Bændablaðið - 07.05.2020, Síða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 2020 7
Sigríður Ævarsdóttir á bænum Gufuá í
Borgarbyggð náði nýlega þessum flottu
myndum af „fljúgandi“ forystulömbum á
bænum enda mikill leikur í lömbum á þess-
um árstíma.
Sigríður, ásamt Benedikt Líndal og yngsta
barni þeirra, Sigurjón Líndal Benediktsson,
fluttu í sveitina fyrir einu og hálfu ári en jörðin
hafði þá verið í eyði frá því 1964.
„Við erum að byggja upp á bænum og búum
með íslensku húsdýrin, ferðaþjónustu, skógrækt
og fleira. Við erum með nokkrar forystukindur +
hrúta, geithafra og hross og þjónustu í kringum
hestamennsku, svo sem reiðkennslu, kennslu
efnisgerð og reiðtygjasölu. Í sumar er svo að
hefjast hjá okkur ný tegund ferðamennsku sem
eru stuttar heimsóknir fólks á bæinn okkar til að
skoða, upplifa og heyra sögu forystukindanna,
taka göngutúr með tamda geithafra eða fara í
náttúrugöngu um landareignina undir leiðsögn.
Tilvalið fyrir fólk sem er á ferðinni og langar
að fá smá fjárhúsalykt í nefið og prófa öðruvísi
afþreyingu. Geiturnar og forystuféð er notað í
þessum tilgangi. Við bjóðum sem sagt upp á
að fólk komi í heimsókn í fjárhúsið okkar og
kynnist forystukindum í návígi, hafi gaman,
fái fræðslu og megi snerta og upplifa,“ segir
Sigríður. /MHH
LÍF&STARF
M ikil hlýðni og samkennd ríkir í okkar samfélagi á tímum veiruvár í landinu. Allir hlýða Þórólfi
og Víði og Ölmu. Í kostulegu tölvu
bréfi frá Jóhannesi bónda Sigfússyni á
Gunnarsstöðum leggur hann til að við hlýðum
einnig Ólafi Stephensen, framkvæmdastjóra
Félags atvinnurekenda á Íslandi ( bænda),
sem öðrum fremur gætir hagsmuna okkar
allra. Tillaga Jóhannesar er því eftirfarandi:
Gegnum nú Ólafi glaðir í lund,
gleypum það hrátt er hann sagði,
og kaupum í matinn kínverskan hund
með kórónaveirubragði.
Meira að segja hyggst Einar Kolbeinsson
hlýða yfirvöldum, sem verða að teljast
nokkur tíðindi:
Hann að mæla hefur lög,
hafnar öllu flani,
trúr í verki og traustur mjög
Tóti veirubani.
Í síðasta vísnaþætti var birtur kveðskapur eftir
Benedikt Einarsson, sem var fæddur 1796
og bjó á Hnausakoti í Miðfirði. Úr ljóðabréfi
sem hann reit vini sínum tilgreinir hann í
tveimur næstu vísum helstu tíðindi úr héraði:
Eitt það má ég athuga
í annars bágu standi.
Eg fann dáinn Illuga
úti á snjá liggjandi.
Eftir þetta óhapp þá
annað rétt svo skeði:
Fram af kletti í Austurá
Ólöf detta réði.
„Ungskáld“ seinni tíma leggja nokkuð mikið
upp úr rími þótt önnur bragþekking sé ekki
fyrir hendi. Meðan „Alþýðumaðurinn“ var og
hét, mátti þar stundum lesa vísnamál. Margt
var þar misgott ort. Rósberg G. Snædal orti
af því tilefni:
A-M skáld með óðinn bruðla,
allt á þrykk er sett,
þó aldrei höfuðstaf né stuðla
staðsetji þau rétt.
Sr. Sigurður Norland tjáði sig ítrekað um
bragleysur þess tíma, ( 1885–1927):
Þeir sem geta ekki ort
af því rímið þvingar,
ættu að stunda annað sport
eða hugrenningar.
Rímlaust kvæði að réttum sið
ritgerð fyrr var kallað,
en sem kvæði álitið
ákaflega gallað.
Undir vísnaskotnu ræðuhaldi orti Jóhannes
á Gunnarsstöðum:
Íslenska stakan var allt í senn
óður trega og vona,
ég verð því hryggur meðan menn
misþyrma henni svona.
Einn hagyrðingurinn enn, Óskar
Sigurfinnsson í Meðalheimi, orti við lestur
nýútkominnar ljóðabókar:
Ljóðabók ég las á jólum,
lítið gladdist hugur minn,
gæsahúð með grænum bólum
gerði strik í reikninginn.
Og Bjarni frá Gröf orti líka til atóm skáld
anna á árinu 1968:
Ég neita síst að atómskáldin geti verið góð
og gera vil ei þeirra hlut neitt smáan.
Þótt Drottinn kæmi sjálfur og læsi þessi ljóð
þá leiddist öllum samt að hlusta á’ann.
Karl Ísfeld ku eiga þessa snilldarvísu:
Oft ég heyrði svein og svanna
syngja í moll og dúr
í Vaðlaheiðarvegamanna-
verkfærageymsluskúr.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
249MÆLT AF
MUNNI FRAM
Vangaveltur um örnefni á Íslandi:
Bólstaðarhlíðarbrekka eða Botnastaðabrekkur?
Flestum virðist tamara að nota orðið Bólstaðarhlíðarbrekka um þennan vegarkafla sem liggur um Vatnsskarð á milli Skagafjarðarsýslu og Húna-
vatnssýslu, fremur en nafnið Botnastaðabrekkur, sem virðist réttara samkvæmt örnefnum á svæðinu og skilningi staðkunnugra. Verktakafyrir-
tækið Víðimelsbræður ehf. á Sauðárkróki annast þarna snjómokstur en brekkan getur verið mikill farartálmi. Þessi mynd var tekin af snjómokstri
í brekkunni núna í apríl og hjá Víðimelsbræðrum nota menn bæði nöfnin á þessari brekku jöfnum höndum. Mynd / Víðimelsbræður ehf.
Í síðasta Bændablaði var mynd á blað-
síðu 6 sem tekin er í brekku gegnt
Bólstaðar hlíðarfjalli á þjóðveginum um
Vatnsskarð á milli Skagafjarðarsýslu og
Húnavatnssýslu.
Flestir þekkja þessa brekku trúlega undir
nafninu Bólstaðarhlíðarbrekku og þannig er
hún nefnd áratugum saman á fjölmörgum
kortum, vefsíðum og í bæklingum. Einnig í
fréttum m.a. á liðnum vetri af ófærð þar sem
þessi brekka hefur oft verið til vandræða m.a.
fyrir flutningabíla. Þá hefur hún líka gjarnan
verið nefnd Bólstaðarhlíðarbrekka í fréttum
af vegaframkvæmdum í hlíðinni. Þar með
er þó ekki endilega sagt að sú nafngift sé
rétt, allavega má ætla að staðkunnugir og
heimamenn viti þetta best.
Botnastaðabrekkur og alltaf í fleirtölu
Pétur Þorleifsson, sem er dyggur les
andi Bændablaðsins, hafði samband við
ritstjórn og benti á að þetta væri ekki
rétt nafn á brekkunni. Þessi staður héti
Botnastaðabrekkur og væri alltaf skrifað í
fleirtölu. Hann sagðist lengi hafa barist fyrir
að fá þetta leiðrétt, en brekkurnar hétu eftir
eyðibýlinu Botnastöðum sem var þarna fyrir
neðan brekkurnar en er löngu horfið. Þarna
fyrir ofan er svo Botnastaðafjall.
Fyrir neðan brekkuna rétt hjá eyðibýl
inu Botnastöðum er reyndar líka bærinn
Bólstaðarhlíð sem kann að hafa ýtt undir
það að margir telji rökrétt að nefna brekkuna
eftir þeim bæ.
Örnefni upp af bænum Botnastöðum
Botnastaðabrekkur er m.a. að finna á ör
nefna sjá og korti á vefsíðu geo.alta.is. Þar
er örnefnið staðsett í fjallinu beint upp af
eyðibýlinu Botnastöðum, en ekki á veg
inum sjálfum. Eðlilegt væri samkvæmt
því að telja að þessi vegarkafli sé um
Botnastaðabrekkur.
Verktakar og vegfarendur tala
gjarnan um Bólstaðarhlíðarbrekku
Víðimelsbræður ehf. á Sauðárkróki,
sem er verktakafyrirtæki manna sem
þekkja þarna vel til og hafa m.a stundað
þarna snjómokstur, nefna þessa brekku
í síðasta mánuði á Facebooksíðu sinni
Bólstaðarhlíðarbrekku. Á öðrum stað nota
þeir bæði nöfnin í inngangstexta í flottu
myndbandi þ.e. Bólstaðarhlíðarbrekka/
Botnastaðabrekka og þá í eintölu. Þannig
að nafnið Bólstaðarhlíðarbrekka er greinilega
orðið ansi fast í hugum margra, m.a. sumra
flutningabílstjóra sem þarna aka reglulega.
Hjá Víðimelsbræðrum fengust þær upplýs
ingar að mörgum væri orðið tamara að nota
nafnið Bólstaðarhlíðarbrekka, en þeir notuðu
sjálfir bæði nöfnin jöfnum höndum.
Botnastaðir eða Bottastaðir
Það er fleira en nafn brekkunnar sem deilt
er um. Þar virðist heldur ekki hafa verið
eining um bæjarnafnið Botnastaði og þar
með heitið Botnastaðabrekkur. Á vefsíðu
Feykis frá 11.11. 2018 má sjá umfjöllun eftir
Margeir Pétursson um torskilin bæjarnöfn
undir fyrirsögninni Botnastaðir í Svartárdal.
Þar kemur fram að í manntalsbókum
Húnavatnssýslu hafi bærinn verið nefndur
Bottastaðir og í öðru riti er lagt líkum að
því að nafnið „Botta“ sé stytting úr nafninu
Bótólfur. Var sú tilgáta m.a. tekin upp í
árbók Hins íslenzka fornleifafjelags 1923.
Hugsanlega kann þetta þó að vera sprottið
af misritun eins og Margeir bendir á.
Víða klæmst með örnefni
Pétur Þorleifsson sagði í samtali við Bænda
blaðið að því miður hafi oft verið farið rangt
með örnefni á Íslandi sem hafi valdið því að
rangnefnin hafi fest í vitund manna og í ritum.
Þannig hafi Vegagerðin t.d. margsinnis sagt
að fyrstu jarðgöng á Íslandi væru í gegnum
Arnardalshamar, en hann er ekki til heldur
heiti hamarinn Arnarneshamar. /HKr.
Myndin úr síðasta Bændablaði sem vakti um-
ræður um hvort brekkan héti í raun Bólstaðar-
hlíðarbrekka eða Botnastaðabrekkur. Mynd / HKr.
Fljúgandi forystulömb í Borgarbyggð
Ein skemmtileg mynd, sem Sigríður tók af forystulambi sem finnst fátt skemmtilegra en að
hoppa og stökkva í gerðinu sínu.
F jölskyldan á Gufuá í Borgarbyggð býður
fólki að koma í heimsókn
í fjárhúsið sitt þar sem
hægt er að skoða íslenskt
forystufé, hrúta, ær og
lömb. Nánari upplýsingar
má sjá á þessari heimasíðu,
https://www.inharmony.is/
samspil-manns-og-hests