Bændablaðið - 07.05.2020, Page 1
9. tölublað 2020 ▯ Fimmtudagur 7. maí ▯ Blað nr. 562 ▯ 26. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Meistaravörn Þórdísar Þórarinsdóttur í búvísindum við LbhÍ fór fram í gegnum Zoom fjarfundabúnað, en ritgerðin fjallar um erfðastuðla og erfðaþróun
frjósemiseiginleika í íslenska kúastofninum. Hún er nú ásamt unnusta sínum, Eyþóri Braga Bragasyni, að taka við sauðfjárbúi foreldra hans á Bustarfelli í
Vopnafirði. Nýorðin meistari fór hún beint út í fjárhús í sauðburðinn á Bustarfelli enda mikil sveitakona. Hún segir það skemmtilegasta við ritgerðarskrifin
hafa verið þegar hún fékk niðurstöður úr tölfræðiforritunum eftir marga vikna pælingar og undirbúning. – Sjá viðtal bls. 28–29 Mynd / einkasafn
Sauðfé hefur ekki verið færra á
Íslandi en nú í 40 ár samkvæmt
hagtölum landbúnaðarins sem
unnar eru úr haustskýrslum. Um
síðustu áramót taldist ásett sauðfé
vera 415. 949, en þar af eru 1.471
geit.
Árið 1980 taldist vetrarfóðrað
sauðfé vera 827.927 gripir. Árið
1985 var farið að fækka nokkuð í
stofninum sem þá var 709.257 fjár.
Árið 1990 var talan komin í 548.508
og í 458.341 árið 1995. Árið 2000 var
sauðféð 465.777 og hefur sá fjöldi
haldist nokkuð svipaður, upp eða
niður um 10.000 fjár eða svo. Þannig
komst fjöldinn í 479.841 árið 2010 og
mest í 486.598 fjár árið 2014. Síðan
hefur sauðfénu fækkað nær jafnt og
þétt og var komið í 415.949 gripi á
síðasta ári eins og fyrr segir.
Helmingsfækkun á 40 árum
Er sauðfé í landinu nú um helmingi
færra en það var 1980, eða 50,3%,
og beitarálag hefur að sama skapi
minnkað verulega á flestum land-
svæðum.Þá hefur það alveg horfið á
stórum svæðum þar sem sauðfjárbú-
skapur hefur lagst af.
Norðvesturkjördæmi er öflugasta
sauðfjárræktarsvæðið
Ef skoðað er sauðfjárhald eftir
landshlutum er það eins og fyrr
öflugast í Norðvesturumdæmi (þar
með taldir Vestfirðir), eða 112.085
vetrarfóðraðar kindur. Í öðru sæti
er Vesturumdæmi með 102.175
fjár. Þrjú umdæmi koma síðan með
nokkuð áþekkan fjölda sauðfjár. Þar
er Norðausturumdæmi sem lendir í
þriðja sæti yfir landið með 68.789
kindur, Austurumdæmi er í fjórða
sæti með 65.753 og Suðurkjördæmi
í fimmta sæti með 64.931 kind.
Suðvesturumdæmi rekur svo lestina
með 2.216 kindur.
Nautgripum hefur fjölgað
um 35% frá 1980
Í árslok 2019 voru 80.872 naut-
gripir í landinu og þar af voru
26.217 mjólkurkýr og 2.891
holdakýr. Nautgriparæktin hefur
eflst mjög á landinu síðan 1980
þegar nautgripir voru alls 59.933.
Þeim fjölgaði í 72.889 árið 1985
og fóru í 74.889 gripi árið 1990.
Heldur fór síðan að fækka í stofn-
inum og árið 1995 voru gripirnir
73.195 og 72.135 árið 2000. Lægst
fór talan svo í 65.979 gripi árið
2005 en fjölgaði síðan í 73.781
grip árið 2010. Næstu tvö ár var
talan undir 70.000 en fór í 74.444
gripi árið 2014. Þá fór að fjölga og
voru nautgripirnir flestir 81.636
árið 2018, en voru sem fyrr segir
80.872 árið 2019.
Langflestir nautgripir
eru í Suðurumdæmi
Suðurumdæmi er langöflugasta
nautgriparæktarhérað landsins
með 30.712 gripi árið 2019. Í
öðru sæti var Norðausturumdæmi
með 18.025 gripi. Síðan kom
Norðvesturumdæmi í þriðja sæti
með 14.138 gripi og Vesturumdæmi
var í fjórða sæti með 12.042 gripi.
Í fimmta sæti var Austurumdæmi
með 4.653 gripi og í sjötta sæti var
svo Suðvesturumdæmi með 1.302
nautgripi. /HKr.
– Sjá nánar bls. 2
Ekki færra sauðfé á Íslandi í 40 ár
– Fækkunin nemur um 50%, en nautgripum hefur fjölgað um 35% á sama tímabili
827.927
709.257
548.508
458.341 465.777 454.950 479.841 480.656
415.949
0
100.000
200.000
300.000
400.000
500.000
600.000
700.000
800.000
900.000
1975 1980 1985 1990 1995 2000 2005 2010 2015 2020 2025
Þróun sauðfjáreignar á Íslandi á 40 ára tímabili (Vetrarfóðrað sauðfé samkvæmt haustskýrslum)
Heimild: Hagstofa Íslands
Bæ
nd
ab
la
ði
ð
/ H
Kr
.
2019
Málar fugla í gríð og erg
við miklar vinsældir
3022
Bændalúrinn er
öllum hollur
34
Bróðurpartur íbúa hefur búið
annars staðar en í sveitinni
Metframleiðsla
á mjólk milli ára
Samanlögð 12 mánaða framleiðsla
á mjólk, miðað við mars ár hvert,
hefur aldrei verið meiri heldur en
í mars 2020.
Að liðnum fyrstu 15 vikum ársins
2020 hefur mjólkurframleiðslan
verið mitt á milli þess sem hún var
á sama tíma árin 2018 og 2019.
Síðastliðin þrjú ár, 2017–2019, voru
metár í mjólkurframleiðslu, en aldrei
hefur verið framleitt jafn mikil mjólk
á ársgrunni og á þeim árum.
Framleiðslan jókst um 2,6%
frá apríl 2019 til mars 2020
Á síðustu 12 mánuðum, þ.e. apríl
2019 til mars 2020, var samanlögð
mjólkurframleiðsla 153,7 milljónir
lítra. Það er um 2,6% meiri fram-
leiðsla en á 12 mánaða tímabilinu
þar á undan.
Umreiknuð sala á innanlands-
markaði nam 147,7 milljónum á
fitugrunni og 126,3 milljónum á
próteingrunni. Salan á fitugrunni
hefur aukist um 2,06% en dregist
saman um 1,47% á próteingrunni á
þessu tímabili.
Í Mjólkurpóstinum, fréttabréfi
Mjólkursamsölunnar, segir Pálmi
Vilhjálmsson, aðstoðarforstjóri MS,
að með tilliti til þeirra aðstæðna sem
nú ríkja í samfélaginu verði mjög
brýnt að fylgjast grannt með þróun
í öllum starfsþáttum. Þar með talinni
mjólkurframleiðslu, sölu og birgða-
haldi. /HKr.