Bændablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 49

Bændablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 2020 49 Ég held að við séum öll sammála um að hægt er að skipta um skoðun. Og ef reynslan kennir að það gæti verið skynsamlegt þá er einboðið að gera það. En er hægt að banna veirur? Það heldur ríkisstjórn Íslands og Alþingi. Þegar ákveðið var að leggja árar í bát og gefast upp gagn­ vart regluverki EES samningsins og heimila innflutning á hráu kjöti var því lýst yfir að þetta væri í góðu lagi því Íslendingar hefðu ákveðið að taka forystu á heimsvísu – eins og stundum áður – að þessu sinni í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi. „Fyrsta þjóðin í heiminum“ Eftir að ákveðið var að opna fyrir innflutning á hráu kjöti „tók ríkis­ stjórnin þá ákvörðun að Íslend ingar yrðu fyrsta þjóðin í heim inum til að banna dreifingu og sölu á mat­ vælum sem innihalda ákveðnar tegundir af sýklalyfjaónæmum bakteríum“. Þetta skrifar stjórnar­ þingmaður í dagblað fyrir fáeinum vikum en áður hafði ríkisstjórnin kynnt þjóðinni í hlaðvarpanum á Tilraunastöð Háskólans á Keldum „aðgerðaáætlun í 17 liðum“ til að efla matvælaöryggi. Þótti sumum ósmekklegt að tilkynna undanhaldið á Keldum þaðan sem kraftmestu varnaðarorðin hafa komið í áratugi gegn hvers kyns tilslökunum hvað varðar matvælaöryggi. Heilsufar ofar viðskiptahagsmunum Varnaðarorð okkar bestu sér­ fræðinga í gegnum tíðina eru ófá. Í því sambandi má til dæmis minna á fyrirlestra og greina­ skrif manna á borð við Vilhjálm Svansson, dýralækni á Keldum, og Karl G. Kristinsson, prófessor við Háskóla Íslands og yfirlækni sýklafræðideildar Landspítalans. Málflutningur þeirra og margra annarra sem tekið hafa í svipaðan streng varð til þess að margir vildu nú endurmat á EES samningnum í ljósi þeirrar vaxandi vár sem sýkla­ lyfjaónæmi væri að verða í heim­ inum. Í þeim samningi er einmitt ákvæði sem segir að heilsufars­ ástæður eigi að vega þyngra en viðskiptaleg sjónarmið – nokkuð sem ætti að skiljast betur nú en fyrir kórónainnrásina. Þá minnist ég fundar á vegum Framsóknarflokksins á Hótel Sögu á síðasta ári þar sem einum fremsta vísindamanni Bandaríkjanna á þessu sviði, Lance Price, prófess­ or við George Washington háskóla, hafði verið boðið að halda fyrir­ lestur. Hann var spurður hvort hann ætti eitthvert eitt ráð handa íslenskum stjórnvöldum. Slíkt ráð átti hann: Ekki gefa eftir þá öfundsverðu stöðu sem þið hafið með ströngum innflutningstakmörkunum. Þannig getið þið best spornað við því að þið fáið sýklalyfjaónæmi inn á ykkar matborð. Getum heft sýklaberann en síður sýkilinn Þarna birtist kjarni málsins. Allir vilja sporna gegn óæskilegum veirum og bakteríum. Spurningin er hvernig það verði best gert. Og svar sérfræðinganna var að það yrði best gert með fyrirbyggjandi aðgerðum. Halda eigi á okkar matborði, eftir því sem nokkur kostur er, einvörð­ ungu vörum sem bera ekki smit og allra síst bakteríur sem eru orðnar ónæmar fyrir sýkla lyfj um eins og er að finna í vaxandi magni í kjötvöru sem í framtíðinni verður á matseðli Íslendinga í boði ríkisstjórnar og Alþingis. Með ströngum innflutnings­ takmörkunum má hins vegar draga úr líkum á smiti. Allt snýst um líkur. Þeim þankagangi kynnumst við vel þessa dagana í stríðinu við veiruna ágengu. Hún er ósýnileg mannlegu auga, smýgur hvarvetna sem smogið verður. Spurningin snýst þá um að takmarka ferðamöguleika hennar. Hægt að skipta um skoðun Lærdómurinn, fyrr og rækilega staðfestur nú síðar, er að við getum sett skorður við ferðum fólks og flutningi á matvöru sem kann að bera smit. En eftir stendur að hvorki bakteríur né veirur getum við bannað með lögum. Jafnvel fremsta þjóð í heiminum er þess ekki umkomin. Hún getur hins vegar endurskoð­ að fyrri afstöðu reynist hún hafa verið röng. Til dæmis gæti ríkis­ stjórn og Alþingi endurskoðað áður veittar heimildir til innflutnings á hráu kjöti. Ögmundur Jónasson. Þegar sjúkdómsfaraldur geis- ar er gjarnan talað um að fólk sé „útsett“ fyrir sjúkdómnum. Hér er á ferðinni orð sem er fengið að láni frá skandinav- ísku málunum; udsat/utsatt. Mér finnst þetta orð ekki passa vel inn í íslenskt mál því merking þess er mjög ólík merkingunni þegar orðin eru aðskilin – út settur. Á mínu heimili eru flækingskettir skil­ yrðislaust út settir ef þeir sleppa inn. Hlutverk heilbrigðisyfir­ valda er að vinna að því að umgangspestir séu út settar úr íslensku samfélagi eins og aðrir flækingar. Tónlist er útsett en það ber nýrra við ef hljóðfæraleikarar eru það líka! Mér finnst eðlilegra að segja að þeir séu berskjaldaðir eða næmir fyrir smiti frekar en að þeir séu útsettir enda kallast vörn líkamans ónæmiskerfi. Þorsteinn Guðmundsson MÁLFAR&MÁLNOTKUN Útsettur LESENDABÁS Hvort er auðveldara að banna veirur eða skipta um skoðun? Ögmundur Jónasson. Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 KÚPLINGAR í flestar gerðir dráttarvéla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.