Bændablaðið - 31.01.2019, Qupperneq 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 201932
Vertu viðbúinn vetrinum
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Nøsted Kjetting as
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Ný
hönnun
UTAN ÚR HEIMI
Áhugavert safn af austur-evrópskum
og rússneskum munum
Í bænum Marijampole í Litháen
er áhugavert bílasafn sem hefur
verið hugarfóstur Kestutis
Kubilius í 30 ár og hefur hann
notað hvern frítíma til að viða að
sér, gera við og halda þeim munum
sem eru á safninu til haga.
Hin síðari ár hafa margir vildar-
vinir gaukað að honum munum og
þannig auðveldað honum söfnunina.
Það sem ber hæst á safninu er án
efa fjöldinn allur af bílum og
mótorhjólum þar sem helst má sjá
rússnesk og austur-evrópsk áhrif.
Kestutis sagði við blaðamann
Bændablaðsins á dögunum að hann
mælti ekki með slíkri söfnunaráráttu
við nokkurn mann og að hann væri
heppinn með það hversu mikinn
skilning fjölskylda hans hefur
sýnt honum í gegnum tíðina, enda
hlaupa vinnustundirnar við safnið á
hundruðum klukkustunda. /ehg
Rússnesk Volga, GAZ-21, árgerð 1959.
Kestutis Kubilius í bænum Marijampole í Litháen hefur safnað bílum,
mótorhjólum, sjónvörpum, útvörpum og alls kyns smærri hlutum í 30 ár.
Mótorhjól fyrir hreyfihamlaða,
þýskt Krause Piccolo Trump og
1958-árgerð.
Rússajeppi frá rússneska hernum, GAZ-69A, 1959-módelið.
Rússneskur gæðingur, Moskvic-407, 1960-árgerðin.