja lagi rækja sem veidd er á ýmsum hafsvæðum í Norður- Atlantshafi. Sú rækja er að mestu veidd af erlendum skipum og flutt inn til vinnslu, svonefnd iðnaðarrækja. Fór mest í 89 þúsund tonn Rækjuveiðar við Ísland hófust á fjórða áratug síðustu aldar þegar farið var að veiða rækju í Ísafjarðardjúpi. Aflinn var lítill framan af, aðeins nokkur hundruð tonn. Hann jókst eftir að fleiri svæði á grunnslóð fundust. Lengi vel var heildarafli á grunnslóð þó aðeins 2 til 7 þúsund tonn á ári. Stóra stökkið kom ekki fyrr en veiðar á djúprækju og rækju utan landhelginnar komu til sögunnar. Árið 1996 var metár í rækjuveiðum íslenskra skipa. Þá lönduðu þau alls rúmum 89 þúsund tonnum. Þar af voru rúm 55 þúsund tonn úthafsrækja, um 12.500 tonn rækja á grunnslóð og 21 þúsund tonn rækja frá Flæmingjagrunni sem er alþjóðleg veiðislóð austur af Kanada. Eftir árið 1997 dróst rækjuaflinn nokkuð hratt saman og fór lægst niður í um rúm 2 þúsund tonn í heild árin 2006 og 2007. Veiðar á rækju á grunnslóð brugðust nær alveg þessi tvö ár, veiðum íslenskra skipa á Flæmingjagrunni hafði verið hætt og síðast en ekki síst vóg það þungt að margar útgerðir hættu veiðum á úthafsrækju vegna bágrar afkomu rækjuveiða. Einnig áttu verksmiðjurnar í erfiðleikum vegna styrkingar íslensku krónunnar á árunum fyrir hrun. Aflinn jókst aftur og var kominn í 11 þúsund tonn árið 2013. Afkoman batnaði vegna veikingar krónunnar og verðhækkunar á erlendum mörkuðum en Adam var ekki lengi í Paradís. Útflutningstekjur hafa lækkað vegna þess að krónan hefur styrkst á ný sem kunnugt er, verðið fór niður og ástand rækjustofna hefur sjaldan verið verra. Á árinu 2017 var aflinn aðeins um 4.300 tonn í heild, þar af rúm 1.200 tonn rækja á grunnslóð og 3.055 tonn úthafsrækja. Aflinn í fyrra varð þannig aðeins 4,6% af veiðinni metárið 1996. Hrun víðast á grunnslóð Rækja hefur verið veidd á alls átta svæðum á grunnslóð allt frá Eldey norður og austur um að Öxarfirði. Þar á milli eru þessi veiðisvæði: grunnslóð við Snæfellsnes, Arnarfjörður, Ísafjarðardjúp, Húnaflói, Skagafjörður og Skjálfandi. Þarna er um sjálfstæða rækjustofna að ræða á hverju svæði sem Hafrannsóknastofnun metur árlega og veitir í framhaldinu ráðgjöf um hámarksveiði. Misjafnt er hvað hvert svæði hefur gefið. Að hámarki hefur ársaflinn á einu svæði verið um 3 þúsund tonn á einu ári, en flest hafa þau skilað í sæmilega góðum árum milli 1 og 2 þúsund tonnum eða meir. Á 10. áratug síðustu aldar var veitt úr öllum þessum stofnum. Mestur varð ársaflinn samanlagt á grunnslóð um 16.600 tonn árið 1994 en var kominn niður í um 1.200 tonn á síðasta ári eins og áður er getið. Rækjustofnar á grunnslóð norðanlands hrundu á árunum 1997 til 2000 og hafa veiðar ekki verið leyfðar þar síðan nema á Skjálfanda í eitt ár. Engar veiðar voru leyfðar í Ísafjarðardjúpi á árunum 2002 til 2004 og í Arnarfirði 2005 til 2007. Á öllum þessum svæðum er talið að afrán þorsks og ýsu hafi átt verulegan þátt í hruni rækjustofnanna. Einnig lágu veiðar niðri við Eldey í meira en ártug en veiðar voru leyfðar á ný á árunum 2103 til 2016. Í haust leit út fyrir engar veiðar yrðu heimilaðar á grunnslóð nema á rækju við Snæfellsnes en nú hafa veiðar í Ísafjarðardjúpi einnig verið leyfðar eftir endurteknar mælingar. Bágborið ástand á úthafsrækju Veiðar á úthafsrækju á Íslandsmiðum hófust um miðjan áttunda áratuginn. Helstu veiðisvæðin eru djúpt norður af landinu. Veiðar á úthafsrækju urðu fljótt umfangsmeiri en veiðar á grunnslóð. Afli úthafsrækju varð mestur 62.400 tonn árið 1997. Hann minnkaði síðan og var kominn niður í 15.400 tonn árið 2004. Enn seig á ógæfuhliðina og úthafsrækjan gaf einungis 600 tonn árið 2006. Veiðarnar glæddust eftir það og námu rúmum 7 þúsund tonnum bæði árin 2012 og 2013. Um tíma voru veiðarnar frjálsar en voru svo settar í kvóta á ný. Aflinn minnkaði aftur og varð rúm 3 þúsund tonn árið 2017. Ástand úthafsrækjunnar er bágborið. Afrán þorsks á rækju er mikið og hefur farið vaxandi undanfarin ár. Kvótinn á yfirstandandi fiskveiðiári er 5.000 tonn. Á fyrri hluta 9. áratugarins hófu íslensk skip að veiða rækju á Dohrnbanka sem er við miðlínu milli Íslands og Grænlands. Mest hafa skipin veitt þar tæp 2.900 tonn árið 1997. Rækjuveiðar á alþjóðlegum hafsvæðum Á 10. áratugnum færðu íslensk skip út kvíarnar og hófu veiðar á rækju á alþjóðlegum svæðum. Hér er einkum um að ræða veiðar á Flæmingjagrunni. Þær veiðar voru stundaðar á árunum 1993 til 2006. Ársaflinn var oftast á milli 2 þúsund til 9 þúsund tonn en árið 1996 skar sig þó úr. Þá veiddist þar tæpt 21 þúsund tonn. Íslendingar komu einnig að veiðum á rækju á Flæmingjagrunni í gegnum eignaraðild að hluta til á nokkrum útgerðum í Eystrasaltsríkjunum. Afli Eystrasaltsskipanna var að stærstum hluta unninn hér á landi. Engar rækjuveiðar eru nú heimilaðar á svæðinu vegna bágs ástands stofnsins. Undir lok tíunda áratugarins hófust veiðar á rækju í smáum stíl á Miklabanka sem er nálægt Flæmingjagrunni. Einnig fóru íslensk skip í Barentshafið til rækjuveiða og hófust þær árið 1997. Mestur afli íslenskra skipa þar var rúm 2.300 tonn árið 1999. Þessar veiðar lágu niðri á árunum 2001 til 2010 en hafa eitthvað verið stundaðar eftir það með hléum þó. Vinnslu haldið uppi með innfluttu hráefni Á sama tíma og rækjuveiðum hnignaði ört var rækjuvinnslu innanlands haldið uppi með innfluttu hráefni. Um er að ræða rækju sem fryst er um borð í erlendum veiðiskipum. Auk þess að fá rækju frá togurum Eystrasaltsríkja hafa íslenskar verksmiðjur keypt iðnaðarrækju frá Noregi, Grænlandi og Kanada. Strax í kringum aldamótin 2000 var meira flutt inn af rækju til vinnslu hér en íslensk skip veiddu. Eftir því sem á leið varð innflutt rækja í yfirgnæfandi meirihluta. Til dæmis voru tekin tæp 70 þúsund tonn af rækju til vinnslu hér á landi árið 2004, þar af voru rétt rúm 53 þúsund tonn innflutt rækja og tæp 16 þúsund tonn rækja af íslenskum skipum. Innflutningur nam því um 76% af hráefninu. Frá árunum 2005 og 2006 harðnaði á dalnum hjá rækjuverksmiðjunum, bæði vegna þess að veiðar íslenskra skipa drógust enn meira saman og innflutt hráefni minnkaði einnig. Á síðasta ári voru tekin til vinnslu rúm 17 þúsund tonn af rækju, þar af voru um 13 þúsund tonn innflutt iðnaðarrækja. Fækkun verksmiðja Rækju af Íslandsmiðum er aðallega landað ferskri og er hún pilluð, soðin og pakkað í rækjuverksmiðjunum. Innflutt iðnaðarrækja er öll frosin. Frystiskipin íslensku meðan þau voru og hétu lönduðu afla sínum sem iðnaðarrækju en þau fullunnu einnig rækjufurðir um borð, einkum úr stærstu og verðmestu rækjunni. Víða um land voru rækjuverksmiðjur snar þáttur í atvinnusköpun. Á tíunda áratug síðustu aldar voru um og yfir 20 verksmiðja starfandi. Þrátt fyrir að innflutt hráefni bjargaði miklu þegar veiðar drógust saman fækkaði verksmiðjunum. Árið 2000 voru þær 18, árið 2004 voru þær 15 og í lok árs 2005 var fjöldi þeirra kominn niður í 8. Á síðasta ár voru starfandi 6 rækjuverksmiðjur, frá Grundarfirði að Siglufirði. Var lokun verksmiðja mikið högg í hverju byggðarlagi, einkum á minni stöðum eins og Bíldudal og Súðavík. Þessi þróun, þverrandi hráefni og fækkun verksmiðja, endurspeglast í samdrætti í útflutningi rækjuafurða. Íslendingar fluttu út tæp 32 þúsund tonn af rækjuafurðum á árinu 2002 en árið 2017 voru aðeins flutt út um 7.900 tonn. Samdrátturinn í magni nemur um 75%. Verðmæti útfluttra rækjuafurða var 9,9 milljarðar árið 2016 en 7,2 milljarðar í fyrra. Rækjuafurðir eru aðallega fluttar út til Bretlands og eru þær notaðar meðal annars í rækjukokteila sem Bretar eru svo sólgnir í. Ris og hnig rækjunnar Rækja er tvíkynja. Hún byrjar lífsferilinn sem karldýr en nokkurra ára skiptir hún um kyn og er breytilegt á milli svæða á hvaða aldri hún skiptir um kyn. Fiskar eru misnæmir fyrir hljóði. Gullfiskur heyrir hljóð á tíðninni 5 til 2000 Hz, en þorskur heyrir hljóð á tíðninni 2 til 500 Hz. Nærsýnir framfyrir sig Sjónsvið fiska er 150–170° á hvoru auga. Þeir eru nærsýnir framan við augað og sjá ekki nema 1 til 15 metra út frá sér. Hins vegar eru þeir fjarsýnir til hliðanna. Tunnulaga augu Nokkrar ættir djúpsjávarfiska hafa þróað með sér augu sem eru tunnulaga. Augun hafa þykka sjónhimnu með mörgum lögum af stöfum í augnbotnunum og stóran augastein. Stafirnir skynja ljós og er þessi aðlögun til þess að geta fangað sem mest af ljósi. Þefar kerlinguna uppi Sædjöflar sem lifa á miklu dýpi nota lyktarskynið til að finna sér maka í myrkrinu. Karlinn þefar uppi kerlinguna og hefur hann til þess stór lyktarskynfæri með óvenju stórum þeflauk. Eftir að karlinn finnur kerlinguna bítur hann sig fastan á magann á henni og verður samvaxinn henni það sem eftir er ævinnar. Hvað eru sjófuglar? Til að fuglar flokkist sem sjófuglar þurfa þeir að afla fæðu sinnar að öllu leyti úr sjó. Hafa varpstöðvar við sjó og verja öllu lífi sínu við sjóinn að varptímanum undanskildum. Sjófuglar eru fremur langlífir, trygglyndir við maka sinn og nota yfirleitt alltaf sömu varpstöðvar. Ungar sjófugla eru ósjálfbjarga og dvelja oft lengi í hreiðrinu. Fuglar við Ísland sem teljast til sjófugla eru álka, dílaskarfur, fýll, haftyrðill, langvía, lundi, sjósvala, skrofa, stormsvala, stuttnefja, súla, teista og toppskarfur. Kynjamunur sjófugla er lítill og er það helst stærðarmunur sem greinir kynin að. Sálin verður að þorski Í gamalli þjóðsögu er sagt frá því að þegar einhver deyr þá verði sálin að þorski. Æxlunarferli hvala Æxlunarferli flestra skíðishvala er lagað að árstíðabundnu fari þeirra. Mökun og æxlun á sér stað á veturna eftir að hvalirnir eru komnir á æxlunarstöðvar. Lífsstíll tannhvala er margbreytilegri og æxlun þeirra getur átt sér stað á lengra tímabili og er ekki eins bundinn árstíðabundnum breytingum eða farleiðum og hjá skíðishvölunum. Rauðmaginn, grásleppan og marglyttan Einu sinni gekk Jesús Kristur með sjó fram og sankti Pétur með honum. Kristur hrækti í sjóinn og af því varð rauðmaginn. Þá hrækti sankti Pétur í sjóinn og af því varð grásleppan og þykir hvort tveggja gott til átu og rauðmaginn jafnvel herramannsmatur. Djöfullinn gekk í humátt á eftir þeim með sjónum og sá hvað fram fór. Hann vildi þá ekki vera minnstur og hrækti líka í sjóinn en úr þeim hráka varð marglyttan og er hún einskis nýt. /VH Rómantísk fiskifræði STEKKUR HLUNNINDI&VEIÐI Kjartan Stefánsson kjartanst@simnet.is Norðmaðurinn Simon Olsen var brautryðjandi rækjuveiða hérlendis og hóf veiðar á rækju í Ísafjarðardjúpi á fjórða Mynd / Jón Hermannsson. Rækja eða stóri kampalampi (Pandalus borealis). Konnráð Eggertsson við rækju-veiðar í Ísafjarðardjúpi á árum áður á bát sínum, Halldóri Sigurðssyni ÍS.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.