Bændablaðið - 31.01.2019, Qupperneq 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 31. janúar 201942
Indónesía er staðsett við miðbaug
jarðar, rétt utan meginlands
Suðaustur-Asíu. Landið er
samsafn af rúmlega 17 þúsund
eyjum í Malaja eyjaklasanum og
eru íbúar landsins á rúmlega 3
þúsund af þessum eyjum! Landið
er gríðarlega stórt og kemur því
ekki á óvart að það er fjórða
fjölmennasta ríki heims með
rúmlega 260 milljónir íbúa. Þó
svo að landið sé e.t.v. einna helst
þekkt í Evrópu fyrir eyjuna Bali,
sem margir fara til og heimsækja,
þá er helsti atvinnuvegur landsins
landbúnaður, enda landið
einstaklega vel fallið til ræktunar
og framleiðslu.
Mjólkurframleiðsla hefur ekki
verið stunduð af krafti í landinu
undanfarna áratugi, en þar horfir
til breytinga eins og víða annars
staðar með stóraukinni eftirspurn
íbúa landsins eftir mjólkurvörum.
19 sinnum stærra en Ísland
Indónesía er gríðarlega stór
og nærri 19 sinnum stærra en
Ísland, rétt rúmlega 1,9 milljónir
ferkílómetra að stærð. Staðsetning,
stærð og lega landsins gerir það
að verkum að í landinu er ótrúlega
fjölbreytt plöntu- og dýralíf og
líkt og önnur lönd sem standa við
miðbaug jarðar, er tíðarfarið allt
öðruvísi í þessum löndum en við
erum vön hér á Íslandi.
Dagsbirtu gætir í um 12 tíma
allan ársins hring og í raun er ekki til
neitt sem við köllum vetur, sumar,
vor og haust heldur er þar talað um
tvær árstíðir: rigningartímabilið
og „ekki rigningartímabil“. Þetta
tímabil er misjafnt innan landsins
eftir staðsetningu eyjanna og
er ekki stöðugt ár frá ári vegna
veðurfyrirbrigðisins El Niño. Í
Indónesíu verður aldrei verulega
kalt og raunar aldrei verulega heitt
miðað við mörg önnur lönd. Hita-
stigið fer lægst í um 20–22 gráður
og sjaldan yfir 30–32 gráður þegar
heitast er.
Frjósamur jarðvegur
Flestar eyjar landsins eru með
einstaklega frjósama jörð svo þegar
saman fara allir þessir eiginleikar
sem hér að framan hafa verið taldir
upp, er nánast hægt að fullyrða að
allt geti gróið í Indónesíu og það allt
árið um kring! Þannig upplifði t.d.
greinarhöfundur það í nóvember
sl. að á sama tíma og verið var að
uppskera suma hrísgrjónaakra,
voru aðrir bændur að planta út og
enn aðrir að fjarlægja illgresi frá
hálfsprottnum hrísgrjónaplöntum!
Á FAGLEGUM NÓTUMUTAN ÚR HEIMI
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
Mánagull er algeng pottaplanta hér á landi.
Undur erfðatækninnar:
Kanínumánagull til
að hreinsa loftið
Það hefur lengi verið vitað að
pottaplöntur á heimilum hreinsa
loftið af alls kyns óæskilegum
lofttegundum. Nýverið splæstu
erfðafræðingar geni úr
kanínu í mánagull til að auka
hreinsunargetu plöntunnar.
Ýmsar misæskilegar og mengandi
lofttegundir geta borist inn á heimili
okkar. Lofttegundirnar geta borist
utan að eða átt uppsprettu sína
innandyra vegna eldunar, reykinga,
efna sem geymd eru á heimilinu eða
komið frá húsgögnum og munum
sem geymdir eru á heimilinu.
Ásamt því að lofta út eru
pottaplöntur á heimilum besta leiðin
til að hreinsa loftið. Þrátt fyrir að
pottaplöntur sé afkastamiklar
loftsíur má alltaf gott bæta og gera
enn betra.
Erfðafræðingum hefur tekist að
splæsa geni, CYP2E1, úr kanínu
saman við gen mánagulls og aukið
þannig getu plöntunnar til að hreinsa
loftið. /VH
Vatnsskortur samfara hitabylgju í Ástralíu.
Gríðarlegir hitar í Ástralíu:
Búfé lógað vegna hita
Vegna gríðarlegra hita í Ástralíu
hafa yfirvöld gefið leyfi fyrir því
að dýrum sem eru aðframkomin af
þorsta verði lógað. Hitinn sem víða
hefur farið í 50° á Celsíus er svo hár
að leðurblökur og fuglar hafa dottið
af himnum ofan dauð vegna hans.
Nú þegar hafa 2.500 úlfaldar
sem eru með þolnustu dýrum þegar
kemur að vatnsskorti verið skotin í
vesturhluta álfunnar. Auk þess er talið
að lóga verði fjölda hrossa, geita og
asna sem ekki finna vatn eða bithaga
vegna þurrka.
Fjöldi villtra og húsdýra hafa
fundist við uppþornuð vatnsból þar
sem hitinn er mestur.
Hitamet í Ástralíu eru slegin
ár eftir ár og er ástæðan almenn
hlýnun andrúmsloftsins vegna
loftslagsbreytinga af völdum sífells
aukins magns gróðurhúsalofttegunda
á andrúmsloftinu. Spár gera ráð
fyrir að hiti í Ástralíu muni halda
áfram að vaxa á næstu árum og
að hitabylgjurnar komi til með að
standa lengur og auka þannig enn á
vatnsskort. /VH
Undur erfðatækninnar:
Tvær mömmur, enginn pabbi
Nýlega fæddust heilbrigðir
músaungar sem voru afkvæmi
tveggja kvenkyns músa og
foreldarnir samkynja. Fæðingin
bendir til að innan tíðar muni
samkynja fólk geta átt saman börn.
Nokkrum dögum síðar fæddust
músaungar þar sem báðir foreldrar
voru karlkyns en kvenkyns
staðgöngumóðir gekk með ungana
sem drápust fljótlega eftir fæðingu.
Talsmaður kínverska teymisins
sem gerði tilraunina segir að í raun
sé ekkert því til fyrirstöðu að beita
sams konar tækni við fólk eftir að
tæknin hefur verið rannsökuð betur
og fullkomnuð.
Andmælendur tilraunanna segja
þær svo sem góðra gjalda verðar og
auki skilning okkar á möguleikum
erfðatækninnar en að tæknin muni
aldrei ganga þegar kemur að því að
geta börn. /VH
Nýlega fæddust heilbrigðir músa-
ungar sem voru afkvæmi tveggja
kvenkyns músa og foreldarnir
samkynja.
Þeir sem heimsækja kúabú í Indónesíu taka eftir því að kýrnar eru alltaf mjög hreinar enda þvegnar tvisvar á dag.
Myndir / SS
Frá móttökustöð mjólkur þar sem mjólkin er vegin inn og svo kæld niður
áður en samvinnufélagið keyrir hana í næstu afurðastöð.
Indónesía – þar sem allt grær