Bændablaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 201934
UTAN ÚR HEIMI
Í gegnum tíðina hafa menn tekið
upp á ýmsu til að skapa öflugar
dráttarvélar án þess þurfa að
vera með stærri sprengihreyfla.
Þar hafa menn einfaldlega soðið
saman tvær eða fleiri vélar
sem getur auðvitað skapað
vandamál við að samhæfa aflið
út í hjól. Gamli góði Farmallinn
er þar engin undantekning.
Á síðari árum hafa menn
einkum gert þetta sér til gaman
fremur en að horfa í notagildið.
Í ritinu Farm Show frá 2003
getur m.a. að líta grein sem
segir frá þreföldum Farmall sem
Dewitt Steward frá Bolalusa
í Los Angeles setti saman.
Áður hafði Steward smíðað
tvöfaldan Farmall. Ekki er vitað
til að verksmiðjur International
Harvester (IH), sem smíðuðu
McCormick Farmall, hafi nokkru
sinni framleitt slíka gripi. Ekki
er þá heldur að finna á yfirliti IH
yfir dráttarvélaframleiðsluna frá
1950 til 1970.
Farmall þríburinn var gerður
úr þremur uppgerðum Farmall
dráttarvélum frá árunum 1939 og
1946. Samansoðnar vélarnar voru
á fjórum hjólum og 3,5 metrar
að breidd. Þennan þríhöfða þurs
smíðaði Steward árið 1997 og
var síðan að ferðast með hann á
milli sýninga árum saman. Upp
úr þessu brölti sínu náði hann
samningi við Rawling nokkurn
Williams um að smíða sams
konar grip til að sýna á America‘s
Old Iron Museum í Bush í Los
Angeles.
Steward er þó ekki sá eini sem
dottið hefur í hug að setja saman
svona fjölbura, því vitað er af
slíkum Farmall grip sem smíðaður
var úr elstu gerðum Farmall sem
var á járnhjólum. Þessi samsetta
vél er af gerðinni Farmall F-30
árgerð 1936, en Farmall mun fyrst
hafa verið kynntur til sögunnar
árið 1923.
Við smíði Steward þurfti hann
að smíða frá grunni nýjan öxul
sem var tengdur við gírkassann
á miðjuvélinni. Hinar tvær
vélarnar voru svo boltaðar þar
utan á með gírkössum og öllu
saman. Kúplingarnar voru svo
samtengdar og ein eldsneytisgjöf
var svo fyrir allar vélarnar. Samt
gat hann kúplað miðjuvélinni frá
og keyrt á hinum tveim eða keyrt
á miðjuvélinni og kúplað hinum
tveim frá. Vakti þessi samsetta vél
mikla athygli hvar sem hann fór.
Steward viðurkennir að þrefaldi
Farmallinn hans hafi ekki verið
sérlega lipur í keyrslu. /HKr.
FURÐUVÉLAR&FARARTÆKI
Samsettur Farmall þríburi sem Dewitt Steward frá Bolalusa í Los Angeles í Bandaríkjunum smíðaði. Hann
var samsettur úr Farmall af árgerðum 1939 og 1946. Ekki var hann mikið notaður í heyskap heldur ferðaðist
eigandinn með hann á sýningar um allar trissur. Hér er hann á tvöföldu að aftan.
Farmall þríburi
til eftir nám hans á Ítalíu og þriggja ára þróunarvinnu.
Endurvinnanlegir og
ilmandi kaffibollar
Fyrirtækið Kaffeeform í Berlín í
Þýskalandi hefur kynnt á markað
kaffi málið Weducer Cup sem er
enginn venjulegur kaffibolli. Hér
fara saman hönnun og sjálfbærni
en bollinn er framleiddur úr
kaffi korg og sérstökum efna-
s am böndum úr fjölliðum og
ekki skemmir fyrir að það ilmar
dásamlega af kaffi. Fyrirtækið
hlaut Red Dot: Best Design Award
í flokki efna og aðferða árið 2018
fyrir hönnun sína.
Kaffeeform er ungt fyrirtæki sem
leggur áherslu á sjálfbæra hönnun
og nýsköpun þar sem hugmyndin
er að geta nýtt hráefni sem annars
endar í ruslinu og ekkert verður
úr. Um 600 billjón pappírs- og
plastmál eru flutt heimshorna á
milli á hverju ári og fæst þeirra
eru endurvinnanleg og fara beint
í venjulegt heimilissorp. Langflest
þessara mála eru ekki búin til úr
endurvinnanlegum trefjum eða
pappír þannig að tré eru höggvin
niður til að framleiða þau ásamt
því að flest málin innihalda einhver
plastefni og við framleiðsluna þarf
að notast við hráolíu. Þar að auki
koma plastlokin á málin sem eru
ekki endurvinnanleg.
„Við höfum öll séð þessar
sláandi myndir af plastdrasli sem
flýtur um heimshöfin og á ströndum
og jákvætt er hversu mikið meira
þetta er í umræðunni nú en áður og
það virðist vera að stjórnmálamenn
séu jákvæðir fyrir því að taka á
vandanum. Í nokkurn tíma hafa
kaffiáhugamenn og hönnuðir verið
uppteknir af því að finna hentugan
og endurvinnanlegan kaffibolla sem
fólk getur tekið með sér þegar það
er á ferðinni af kaffihúsum,“ segir
hönnuður bollans, Julian Lechner,
og bætir við:
„Ég var við nám á Ítalíu og gat
ekki hætt að hugsa um að gera
eitthvað slíkt sem var algjörlega
nýtt. Eftir þriggja ára rannsóknar- og
þróunarvinnu varð Kaffeeform til úr
endurnýttum kaffikorg en hér er ný
aðferð notuð til að búa til algjörlega
nýja vöru úr gömlu kaffi. Allir
bollarnir sem við framleiðum, fyrir
espresso, cappuccino og venjulegt
kaffi hafa áferð af dökkum harðvið,
þeir lykta af kaffi, eru mjög léttir,
hægt er að setja þá í uppþvottavél
og þeir vara lengi. Þeir virka vel
og það er auðvitað aðalatriðið.
Núna erum við að kanna nýja
möguleika á að skipta út plasti sem
framleidd er úr jarðefnum með okkar
einstöku vistfræðilegu blöndu svo
þróunarvinnan er hvergi nærri hætt
hjá okkur.“ /ehg
fyrir sig.
um nánari deili á þessari sambyggðu dráttarvél er ekki vitað.