Bændablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 2020 41
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STARTARAR í flestar
gerðir dráttarvéla
SELDU HRYSSUR TIL LÍFS
Hrossabændur
óska eftir hryssum
Mega vera þriggja til fimmtán vetra
Hækkað verð:
Greiðum 35.000 kr. án vsk. fyrir hryssuna
Sækjum frítt á Suður-, Vestur- og Norðurland.
Upplýsingar: hryssa@isteka.com eða í síma 581-4138.
Geymið auglýsinguna!
Hryssur eru greiddar eftir reikningi og eftir umskráningu í WorldFeng.
EINFÖLD HÚS - AUÐVELD UPPSETNING
8 x 20 x 3 m - 7.200.000 kr. m/vsk.
10 x 20 x 3 m - 8.700.000 kr. m/vsk.
12 x 30 x 3,5 m - 12.200.000 kr. m/vsk.
18 x 35 x 3,5 m - 18.000.000 kr. m/vsk.
12 x 20m - 5.150.000 kr. m/vsk.
12 x 30 m - 6.600.000 kr. m/vsk.
12 x 50 m - 9.900.000 kr. m/vsk.
15 x 30 m - 9.950.000 kr. m/vsk.
15 x 40 m - 12.500.000 kr. m/vsk.
15 x 50 m - 14.650.000 kr. m/vsk.
BOGAHÚS
Hagstæð verð
Z STÁLGRINDARHÚS
TÖLVUPÓSTUR
sala@bkhonnun . is
SÍMI
865-9277
VEFFANG
www .bkhonnun . is
Innifalið eru stálbogar, langbönd, klæðning,
rennihurð & teikningar.
Afgreiðslufrestur 8-10 vikur
Þaulreynd hús við íslenskar aðstæður
Innifalið Z stálgrind, 40 mm. PIR yleiningar á veggi
og þak, skrúfur, festingar og áfellur og teikningar.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Opnar stöðvar
Stöðvar í húsi
Stöðvar í gám
Aukabúnaður eins og sjálfvirkur
skiptirofi og fleira
Öflug og góð þjónusta
Gerðu kröfur — hafðu samband við
Karl í síma 590 5125 eða sendu línu
á kg@klettur.is og kynntu þér þína
möguleika.
Allar stærðir
af AJ Power
rafstöðvum:
Eins og við höfum rækilega verið
minnt á þá eru stjórnvöld víðast
hvar í heiminum fljót að skella
í lás þegar áföll ganga yfir og
sum hver banna nú m.a. útflutn-
ing á heilbrigðisbúnaði til þess
að tryggja sig fyrst. Stjórnvöld
gera allt til að verja þegna síns
lands. Varabirgðir Finna eru gott
dæmi, en þeir hafa lengi átt tölu-
vert magn hjúkrunarbúnaðar í
öryggisskyni. Hér á landi voru
til vandaðar og margæfðar við-
bragðsáætlanir við heimsfaraldri
inflúensu, þökk sé framsýnum
sóttvarnaryfirvöldum.
Fæðuöryggi er eitt af því fyrsta
sem fólk hefur áhyggjur af þegar
neyðarástand skapast. Hvaða ráð-
stafana hefði verið gripið til ef
um hefði verið að ræða illvígan
bráðsmitandi plöntu- eða dýrasjúk-
dóm? Slíkir sjúkdómar hafa nú þegar
valdið miklum usla og því er spáð
að ýmiss konar sjúkdómar verði
algengari á komandi árum og ára-
tugum vegna hlýnunar loftslags.
Nýsköpun lykilatriði
Íslensk landbúnaðarframleiðsla er,
líkt og stærstur hluti allrar land-
búnaðarframleiðslu í heiminum,
háð margvíslegum innfluttum að-
föngum s.s. olíu, fóðri, áburði og
tækjum. Því meira sem hægt er að
draga úr þörf fyrir þessi aðföng því
öruggari erum við fyrir ytri áföllum.
Nú stöndum við frammi fyrir því
að reyna að gera okkur grein fyrir
því hvernig samfélagið okkar verður
að faraldrinum loknum. Þá er vert
að skoða betur landbúnaðarfram-
leiðslu okkar m.t.t. fæðuöryggis
þjóðarinnar og hvernig stuðningi við
landbúnaðinn er háttað. Til dæmis
þarf að athuga hvar göt eru í núver-
andi kerfi – göt sem stoppa þarf í
til að allar greinar njóti sannmælis.
Jafnframt þarf að endurmeta hvort
ekki sé, út frá þjóðhagslegu tilliti,
skynsamlegt að auka enn frekar
stuðning við innlenda matvælafram-
leiðslu. Þannig getum við aukið
fæðuöryggi landsins en jafnframt
stutt við aðlögun búskaparhátta
að kolefnishlutleysi. Bændur hafa
ítrekað lýst yfir vilja sínum til þess
að gera landbúnað loftslagsvænni og
því þarf að aðlaga stuðningskerfin
að þeim markmiðum.
Ríkisstjórnin ákvað, sem hluta
af viðbrögðum sínum við efnahags-
legum áhrifum af Covid-19, að flýta
stofnun Matvælasjóðs og leggja
honum til 500 millj. króna aukalega.
Þar með væri kominn mjög öflugur
800 millj. króna sjóður til stuðnings
innlendri matvælaframleiðslu. Mörg
spennandi nýsköpunarverkefni ættu
að geta fengið fjármagn úr sjóðn-
um. Verkefni sem munu draga úr
þörfinni á innflutningi t.d. á áburði,
úrvinnsla olíu úr repju, vinnsla
próteins til manneldis úr grasi, nýjar
plöntutegundir sem vaxið geta hér
á landi o.fl. Einnig var ákveðið að
bæta verulega í stuðning við græn-
metisframleiðsluna í landinu með
varanlegu 200 millj. króna framlagi.
Þeir fjármunir munu væntanlega
auka enn frekar framboð á innlendu
grænmeti þegar líður á árið.
Vanmetum ekki náttúruna
Þegar rykið sest munum við þurfa
að leggjast yfir hvaða viðbúnað við
þurfum að viðhafa m.t.t. atburða á
borð við Covid-19. Huga verður að
því hvernig við högum smitvörnum
innanlands varðandi búfjársjúk-
dóma, hvaða birgðir þurfa ætíð að
vera til og í hve miklu magni svo
dæmi séu tekin.
Sennilega er mikilvægasti lær-
dómurinn sem við eigum að draga af
þessum hamförum að vanmeta ekki
náttúruna og halda að við getum
stjórnað henni. Þetta þekkja bænd-
ur sem við hana glíma alla daga.
Stærsta áskorun næstu áratuga er
að koma í veg fyrir hamfarir vegna
loftslagsbreytinga. Með skynsam-
legum ráðstöfunum má auka fæðu-
öryggi þjóðarinnar og draga úr
losun gróðurhúsalofttegunda með
því að styðja við innlenda mat-
vælaframleiðslu. Það er hagkvæmt
og nauðsynlegt því við tryggjum
ekki eftir á.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
Höfundur er þingflokksformað-
ur Vinstri grænna.
LESENDABÁS
Græn endurreisn
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
Bænda
20. maí