Bændablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 41

Bændablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 2020 41 Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 STARTARAR í flestar gerðir dráttarvéla SELDU HRYSSUR TIL LÍFS Hrossabændur óska eftir hryssum Mega vera þriggja til fimmtán vetra Hækkað verð: Greiðum 35.000 kr. án vsk. fyrir hryssuna Sækjum frítt á Suður-, Vestur- og Norðurland. Upplýsingar: hryssa@isteka.com eða í síma 581-4138. Geymið auglýsinguna! Hryssur eru greiddar eftir reikningi og eftir umskráningu í WorldFeng. EINFÖLD HÚS - AUÐVELD UPPSETNING 8 x 20 x 3 m - 7.200.000 kr. m/vsk. 10 x 20 x 3 m - 8.700.000 kr. m/vsk. 12 x 30 x 3,5 m - 12.200.000 kr. m/vsk. 18 x 35 x 3,5 m - 18.000.000 kr. m/vsk. 12 x 20m - 5.150.000 kr. m/vsk. 12 x 30 m - 6.600.000 kr. m/vsk. 12 x 50 m - 9.900.000 kr. m/vsk. 15 x 30 m - 9.950.000 kr. m/vsk. 15 x 40 m - 12.500.000 kr. m/vsk. 15 x 50 m - 14.650.000 kr. m/vsk. BOGAHÚS Hagstæð verð Z STÁLGRINDARHÚS TÖLVUPÓSTUR sala@bkhonnun . is SÍMI 865-9277 VEFFANG www .bkhonnun . is Innifalið eru stálbogar, langbönd, klæðning, rennihurð & teikningar. Afgreiðslufrestur 8-10 vikur Þaulreynd hús við íslenskar aðstæður Innifalið Z stálgrind, 40 mm. PIR yleiningar á veggi og þak, skrúfur, festingar og áfellur og teikningar. KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is Opnar stöðvar Stöðvar í húsi Stöðvar í gám Aukabúnaður eins og sjálfvirkur skiptirofi og fleira Öflug og góð þjónusta Gerðu kröfur — hafðu samband við Karl í síma 590 5125 eða sendu línu á kg@klettur.is og kynntu þér þína möguleika. Allar stærðir af AJ Power rafstöðvum: Eins og við höfum rækilega verið minnt á þá eru stjórnvöld víðast hvar í heiminum fljót að skella í lás þegar áföll ganga yfir og sum hver banna nú m.a. útflutn- ing á heilbrigðisbúnaði til þess að tryggja sig fyrst. Stjórnvöld gera allt til að verja þegna síns lands. Varabirgðir Finna eru gott dæmi, en þeir hafa lengi átt tölu- vert magn hjúkrunarbúnaðar í öryggisskyni. Hér á landi voru til vandaðar og margæfðar við- bragðsáætlanir við heimsfaraldri inflúensu, þökk sé framsýnum sóttvarnaryfirvöldum. Fæðuöryggi er eitt af því fyrsta sem fólk hefur áhyggjur af þegar neyðarástand skapast. Hvaða ráð- stafana hefði verið gripið til ef um hefði verið að ræða illvígan bráðsmitandi plöntu- eða dýrasjúk- dóm? Slíkir sjúkdómar hafa nú þegar valdið miklum usla og því er spáð að ýmiss konar sjúkdómar verði algengari á komandi árum og ára- tugum vegna hlýnunar loftslags. Nýsköpun lykilatriði Íslensk landbúnaðarframleiðsla er, líkt og stærstur hluti allrar land- búnaðarframleiðslu í heiminum, háð margvíslegum innfluttum að- föngum s.s. olíu, fóðri, áburði og tækjum. Því meira sem hægt er að draga úr þörf fyrir þessi aðföng því öruggari erum við fyrir ytri áföllum. Nú stöndum við frammi fyrir því að reyna að gera okkur grein fyrir því hvernig samfélagið okkar verður að faraldrinum loknum. Þá er vert að skoða betur landbúnaðarfram- leiðslu okkar m.t.t. fæðuöryggis þjóðarinnar og hvernig stuðningi við landbúnaðinn er háttað. Til dæmis þarf að athuga hvar göt eru í núver- andi kerfi – göt sem stoppa þarf í til að allar greinar njóti sannmælis. Jafnframt þarf að endurmeta hvort ekki sé, út frá þjóðhagslegu tilliti, skynsamlegt að auka enn frekar stuðning við innlenda matvælafram- leiðslu. Þannig getum við aukið fæðuöryggi landsins en jafnframt stutt við aðlögun búskaparhátta að kolefnishlutleysi. Bændur hafa ítrekað lýst yfir vilja sínum til þess að gera landbúnað loftslagsvænni og því þarf að aðlaga stuðningskerfin að þeim markmiðum. Ríkisstjórnin ákvað, sem hluta af viðbrögðum sínum við efnahags- legum áhrifum af Covid-19, að flýta stofnun Matvælasjóðs og leggja honum til 500 millj. króna aukalega. Þar með væri kominn mjög öflugur 800 millj. króna sjóður til stuðnings innlendri matvælaframleiðslu. Mörg spennandi nýsköpunarverkefni ættu að geta fengið fjármagn úr sjóðn- um. Verkefni sem munu draga úr þörfinni á innflutningi t.d. á áburði, úrvinnsla olíu úr repju, vinnsla próteins til manneldis úr grasi, nýjar plöntutegundir sem vaxið geta hér á landi o.fl. Einnig var ákveðið að bæta verulega í stuðning við græn- metisframleiðsluna í landinu með varanlegu 200 millj. króna framlagi. Þeir fjármunir munu væntanlega auka enn frekar framboð á innlendu grænmeti þegar líður á árið. Vanmetum ekki náttúruna Þegar rykið sest munum við þurfa að leggjast yfir hvaða viðbúnað við þurfum að viðhafa m.t.t. atburða á borð við Covid-19. Huga verður að því hvernig við högum smitvörnum innanlands varðandi búfjársjúk- dóma, hvaða birgðir þurfa ætíð að vera til og í hve miklu magni svo dæmi séu tekin. Sennilega er mikilvægasti lær- dómurinn sem við eigum að draga af þessum hamförum að vanmeta ekki náttúruna og halda að við getum stjórnað henni. Þetta þekkja bænd- ur sem við hana glíma alla daga. Stærsta áskorun næstu áratuga er að koma í veg fyrir hamfarir vegna loftslagsbreytinga. Með skynsam- legum ráðstöfunum má auka fæðu- öryggi þjóðarinnar og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með því að styðja við innlenda mat- vælaframleiðslu. Það er hagkvæmt og nauðsynlegt því við tryggjum ekki eftir á. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Höfundur er þingflokksformað- ur Vinstri grænna. LESENDABÁS Græn endurreisn Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir. Bænda 20. maí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.