Bændablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 20208
FRÉTTIR
Íslenskt – gjörið svo vel:
Sameiginlegt átak stjórnvalda
og atvinnulífsins
– um að verja störf og auka verðmætasköpun
Föstudaginn 24. apríl var undir
ritaður samstarfssamningur
milli stjórnvalda og fulltrúa
atvinnulífs um að verja störf
og auka verðmætasköpun undir
heitinu „Íslenskt – gjörið svo
vel“.
Það voru Kristján Þór Júlíusson,
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, og Þórdís Kolbrún
Reyk fjörð Gylfadóttir, ferðamála,-
iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
sem skrifuðu undir fyrir hönd
stjórnvalda, en af hálfu atvinnu-
lífsins koma Samtök atvinnulífs-
ins, Samtök iðnaðarins, Samtök
verslunar og þjónustu, Samtök
ferðaþjónustunnar, Samtök fyr-
irtækja í sjávarútvegi, Samtök
fjármálafyrirtækja, Samorka og
Bændasamtök Íslands að verk-
efninu.
Í tilkynningu úr Stjórnarráði
Íslands kemur fram að markmið
samningsins sé að móta og hrinda
í framkvæmd sameiginlegu kynn-
ingarátaki sem miðar að því að
hvetja landsmenn, almenning og
fyrirtæki til viðskipta við innlend
fyrirtæki á fjölbreyttum sviðum; við
val á framleiðslu, vörum og þjón-
ustu. „Með því verði lögð áhersla
á mikilvægi þeirrar keðjuverkunar
og þeirri hringrás sem verður til við
val á m.a. innlendri framleiðslu- og
þjónustustarfsemi sem stuðlar að
því að atvinnustarfsemi helst gang-
andi, störf almennings eru varin,
efnahagslegur stöðugleiki eykst og
verðmætasköpun er aukin,“ segir í
tilkynningunni.
100 milljónir frá ríkinu
Stjórnvöld leggja 100 milljónir
króna til verkefnisins sem verður
nýtt í fjármögnun á hönnun, fram-
leiðslu og birtingu kynningarefnis.
„Grunnur samningsins er það
fordæmalausa ástand sem uppi
er í heiminum vegna útbreiðslu
COVID-19 og þau áhrif sem far-
aldurinn hefur haft hér á landi.
Átakið er liður í efnahagsaðgerð-
um stjórnvalda gegn COVID-19
en með átakinu verður unnið gegn
efnahagslegum samdrætti vegna
heimsfaraldursins með það fyrir
augum að lágmarka áhrifin á
atvinnulíf, til skemmri og lengri
tíma,“ segir í tilkynningunni. Haft
er eftir Kristjáni Þór af þessu til-
efni að nauðsynlegt sé að lágmarka
neikvæð áhrif á íslenskan land-
búnað og sjávarútveg og milda
höggið af COVID-19, sem sé þó
óhjákvæmilegt.
Þórdís Kolbrún segir að með
framlagi stjórnvalda sé höndum
tekið saman við atvinnulífið og
spornað gegn áhrifum COVID-19.
/smh
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála,- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Kristján Þór Júlíusson, sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðherra, með Gunnar Þorgeirsson, formann Bændasamtaka Íslands, á milli sín á fjarfundi.
Mynd / Golli
Ráðherrarnir og samningsaðilar undirrituðu samninginn rafrænt, en hitt-
ust á fjarfundi til að innsigla samkomulagið. Á mynd eru Eyjólfur Árni
Rafnsson, formaður SA, Jón Ólafur Halldórsson, formaður SVÞ, Guðrún
Hafsteinsdóttir, formaður SI, Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri
SAF, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, Katrín Júlíusdóttir,
framkvæmdastjóri SFF, Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku og Gunnar
Þorgeirsson formaður BÍ.
Á fundi í stjórn Sorpstöðvar
Rangárvallasýslu nýverið var
lögð fram tillaga um að sækja um
undanþágu til að urða dýrahræ
þar til brennsluofn verður settur
upp.
Stjórn Sorpstöðvar Rangárvalla-
sýslu kom nýlega saman þar sem
Stefán Gíslason hjá UMÍS ehf.
Environice mætti á fundinn. Fór
hann yfir stöðu mála vegna vinnu
við mat á umhverfisáhrifum og til-
lögu að matsáætlun um brennsluofn
fyrir dýrahræ og dýraleifar á starfs-
stöð sorpstöðvarinnar á Strönd á
Rangárvöllum. Hefur tillagan verið
kynnt almenningi og umsagnaraðil-
um. Engar athugasemdir bárust og
hefur matsáætlunin verið send til
Skipulagsstofnunar. Á fundinum
kom einnig fram að ekki er lengur
hægt að fara með dýrahræ og leif-
ar í Fíflholt í Borgarfirði. Var því
lögð fram tillaga um að sækja um
undanþágu til að urða slíkan úrgang
þar til bresnnluofninn verður kom-
inn í gagnið. Ágústi Sigurðssyni,
sveitarstjóra Rangárþings ytra, var
falið að hafa samband við forstjóra
Umhverfisstofnunar. /MHH
Stofnun Matvælasjóðs
– Ætlað að skapa efnahagslega viðspyrnu
Eitt af úrræðum
ríkis stjórnarinnar
til að efla nýsköpun
og þróun í innlendri
matvælaframleiðslu
vegna heimsfar
aldurs kórónu veir
unnar, er að stofna
Matvæla sjóð með
500 milljóna króna
stofnframlagi.
Lög um sjóðinn
voru samþykkt á
Alþingi á þriðjudag-
inn.
Í tilkynningu úr
sjávar útvegs- og
land búnaðar ráðu neytinu kemur
fram að unnið hafi verið að stofnun
sjóðsins undanfarið ár í atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Ákveðið var að flýta vinnu við
að setja sjóðinn á fót sem hluta
af aðgerðum til að skapa efna-
hagslega viðspyrnu þegar þetta
tímabundna ástand er gengið yfir.
Nýsköpun og þróun
Matvælasjóður mun hafa það hlut-
verk að styrkja þróun og nýsköpun
við framleiðslu og vinnslu matvæla
úr landbúnaði og sjávarútvegi.
Sjóðurinn mun styrkja verðmæta-
sköpun við framleiðslu, vinnslu
og markaðssetningu matvæla og
verður við úthlutun sérstök áhersla
lögð á nýsköpun, sjálfbærni, verð-
mætasköpun og almennar aðgerðir
til að bæta samkeppnishæfni ís-
lenskrar matvælaframleiðslu.
Matvælasjóður verður til með
sameiningu Framleiðnisjóðs land-
búnaðarins og AVS-rannsóknasjóðs
í sjávarútvegi. Til stofnunar sjóðs-
ins verður varið 500 m.kr. sem
verður úthlutað á þessu ári. Við
úthlutun þeirra fjármuna, en einnig
við frekari stefnumótun fyrir hinn
nýja sjóð, verður þess gætt að
skipting fjármagns til landbúnaðar
og sjávarútvegs verði með samb-
ærilegum hætti og verið hefur.
Í tilkynningunni er haft eftir
Kristjáni Þór að með því að stofna
Matvælasjóð sé í krafti nýsköpunar
og þróunar verið að hvetja til auk-
innar verðmætasköpunar í land-
búnaði og sjávarútvegi til hagsbóta
fyrir allt samfélagið.
„Við Íslendingar erum enda
matvælaþjóð. Byggjum afkomu
okkar öfluga samfélags að stór-
um hluta á því að nýta auðlindir
okkar með sjálfbærum hætti, bæði
til sjós og lands. Því er stofnun
Matvælasjóðs, með áherslu á
nýsköpun, sjálfbærni, verðmæta-
sköpun og samkeppnishæfni
íslenskrar matvælaframleiðslu,
ekki bara skref í rétt átt – heldur
ein forsenda þeirrar sóknar sem
fram undan er í íslenskri mat-
vælaframleiðslu,“ segir Kristján
Þór. /smh
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra. Mynd / HKr.
Sími: 571-5590 | Netfang: sala@nethogun.is
Öflug – Hljóðlaus og fyirferðarlítil
SMART
COMPUTER
Intel 8 örgjafi i5
16 GB vinnsluminni
Intel sjákort
8 USB port
Engin vifta
MSATA diskur
HÆGT AÐ FÁ:
Þráðlaust net
Allt að 32 GB
vinnsluminni
VERÐ: 94.000 kr.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
JUROP
HAUGSUGUDÆLUR
6,500 - 9,500
11,000 - 13,500 lítra
HAUGSUGUHLUTIR
VARAHLUTIR
Sorpstöðin Strönd á Rangárvöllum:
Engar athugasemdir við tillögur
um brennsluofn fyrir dýrahræ
– Sótt verður um undanþágu fyrir urðun þar til ofninn kemst í gagnið