Bændablaðið - 07.05.2020, Síða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 202010
Bændurnir í Gautavík í Berufirði
stefna að því að rækta iðnaðar
hamp á um hektara í sumar. Auk
þess sem áfram verður unnið að
því að finna yrki sem dafna vel
hér á landi og þróa aðferðir við að
fullnýta afurðirnar. Hugmyndin er
að setja hampte á markað í haust.
Pálmi Einarsson, iðnhönnuður og
bóndi í Gautavík í Berufirði, segir að
hann sé búinn að moka út úr fjárhús
unum, bera sauðfjáráburð á akrana
og tæta þá niður. Hann stefni að því
að sá í fyrstu viku í maí ef tíð leyfir.
„Reglugerðarbreyting heil
brigðis ráðherra gerir það að verk
um að nú geta allir, bæði bændur og
aðrir, farið að rækta iðnaðarhamp
löglega. Hvað okkur í Gautavík varð
ar þá ætlum við að auka ræktunina
lítillega og vera með iðnaðarhamp á
rúmum hektara í sumar.
Við munum nota sömu
yrki og í fyrra, 'Finola',
'Felina' og 'Futura', og
eigum nóg af fræi síðan í
fyrra, en munum einnig
gera tilraunir með aðrar
tegundir.“
Áframhaldandi vinnsla
„Næsta skref hjá okkur er að
þróa aðferðir við að fullnýta
uppskeruna og við stefnum að
því að setja einhverjar vörur
á markað í haust, til dæmis
hampte. Við erum búin að
koma upp 75 fermetra inni
svæði til tilraunaræktunar og
jafnstóru úrvinnslusvæði. En til
þess þarf tæki og tól og í ferli
er meðal annars að fjárfesta í
afhýðingarvél sem aðskilur
trefjarnar frá kjötinu.
Það á við um iðnaðarhamp eins
og annað sem fólk ákveður að fram
leiða, mikilvægt er að vera búinn að
ákveða hvað geri eigi við uppskeruna
svo það sitji ekki uppi með hana og
komi henni ekki í verð.
Úr uppskeru síðasta árs bjó ég
til steypukubba og trefjaplötur sem
heppnaðist vel. Úr plötunum skar ég
út nokkrar gjafavörur og gerði til
raunir með eldþol steypukubbsins, en
hampsteypa er
eldþolin, létt,
andar og myglar því ekki.“
Hampte og hampsalt
Pálmi segist einnig hafa gert te úr
blómum og laufum plöntunnar sem
hann þurrkaði og jafnframt búið til
hampsalt úr sjávarsalti frá Hafsalti á
Djúpavogi. „Teið drekkum við okkur
til heilsubótar og notum hampsaltið í
matreiðslu heimilisins, enda hampur
skilgreindur sem heilsuvara.“
Óendanlegir möguleikar
Þetta er þó bara brotabrot af því sem
hægt er að gera því möguleikarnir á
nýtingu plöntunnar eru nánast óend
anlegir.
„Hampur var í gegnum aldirn
ar algengt skepnufóður og notaður
í undirburð og fengu okkar kindur
að gæða sér á smá hampi síðastliðið
haust og líkaði vel.
Næst ætla ég að prófa sameldi á
bleikju og hampi en þá er hampurinn
látinn nærast á úrgangi frá fiskum.
Fyrir rúmum áratug var búinn til
lífdísill úr hampi í Háskólanum á
Akureyri sem var ræktaður af Sveini
á Kálfskinni í Eyjafirði árið 2008.
Það er eitt af því sem okkur langar
að prófa.“
Meiri tími til að sinna ræktuninni
„Ég er að vona að ég geti haft betri
yfirsýn og stjórnað ræktuninni betur
í ár en á síðasta ári þar sem fram
leiðsla Geisla á gjafavörum og öðru
hefur dregist verulega saman vegna
COVID19.
Bæði hef ég meiri reynslu og
ekki síst tíma núna og þarf ekki
að vera að sinna ræktuninni seint
á kvöldin og fram á nótt eins og
í fyrra.“
Pálmi segir að í fyrra hafi afföll
af sáningunni verið mikil og að upp
hafi komið 1/10 af því sem var sáð
og stafaði það meðal annars af mikl
um þurrkum í maí og júní, stórum
hvellum í byrjun júní og um miðjan
ágúst og afar lágum meðalhita. „Í
ár er ég betur undirbúinn og með
reynslu síðasta árs í fararteskinu.“
Tilraunir með forræktun og yrki
„Ég er einnig að gera tilraunir með
að forrækta plöntur inni og gróður
setja þær á mismunandi vaxtarstigi.
Í dag eru þrjú sett í gangi, þar af
eru tíu plöntur í tjaldi sem hafa náð
tveggja metra hæð og eru í fullum
blóma. Annars staðar eru 25 plöntur
sem eru um 80 sentímetra að hæð.
Svo er ég með slatta af græðlingum
og á eftir að fjölga þeim fljótlega.
Græðlingana ætla ég að setja í tvö
beð og skýla þeim sérstaklega og sjá
hvernig þeir koma út í samanburði
við sáningu.“
Að sögn Pálma er meginástæð
an fyrir inniræktunarsvæðinu að
kynbæta plöntur og finna yrki sem
henta hér á landi, en til standsetn
ingar þess og ræktunarinnar fengu
þau styrk frá Uppbyggingarsjóði
Austurlands í vor.
„Yrkin sem við notum í dag
þurfa 140 daga til að plönturnar nái
fullum þroska og nái að mynda fræ,
en við þurfum að finna yrki sem eru
120 daga. Ég fann eitt slíkt fyrir
skömmu sem gæti lofað góðu. Það
yrki verður ekki nema 150 til 180
sentímetrar að hæð sem er kostur
fyrir okkur og er á sáðvörulista
ESB.“
Engin mörk fyrir CBD
eða aðra kannabinóíða
Reglugerðarbreytingin sem heim
ilar ræktun iðnaðarhamps ef THC er
undir 0,2% setur ekki skilyrði varð
andi magn annarra kannabinóíða
eins og CBD, en hún er byggð á
regluverki ESB. Pálmi segir að
yrkin sem þau notuðu í fyrra eigi
samkvæmt framleiðanda að inni
halda 3 til 6% CBD. /VH
FRÉTTIR
VARÚÐ!
Þorlákshöfn – Sími 483 1955 – www.sbskilti.is
HANDÞVOTTUR OG HANDSPRITTUNHAND WASHING - HAND HYGIENE
Endurtakið hvert atriði vandlega fimm sinnum eða oftar!
Repeat each step of the hand washing procedure at least five times!
Nuddið lófum saman
Nuddið bæði handarbökin með lófunum
Nuddið vel milli fingra
Nuddið fingurgómaog neglur vandlega Nuddið báðaþumalfingur vandlega Nuddið vel inni í báðum lófum
Rub hands palm to palm Rub right palm over left dorsum and vice versa Rub thoroughly between fingers
Rub fingertips and fingernails ofboth hands together thoroughly Rub thumb ofeach hand thoroughly
Rub each palm thoroughly
2
3
4
5
6
1
HANDÞVOTTUR OG HANDSPRITTUN
Endurtakið hvert atriði vandlega fimm sinnum eða oftar!
Repeat each step of the hand washing procedure at least five times!
HAND WASHING - HAND HYGIENE
Nuddið lófum saman Nuddið bæði handarbökin með lófunum Nuddið vel milli fingra
Nuddið fingurgóma
og neglur vandlega Nuddið báða þumalfingur vandlega Nuddið vel inni í báðum lófum
Rub hands palm to palm Rub right palm over left dorsum and vice versa Rub thoroughly between fingers
Rub fingertips and fingernails of
both hands together thoroughly
Rub thumb of each hand thoroughly Rub each palm thoroughly
2 3
4 5 6
1
framleiðum öryggis-
og varúðarmerkingar
Ræktun og framleiðsla úr iðnaðarhampi í Gautavík í Berufirði:
Hugmyndin að setja hampte á markað í haust
Pálmi Einarsson, iðnhönnuður og bóndi, í Gautavík í
Berufirði. Til hliðar er tilraunaframleiðsla á hamptei til
einkanota. Mynd ir/ Úr einkasafni
Steypa úr pressuðu stöngulkjöti hefur mikið viðnám gegn eldi.
Þverskurður af hampstöngli sem
sýnir vel trefjarnar og kjötið.
Gjafavara skorin úr hamptrefjaplötu.
Landstólpi:
Flytur inn fræ af iðnaðarhampi
Landstólpi ætlar að flytja inn
300 til 500 kíló af iðnaðarhamps
fræi fyrir sumarið en rúmlega
30 aðilar hafa sýnt áhuga á að
rækta plöntuna í sumar. Mast og
Lyfjaeftirlitið hafa gefið vilyrði
um að flýta afgreiðslu leyfa fyrir
innflutningunum.
Með reglugerðarbreytingu heil
brigðisráðherra er leyfilegt að rækta
iðnaðarhamp hér á landi líkt og í
löndunum í kringum okkur. Ræktun
hampsins er háð ýmsum takmörkun
um og óvíst að margir geti nýtt sér
leyfið þar sem langt er liðið á vorið.
Rúnar Skarphéðinsson, sölustjóri
búrekstrardeildar Landstólpa, sem
meðal annars flytur inn sáðvöru,
segir að stutt sé síðan reglugerðinni
var breytt og málin hafa gengið hratt
fyrir sig síðan þá. „Ég fékk fljót
lega fyrirspurnir frá áhugasömum
ræktendum um hvort Landstólpi
ætlaði að flytja inn fræ fyrir sumar
ið en eftir að hafa haft samband við
nokkra birgja taldi ég litlar líkur á
að svo yrði.“
Flutt inn frá Finnland
„Ég hélt samt áfram að reyna að
vinda ofan af málinu og niðurstaðan
var sú að ég komst í samband við
tékkneskt fyrirtæki sem er með
nokkur yrki af iðnaðarhampi í boði
og það kom mér í samband við
finnskt fyrirtæki sem heitir Fonola
sem getur selt okkur fræ. Fræin eru
af yrkinu 'Finola' sem hefur reynst
ágætlega hjá bændunum í Gautavík
í Berufirði.
Mast og Lyfjaeftirlitið hafa gefið
okkur vilyrði um að flýta afgreiðslu
leyfa fyrir innflutningunum.“
Rúnar segir að um 30 pantanir
hafi borist og að þær sái á bilinu
eitt til til tíu kíló og svo aðrir sem
ætla að sá í hálfan eða einn hektara.
300 til 500 kíló
„Mér sýnist magnið sem við komum
til með að flytja inn að þessu sinni
vera á bilinu 300 til 500 kíló. Ég
vonast til að sendingin berist til
landsins 18. til 20. maí enda má
það ekki vera mikið seinna svo að
plantan nái að þroskast hér á landi.“
Verð á kílói er 2.537 krónur og er
það jafnframt minnsta pöntun. /VH
Rúnar Skarphéðinsson.