Bændablaðið - 31.01.2019, Blaðsíða 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 201936
Valmúi hefur verið ræktaður í
margar aldir og saga plöntunnar
er skrykkjótt en merkileg. Úr
plöntunni er unnið ópíum og
ópíumtengd efni sem notuð eru til
lækninga úr ópíuminu en einnig
sem nautnalyf með skelfiegum
afleiðingum. Fræ plöntunnar
eru best þekkt hér sem birkifræ
á birkirúnstykkjum. Auk þess
sem valmúaolía er unnin úr
fræjunum.
Nánast er ómögulegt að gera
sér grein fyrir því hversu mikil
ræktun á valmúa er í heiminum.
Stór hluti valmúaræktunar til
ópíumframleiðslu er ólögleg en
sá hluti hennar sem er löglegur
er nýttur til lyfjagerðar. Áætluð
heimsframleiðsla á ólöglegu ópíum
árið 2017 var ríflega tíu þúsund
tonn. Mest er framleiðslan í Gullna
hálfmánanum í Mið-Asíu og í Gullna
þríhyrningnum í Suðaustur-Asíu.
Auk þess sem talsvert er framleitt
af ópíum í Mexíkó og Kólumbíu.
Ástralía, Tyrkland og Indland
eru stærstu framleiðendur löglegs
ópíums í heiminum.
Heimsframleiðsla á valmúa-
fræjum í heiminum árið 2016 er
áætluð 92,6 tonn. Tékkland var
stærsti framleiðandi það ár og
framleiddi tæp 28,6 tonn, Tyrkland
var í öðru sæti með rúm 18,2 tonn,
Spánn framleiddi tæp 13,4 tonn,
Ungverjaland rúm 8,9 og Frakkland
um 5,8 tonn.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Hagstofu Íslands voru flutt inn rétt
rúm 1,9 tonn af valmúafræjum árið
2017. Mestur var innflutningurinn
frá Danmörku, 976 kíló og 363 kíló
frá Tékklandi. Einnig er talsvert
flutt inn af ópíumtengdum lyfjum í
lækningaskyni og einnig ólöglega
til sölu á svörtum markaði.
Ættkvíslin Papaver og
draumsóley
Hátt í eitt hundrað tegundir eins-,
tví- og fjölærra plantna tilheyra
ættkvíslinni Papaver. Allar eru
þær fremur harðgerðar og finnast á
norðurhveli jarðar. Tegundirnar eru
misjafnar að hæð og allt frá því að
vera um tíu og yfir 100 sentímetrar
að hæð og flestar eru þær með
hærðan stöngul. Þegar valmúar
blómstra fellir blómknúppurinn tvær
áberandi blómhlífar. Krónublöðin
þunn fjögur til sex, rauð, hvít, bleik,
gul og lillablá. Blómið tvíkynja og
frævan og frævlarnir eru áberandi.
Fræhirslan er brúnn hærður baukur
sem inniheldur fjölda fræja sem
losna auðveldlega eftir að þau hafa
náð þroska.
Fulltrúi ættkvíslarinnar í flóru
Íslands kallast melasól, P. radicatum
og er milli 5 og 20 sentímetra há
og ber skærgul, hvít og bleik
blóm. Hvít og bleik litarafbrigði
eru alfriðuð. Eitt af alþýðuheitum
plöntunnar er draumsól og sagt
er að hún bæti svefn. Garðasól, P.
nudicaule, er algeng garðplanta hér
og finnst einnig sem slæðingur og
til í mörgum litum. Plantan er víða
erlendis kennd við Ísland, Icelandic
Poppy á ensku og Isländischer Mohn
á þýsku. Í görðum má einnig finna
risasól, eða tyrkjasól, P. bracteatum,
og risavalmúa, P. orientale, sem nær
allt að metra á hæð. Auk annarra
valmúategunda sem ræktaðar eru
til skrauts.
Ópíumvalmúi
Plantan sem ópíum og birkifræ,
eða birkens, er unnið úr kallast P.
somniferum á latínu en ópíumvalmúi
á íslensku. Einær og sterkleg planta
sem nær um eins metra hæð og
með grágræna áferð. Stöngull
og blöð grófhærð. Laufblöðin
stór flipuð, saxtennt og umvefur
blaðhálsinn stöngulinn. Blómin
þrír til tíu sentímetrar í þvermál og
krónublöðin yfirleitt hvít eða hvít
en einnig bleik, lillablá eða hvít
með rauðu í. Aldinið stór hárlaus
kúlu- eða hnattlaga baukur, fjórir
til níu sentímetrar að hæð og
breidd og með kórónu á toppnum.
Fjöldi fræja þroskast í bauknum. Í
plöntunni allri en aðallega aldininu
er hvítur mjólkursafi sem hráópíum
er unnið úr.
Svíinn Carl Linnaeus var fyrstur
til að lýsa plöntunni í bók sinni
Species Palntarum sem kom út árið
1753.
Í dag er til fjöldi ræktunarafbrigða
og yrkja af ópíumvalmúa sem
hvert um sig er notað til sérhæfðrar
ræktunar. Valmúi sem ætlaður er
til ópíumframleiðslu ber lítið af
fræjum og valmúi sem ætlaður er
til framleiðslu á fræ inniheldur lítið
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Ópíumvalmúi er falleg planta sem á sér langa og skrykkjótta sögu.
Valmúi skorinn til ópíumframleiðslu.
Kínverskir ópíumneytendur við upphaf síðustu aldar.