Bændablaðið - 07.05.2020, Page 6
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 20206
Í upphafi þessa pistils vil ég þakka öllum
þeim sem komið hafa að viðbragðshópi
Bændasamtakanna vegna kórónufar-
aldursins fyrir vel unnin störf á erfiðum
og krefjandi tímum. Þar hafa allir unnið
sem einn maður að úrlausn mála sem snúið
hafa að landbúnaði í heild sinni.
Verkefnin hafa verið fjölbreytt og snerta
allar búgreinar, svo sem málefni einstakra
bænda, verkefni sláturhúsa, afleysingaþjón-
ustu, leiðbeiningar til bænda um umgengni á
búum og svo mætti lengi telja. Einnig vil ég
þakka bændum fyrir ábyrgð í rekstri sinna búa
þar sem um frumframleiðslu er að ræða og
nauðsyn okkar að sinna fæðuöryggi á þessum
undarlegu tímum.
Útfærsla félagsgjalda
Talsverð umræða hefur verið um aðildargjald
að Bændasamtökum Íslands, en tillaga að veltu-
tengdu gjaldi var samþykkt af Búnaðarþingi
sem haldið var í byrjun marsmánaðar. Stjórn
ræddi næstu skref á grundvelli samþykktar
þingsins á fyrsta stjórnarfundi sínum þann 12.
mars. Þar var rætt um tillögu Búnaðarþings þar
sem því var vísað til stjórnar að útfæra breytt
fyrirkomulag félagskerfis Bændasamtakanna
til næstu ára.
Á næsta fundi á eftir átti að ræða útfærslur á
aðkomu bænda að Búnaðarþingi og atkvæða-
vægi á grundvelli veltu og annarra ákvæða
sem unnið var að í aðdraganda þingsins. En
ýmislegt breyttist í störfum og áherslum með
samkomubanninu. Þetta var eitt af því sem
því miður þurfti að fresta en vinna hefur verið
sett í gang á ný þar sem við höfum heldur
rýmri tíma til að sinna öðru en COVID-19.
Það er von okkar að tillögur verði formaðar
nú í byrjun sumars og í framhaldinu kynntar
fyrir bændum.
Stöndum vörð um hagsmuni bænda
Stjórn Bændasamtakanna hefur ekki aðrar
forsendur til innheimtu félagsgjalds en þær sem
samþykktar voru á Búnaðarþingi til að reka
Bændasamtökin. Síðan er vinnan eftir við að
útfæra atkvæðavægi og skilgreiningu á öllum
aðildarfélögum innan Bændasamtakanna.
Nauðsynlegt er að einfalda fyrirkomulagið.
Í mínum huga felst mikill mannauður í þeim
starfsmönnum sem vinna nú þegar hjá BÍ og
hinum ýmsu búgreinafélögum og er mikilvægt
að skoða hvernig við nýtum þá sem best. Sama
á við um fjármuni sem fara í rekstur, bæði hjá
búgreinafélögunum og hjá Bændasamtökunum.
Ef við sem bændur höfum ekki efni á að reka
eigin hagsmunagæslu þá veit ég ekki hver á
að standa straum af henni. Bændasamtökin
eru ekki fyrir stjórn samtakanna heldur fyrir
bændur á Íslandi. Bændasamtökin bera mikla
ábyrgð á lagalegum grunni og fer til dæmis með
samningsumboð fyrir hönd bænda við gerð
búvörusamninga. Mér hefur þótt umræðan vera
á þeim grunni að það skipti litlu máli. Ég vil
hvetja bændur til að standa vörð um eigin hags-
muni og verða aðilar að Bændasamtökunum,
efla þau frekar en hitt og stefna bjartsýn inn
í framtíðina.
Enn og aftur vil ég hvetja bændur til að
skrá sig inn á Bændatorgið og uppfæra sína
félagsaðild svo við í sameiningu getum rekið
öfluga hagsmunabaráttu fyrir bændur í landinu.
Við þurfum sterkt landbúnaðarráðuneyti
Annað baráttumál bænda er að endur-
heimta landbúnaðarráðuneytið sem eftir
nokkra snúninga á síðustu árum heitir nú
atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Í
mínum huga finnst mér þessi mikilvæga
atvinnugrein fá lítið vægi innan núverandi
fyrirkomulags. Það er eitt af því sem við
verðum að taka samtal um við ríkisvaldið.
Þar þurfum við að horfa til allra mála. Ein
spurningin er af hverju skógræktin er vistuð
í umhverfisráðuneytinu. Hún á miklu frekar
heima innan landbúnaðarráðuneytisins
ásamt öðrum málefnum sem snúa beint að
bændum.
Matvælasjóður í burðarliðnum
Mikil tækifæri eru í nýstofnuðum Matvæla-
sjóði fyrir íslenskan landbúnað. Talsverð
vinna er eftir við útfærslu hins nýja sjóðs,
m.a. að móta reglur og aðra umgjörð. Ég
hvet bændur til að fylgjast með þegar auglýst
verður eftir umsóknum í sjóðinn sem verður
vonandi seinna í sumar. Með sjóðnum opnast
ýmis tækifæri til nýsköpunar í landbúnaði og
framþróunar á öllum sviðum matvælafram-
leiðslunnar.
Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum
á landinu og á öll lögbýli landsins.
Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti
gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 10.900 með vsk. (innheimt í tvennu lagi).
Ársáskrift fyrir eldri borgara og öryrkja kostar 5.450 með vsk.
Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík.
Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar −
SKOÐUN
Heimsfaraldur vegna COVID-19 hefur
kostað yfir 250 þúsund mannslíf á heims-
vísu. Vegna skilvirkra aðgerða gegn far-
aldrinum á Íslandi hefur tekist að halda
dánartölunni hlutfallslega lægri hér á
landi en þekkist í flestum öðrum löndum.
Þrátt fyrir þá ógn sem af faraldrinum
stafar, þá hafa viðbrögð við honum sýnt
að stjórnsýslan m.a. á Íslandi þarf ekki
að vera eins þunglamaleg og óskilvirk
og viðgengist hefur.
Stjórnkerfi og stjórnarhættir í vestrænum
lýðræðisríkjum hafa stöðugt verið að þróast
í átt til aukins skrifræðis. Um leið hefur
raunverulegt vald verið að færast frá lög-
lega kjörnum fulltrúum löggjafarþinga til
opinberra embættismanna. Ýktasta dæmið
um þetta er trúlega Evrópusambandið.
Fjölmargir stjórnmálamenn og fræðimenn
hafa bent á þessa þróun áratugum saman,
en á það virðist lítið hlustað. Flækjustigið
verður bara stöðugt meira og stjórnsýslan,
sem vinnur samkvæmt lögum og stöðugt
flóknara reglugerðarfargani, sem oftast er
samið af embættismönnum, verður sífellt
óskilvirkari.
Fjölmargir þingmenn sem hætt hafa
þingmennsku hafa bent á óskilvirkni þings-
ins sem alvarlegan galla í okkar stjórnkerfi.
Nú síðast Þorsteinn Víglundsson, þingmað-
ur Viðreisnar, í viðtali við Fréttablaðið.
„Alþingi er sennilega óskilvirkasti
vinnustaður sem ég hef unnið á. Ég tek
það þó fram að skilvirkni er ekkert endilega
sá mælikvarði á gæðin sem við notum fyrst,
en það er engu að síður margt sem mætti
bæta,“ sagði Þorsteinn. Þór Saari, fyrrver-
andi alþingismaður, er líka einn þeirra sem
bent hefur ítrekað á þessa vankanta í okkar
stjórnkerfi og fleiri mætti nefna.
Talandi um skilvirkni er stórfurðulegt að
enn skuli viðgangast að þingmál sem ekki
ná í gegn á vorþingum séu þurrkuð út. Oft
er búið að eyða mikilli vinnu í þessi mál. Til
að nýta það vinnuframlag væri eðlilegast
að málin væru tekin upp strax á haustþingi.
Þarna er óskapleg sóun á tíma og peningum
og almenningi sendur reikningurinn.
Af ummælum þingmanna má greinilega
ráða að brýn þörf sé á að endurskipuleggja
vinnubrögðin á Alþingi. Heimsfaraldur
vegna COVID-19 ætti að hafa kennt
mönnum að breytt vinnulag eru engin
geimvísindi. Það sýna t.d. skjót viðbrögð
ríkisstjórnar og stjórnkerfisins alls þegar á
þurfti að halda vegna faraldursins. Öllum
til undrunar virtist þá vera hægt að stíga
yfir nær ókleifa þröskulda í kerfinu við
ákvarðanatöku með örskömmum fyrirvara
um risaútgjöld ríkisins. Útgjöldum sem
engin dæmi eru um frá stofnun íslenska
lýðveldisins.
Fyrst hægt er að afgreiða slík risamál á
örskotsstundu, hvað er því þá til fyrirstöðu
að þingmenn setjist niður og ákveði að fara
í gagngera uppstokkun á öllu stjórnkerfinu
á Íslandi og verkferlum innan stofnana?
Er það t.d. eðlilegt að vegalagning á
Vestfjörðum dragist áratugum saman vegna
kerfis sem búið er að koma á, og gerir
félagasamtökum kleift að halda málinu í
gíslingu með endalausum kærum á kostnað
ríkisins?
Þykir fólki virkilega eðlilegt að hags-
munir íbúa heils landshluta í samgöngumál-
um séu fótum troðnir af félagsamtökum sem
styrkt eru af ríkinu, til að verja hagsmuni
fjársterkra eignamanna – gegn hagsmunum
íbúa og kjörinna fulltrúa þeirra. Líka gegn
lögmætum framkvæmdum ríkisfyrirtækis?
Er ekkert skrítið við það að Ríkis endur-
skoðun skuli ekki vera búin fyrir löngu að
fara í saumana á því hvað slíkur áratuga
leikaraskapur er búinn að kosta þjóðina í
beinhörðum peningum – svo ekki sé talað
um mannslíf? /HKr.
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 − Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson
smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – Auglýsingastjóri: Guðrún Hulda Pálsdóttir ghp@bondi.is – Sími: 563 0303 – Netfang auglýsinga: augl@bondi.is − Vefur blaðsins:
www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is
Frágangur fyrir prentun: Ágústa Kristín Bjarnadóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Gjögur er fornfræg veiðistöð í norðanverðum Reykjarfirði í Árneshreppi á Ströndum. Þar var vísir að þorpi á 20. öld. Nú býr þar enginn lengur allt
árið, en nokkuð er um að fólk hafi þar sumardvöl. Gjögur er utan við Sætrafjall á Reykjanesi, milli Trékyllisvíkur og Reykjarfjarðar. Þar var fræg
hákarlaveiðistöð á síðustu öld og margir voru þar í verbúðum yfir veiðitímabilið. Gengu þá oft þaðan 15–18 opin skip til hákarlaveiða samtímis
og voru 7–11 menn á hverju skipi. Mynd / Hörður Kristjánsson
Gunnar Þorgeirsson
formaður Bændasamtaka Íslands
gunnar@bondi.is
Kerfisvandi Rekum öfluga hagsmunabaráttu fyrir bændur í landinu