Bændablaðið - 07.05.2020, Page 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 2020 49
Ég held að við séum öll sammála
um að hægt er að skipta um
skoðun. Og ef reynslan kennir að
það gæti verið skynsamlegt þá er
einboðið að gera það. En er hægt
að banna veirur?
Það heldur ríkisstjórn Íslands
og Alþingi. Þegar ákveðið var að
leggja árar í bát og gefast upp gagn
vart regluverki EES samningsins og
heimila innflutning á hráu kjöti var
því lýst yfir að þetta væri í góðu
lagi því Íslendingar hefðu ákveðið
að taka forystu á heimsvísu – eins
og stundum áður – að þessu sinni í
baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi.
„Fyrsta þjóðin í heiminum“
Eftir að ákveðið var að opna fyrir
innflutning á hráu kjöti „tók ríkis
stjórnin þá ákvörðun að Íslend ingar
yrðu fyrsta þjóðin í heim inum til
að banna dreifingu og sölu á mat
vælum sem innihalda ákveðnar
tegundir af sýklalyfjaónæmum
bakteríum“. Þetta skrifar stjórnar
þingmaður í dagblað fyrir fáeinum
vikum en áður hafði ríkisstjórnin
kynnt þjóðinni í hlaðvarpanum á
Tilraunastöð Háskólans á Keldum
„aðgerðaáætlun í 17 liðum“ til
að efla matvælaöryggi. Þótti
sumum ósmekklegt að tilkynna
undanhaldið á Keldum þaðan
sem kraftmestu varnaðarorðin
hafa komið í áratugi gegn hvers
kyns tilslökunum hvað varðar
matvælaöryggi.
Heilsufar ofar
viðskiptahagsmunum
Varnaðarorð okkar bestu sér
fræðinga í gegnum tíðina eru ófá.
Í því sambandi má til dæmis
minna á fyrirlestra og greina
skrif manna á borð við Vilhjálm
Svansson, dýralækni á Keldum,
og Karl G. Kristinsson, prófessor
við Háskóla Íslands og yfirlækni
sýklafræðideildar Landspítalans.
Málflutningur þeirra og margra
annarra sem tekið hafa í svipaðan
streng varð til þess að margir vildu
nú endurmat á EES samningnum í
ljósi þeirrar vaxandi vár sem sýkla
lyfjaónæmi væri að verða í heim
inum. Í þeim samningi er einmitt
ákvæði sem segir að heilsufars
ástæður eigi að vega þyngra en
viðskiptaleg sjónarmið – nokkuð
sem ætti að skiljast betur nú en fyrir
kórónainnrásina.
Þá minnist ég fundar á vegum
Framsóknarflokksins á Hótel Sögu
á síðasta ári þar sem einum fremsta
vísindamanni Bandaríkjanna á
þessu sviði, Lance Price, prófess
or við George Washington háskóla,
hafði verið boðið að halda fyrir
lestur. Hann var spurður hvort
hann ætti eitthvert eitt ráð handa
íslenskum stjórnvöldum. Slíkt ráð
átti hann:
Ekki gefa eftir þá öfundsverðu
stöðu sem þið hafið með ströngum
innflutningstakmörkunum. Þannig
getið þið best spornað við því að þið
fáið sýklalyfjaónæmi inn á ykkar
matborð.
Getum heft sýklaberann
en síður sýkilinn
Þarna birtist kjarni málsins. Allir
vilja sporna gegn óæskilegum
veirum og bakteríum. Spurningin er
hvernig það verði best gert. Og svar
sérfræðinganna var að það yrði best
gert með fyrirbyggjandi aðgerðum.
Halda eigi á okkar matborði, eftir
því sem nokkur kostur er, einvörð
ungu vörum sem bera ekki smit og
allra síst bakteríur sem eru orðnar
ónæmar fyrir sýkla lyfj um eins og er
að finna í vaxandi magni í kjötvöru
sem í framtíðinni verður á matseðli
Íslendinga í boði ríkisstjórnar og
Alþingis.
Með ströngum innflutnings
takmörkunum má hins vegar draga
úr líkum á smiti. Allt snýst um líkur.
Þeim þankagangi kynnumst við vel
þessa dagana í stríðinu við veiruna
ágengu. Hún er ósýnileg mannlegu
auga, smýgur hvarvetna sem smogið
verður. Spurningin snýst þá um að
takmarka ferðamöguleika hennar.
Hægt að skipta um skoðun
Lærdómurinn, fyrr og rækilega
staðfestur nú síðar, er að við getum
sett skorður við ferðum fólks og
flutningi á matvöru sem kann
að bera smit. En eftir stendur að
hvorki bakteríur né veirur getum
við bannað með lögum. Jafnvel
fremsta þjóð í heiminum er þess
ekki umkomin.
Hún getur hins vegar endurskoð
að fyrri afstöðu reynist hún hafa
verið röng. Til dæmis gæti ríkis
stjórn og Alþingi endurskoðað áður
veittar heimildir til innflutnings á
hráu kjöti.
Ögmundur Jónasson.
Þegar sjúkdómsfaraldur geis-
ar er gjarnan talað um að fólk
sé „útsett“ fyrir sjúkdómnum.
Hér er á ferðinni orð sem er
fengið að láni frá skandinav-
ísku málunum; udsat/utsatt.
Mér finnst þetta orð ekki
passa vel inn í íslenskt mál
því merking þess er mjög ólík
merkingunni þegar orðin eru
aðskilin – út settur. Á mínu
heimili eru flækingskettir skil
yrðislaust út settir ef þeir sleppa
inn. Hlutverk heilbrigðisyfir
valda er að vinna að því að
umgangspestir séu út settar úr
íslensku samfélagi eins og aðrir
flækingar.
Tónlist er útsett en það ber
nýrra við ef hljóðfæraleikarar
eru það líka! Mér finnst
eðlilegra að segja að þeir
séu berskjaldaðir eða næmir
fyrir smiti frekar en að þeir
séu útsettir enda kallast vörn
líkamans ónæmiskerfi.
Þorsteinn Guðmundsson
MÁLFAR&MÁLNOTKUN
Útsettur
LESENDABÁS
Hvort er auðveldara að banna
veirur eða skipta um skoðun?
Ögmundur Jónasson.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KÚPLINGAR í flestar
gerðir dráttarvéla