Bændablaðið - 07.05.2020, Side 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 20204
FRÉTTIR
Trausti Hjálmarsson, sauðfjárbóndi í Austurhlíð í Biskupstungum og stjórnarmaður í LS:
Ekki heyrt af vandamálum við
mönnun starfa á sauðburði
– Lengra burðartímabil í Austurhlíð svo ekki er þörf á utanaðkomandi aðstoð
Trausti Hjálmarsson, sauðfjár
bóndi í Austurhlíð í Biskups
tungum og stjórnarmaður í
Lands samtökum sauðfjárbænda,
segir að hann hafi ekki heyrt af
vanda málum sauðfjárbænda við
mönnun starfa á sauðburði. Sjálf
þurfi þau ekki að leita að starfs
fólki utan bús, þar sem burðar
tímabilið sé langt og því dreifðara
álag.
„Ætli það séu ekki um sex hund-
ruð kindur sem munu bera hjá okkur.
Til að þurfa ekki mikinn viðbótar-
mannskap almennt á sauðburði – fyrir
utan okkur fjölskylduna – þá höfum
við frekar lengt í sauðburðartímabil-
inu. Við eigum fjóra duglega krakka
sem hjálpa okkur og það dugar til.
Vinnum þá í tveimur hópum.
En þó við lengjum í sauðburðinum
og ráðum ekki til okkar starfskraft,
þá koma nú fjölskylda og vinir dag
og dag og létta undir,“ segir Trausti.
Sumir hafa treyst
á erlent vinnuafl
„Ég veit hins vegar til þess að mörg
af stærri búunum hafa um nokkurt
skeið treyst á vinnuafl erlendis frá,
það var búið að ganga frá ráðningu
á fólki sem svo ekki komst til lands-
ins. Það sem maður hefur heyrt er
að flestir hafi farið fljótlega í að
leita annarra lausna. Fólk reynir þá
að nýta tengsl og fjölskyldubönd til
að manna þessi störf. Auðvitað ætl-
aði enginn að láta taka sig í bólinu
með þetta þegar það fór að skýrast
hvernig þetta var allt að þróast. Þá
fóru bændur náttúrlega að undir-
búa sig og tryggja sig fyrir þetta
tímabil með baklandi sínu. Ég vona
bara að allir þeir sem þurftu að fara
aðrar leiðir í að manna þessi störf
hafi gert viðeigandi ráðstafanir, til
að tryggja sína velferð og dýranna.
Ég hef ekki heyrt af neinum vanda-
málum í kringum mig.“
Þurfum áfram að gæta að okkur
Við þurfum auðvitað að gæta að
okkur áfram, því það eru reglur
enn í gangi. Fólk vinnur þá frekar
saman sem býr undir sama þaki og
eru í nánum samskiptum frá degi til
dags. Maður heyrir ekki annað en
að flestir séu bara jákvæðir, það er
helst að það séu áhyggjur á ákveðnum
landsvæðum út af kali.
„Sauðburður, það sem af er, geng-
ur mjög vel. Gott heilbrigði í lömbum
og féð virðist heilt yfir, samkvæmt
því sem maður heyrir, vel framgengið
eftir veturinn. Svo hjálpar tíðarfarið
núna heilmikið, alls staðar þurrt um
og í húsum – og auðvitað gott að
koma fénu út í hey.
„Sauðburðurinn er svona að kom-
ast í fullan gang, en það er um vika
síðan þetta fór af stað,“ sagði Trausti
þegar rætt var við hann um miðja
síðustu viku. Maður verður var við
það á samfélagsmiðlum að það er
heilmikið að gerast vítt og breitt um
landið á sauðburði – það er til dæmis
gaman að fylgjast með Snapchat-
reikningum bænda. /smh
Lambamjólkurduft
Egilsholti 1
310 Borgarnesi
Sími: 430-5500
-Óerfðabreytt innihaldsefni
-Hátt hlutfall mjólkurprótína
-Auðmeltanleg prótín
-Inniheldur góða gerlaflóru
-Einstaklega bragðgott
-Hentar einnig fyrir kið
-Auðuppleysanlegt
-Inniheldur sýringaduft
Pantaðu á netverslun okkar
www.kb.is
Sendum um allt land
Verð
16.490 m/vsk
Gemlingarnir komnir í rúllu.
Fyrstu gemlingarnir settir út í vorið. Trausti með Ingibjörgu Elínu, 4 ára.
Guðfinna Harpa Árnadóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda:
Vinir og ættingjar eru til aðstoðar
– Tvær beiðnir borist afleysingaþjónustu Bændasamtaka Íslands og búnaðarsambandanna
Nokkur umræða hefur verið á
undanförnum vikum um mögu
leg vandamál stærri sauðfjárbúa
við mönnun starfa á sauðburði á
tímum COVID19 farsóttarinn
ar. Unnsteinn Snorri Snorrason,
framkvæmdastjóri Landssamtaka
sauðfjárbænda, skrifaði um nokkr
ar hliðar þessara mála í síðasta
Bændablað. Mælti hann með því
að þeir bændur sem ættu eftir
að útvega sér vinnuafl á sauð
burði leituðu til afleysingaþjón
ustu bænda, sem haldið er úti af
Bændasamtökum Íslands (BÍ) í
samvinnu við búnaðarsamböndin.
Það virðist hafa verið raunin í ein
hverjum tilvikum, þó langflestir
sem þurftu utanaðkomandi aðstoð
hafi leitað annarra leiða.
Guðbjörg Jónsdóttir, verkefna-
stjóri hjá BÍ, hefur tekið stöðuna
hjá búnaðarsamböndunum varðandi
það hvort einhver eftirspurn hafi
verið hjá sauðfjárbændum að þiggja
aðstoð frá afleysingaþjónustunni.
„Það hafa örfáar beiðnir um mönnun
á sauðburði borist til búnaðarsam-
bandanna; ein á Suðurlandi og önnur
í Húnavatnssýslum, en ekkert í öðrum
landshlutum. Þessir aðilar sem réðu
sig á viðkomandi bú voru á lista bak-
varðarsveitar í landbúnaði sem sett
var á fót vegna COVID-19. Þessir
aðilar voru ákaflega þakklátir að fá
starf,“ segir Guðbjörg.
Bændur hafa unnið í
málunum undanfarnar vikur
Guðfinna Harpa Árnadóttir, formaður
Landssamtaka sauðfjárbænda, segir
nokkur af stærri búunum hafi haft er-
lent vinnuafl á sauðburði undanfarin
ár en það verði í fæstum tilfellum af
því þetta árið. „Þeir bændur hafa verið
að leysa sín mál undanfarnar vikur
og vonandi hefur það alls staðar
gengið upp. Í einhverjum tilfellum
hafa þeir bændur leitað til aðila
sem gáfu sig fram á afleysinga-
lista BÍ og búnaðarsambandanna
vegna veikinda bænda af völdum
COVID-19. Þá hafa flestir bændur
fengið ættingja og aðra vini til að-
stoðar í sauðburði, til dæmis um
helgar eða yfir mesta álagstímann,
en margir hafa haft áhyggjur af því
að það muni ekki ganga upp þetta
árið. Eftir því sem nýjum og virkum
smitum fækkar aukast þó líkurnar á
því að það verði mögulegt sé var-
kárni gætt.
Það er því mikilvægt tengt sauð-
burðinum eins og alls staðar í sam-
félaginu að allir fari vel eftir fyrir-
mælum stjórnvalda svo síður komi
upp aukið smit að nýju. Ég held að
flestir bændur hafi nýtt fyrri hluta
apríl til að viða að sér þeim aðföng-
um sem þarf í sauðburðinn og hafi
svo haldið sig heima og alveg lokað
sínum búum fyrir utanaðkomandi
til að verjast smiti. Ég hef heyrt
nokkuð af því að það sama hafi
gilt um það vinnuafl sem bændur
fá, hafi það verið mögulegt, að þeir
aðilar hafi farið í tveggja vikna sjálf-
skipaða sóttkví núna seinni hluta af
aprílmánuði en það er auðvitað ekki
í öllum tilfellum mögulegt,“ segir
Guðfinna Harpa.
Sauðburður hófst
28. apríl á Straumi
„Sauðburður var að hefjast með
sæðingalömbum núna 28. apríl
og fer svo á fullt um og upp úr
helginni,“ segir Guðfinna Harpa
spurð um hvernig málum hátti til hjá
henni á Straumi. „Við erum yfirleitt
fjögur í sauðburðinum en höfum svo
eins og flestir fengið aðstoð ættingja
á kvöldin og um helgar og hafa þeir
haldið sig sérstaklega til hlés til að
geta komið til okkar. Við eigum til
dæmis einn háskólanema sem er bú-
inn að vera í hálfsmánaðar sjálfskip-
aðri sóttkví og vonandi náð að klára
flest verkefnin sín á meðan.“ /smh
Sauðburður hófst á Straumi þann 28. apríl með sæðingalömbum og er kominn
á fullt nú í byrjun maí. Mynd / Guðrún Katrín Helgadóttir
Guðfinna Harpa Árnadóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda og bóndi
á Straumi, telur að flestir bændur hafi nýtt fyrri hluta apríl til að viða að sér
þeim aðföngum sem þarf í sauðburðinn og hafi svo haldið sig heima og alveg
lokað sínum búum fyrir utanaðkomandi til að verjast smiti. Mynd / smh