Bændablaðið - 07.05.2020, Qupperneq 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 202012
FRÉTTIR
8 M
ÍNÚ
TUR
3 MÍNÚTUR
7 MÍ
NÚT
UR
3 MÍNÚTUR
15
M
ÍN
ÚT
UR
2
M
ÍN
ÚT
UR
3
M
ÍN
ÚT
UR
M
IÐBÆ
RINN
VERSLANIR
BÍÓHÚS
LYSTIGARÐURINN
KAFFIHÚS
HL
ÍÐ
AR
FJ
AL
L
VE
IT
IN
GA
RS
TA
ÐU
R
HE
IM
AV
IST
MA
OG VMA Á AKUREYRI
SUND
RÆKTIN
ÍÞRÓTTAHÚS
NÁNARI UPPLÝSINGAR OG UMSÓKNIR
HEIMAVIST.IS
FRAMHALDSSKÓLANEMENDUR
ALLS STAÐAR AÐ AF LANDINU
Heimavist MA og VMA
Frá handverkshátíð á Hrafnagili í Eyjafirði. Mynd / HKr.
Hrafnagil í Eyjafirði:
Handverkshátíðinni
frestað um eitt ár
Handverkshátíðin í Eyjafjarðar
sveit hefur verið haldin á hverju
ári síðastliðin 28 ár. Hátíðina
sækja árlega 10–15 þúsund gestir
og eru sýnendur yfir 100 talsins.
Í ljósi aðstæðna í samfélaginu
hefur stjórn Handverkshátíðarinnar
í samvinnu við aðildarfélög ákveðið
að fresta hátíðinni fram til ársins
2021. Ákvörðunin var tekin að
vel ígrunduðu máli í samráði við
helstu samstarfsaðila að því er fram
kemur í tilkynningu. Enn fremur
að ákvörðunin hafi verið erfið en
nauðsynleg í ljósi aðstæðna vegna
COVID-19 faraldursins og útgef-
inna leiðbeininga um samkomur.
„Á hverju ári koma margir að
uppsetningu Handverkshátíðarinnar
og lítur stjórn svo á að það sé
hennar ábyrgð og skylda að hlýða
settum reglum og vernda starfs-
menn sína, gesti og þátttakend-
ur og koma í veg fyrir enn frek-
ari smit í samfélaginu með því
að fresta Handverkshátíðinni til
næsta árs,“ segir í tilkynningu
vegna frestunar Handverkshátíðar.
Handverkshátíðin er ein helsta fjár-
öflun ýmissa félaga í Eyjafjarðar-
sveit og hafa félagsmenn lagt á
sig mikla og óeigingjarna sjálf-
boðavinnu í þágu samfélagsins í
gegnum árin til að halda frábæra
Handverkshátíð.
Þeir sem sóttu um og höfðu fengið
pláss á hátíðinni sem vera átti í sumar
eru hvattir til að senda inn umsókn
fyrir hátíðina sem haldin verður dag-
ana 5.–8. ágúst 2021. /MÞÞ
Prjónagleði frestað
– en efnt til prjónasamkeppni um höfuðfat
Ákveðið hefur verið að fresta
Prjónagleðinni sem fram fer
á vegum Textílsetursins á
Blöndu ósi um eitt ár og verð
ur hún haldin dagana 11.–13.
júní 2021. Ástæða frestunar er
ástandið vegna COVID19 far
aldursins.
Til að viðhalda sköpunar- og
prjónagleðinni á meðan efnir
Textílsetrið til prjónasamkeppni
þar sem verkefnið er höfuðfat
og þemað er Blanda – Jökulsá í
Austur-Húnavatnssýslu.
Samkeppnin fer þannig fram
að þátttakendur senda myndir og
upplýsingar um höfuðfatið og
verða þær birtar á Facebook-síðu
Prjónagleðinnar. Gestir síðunnar
kjósa sitt uppáhaldshöfuðfat í fram-
haldinu og þeir vinna sem fá flest
stig. Verðlaun verða veittir fyrir þrjú
efstu sætin og horft til frumlegustu
og bestu útfærslunnar. /MÞÞ
Sameiningarmál í Austur-Húnavatnssýslu:
Ákvörðun um sameiningarviðræður
hefur verið frestað fram á haust
Ákvörðun um formlegar samein
ingarviðræður fjögurra sveitar
félaga í AusturHúnavatnssýslu
verður tekin í september.
Upphaflega var gert ráð fyrir að
sveitarstjórnirnar tækju ákvörðun
um slíkt í lok aprílmánaðar eða í
byrjun maí. Vegna heimsfaraldurs
COVID-19 hefur verið ákveðið að
gera breytingar á tímalínu verkefn-
isins.
Nú er gert ráð fyrir að ráðgjafar
kynni niðurstöður greininga og
tillögur á fundi sameiningarnefndar
í lok maí eða byrjun júní.
Tímasetning þess fundar mun
ráðast af þróun samkomubanns.
Sameiningarnefndin mun svo móta
áherslumál og verkefni í sumar
og eiga samráð við þingmenn og
ríkisstjórn. Um miðjan ágúst er
svo gert ráð fyrir að nefndin fjalli
um tillögu um hvort hefja skuli
formlegar sameiningarviðræður
og í september er áætlað að
sveitarstjórnir afgreiði tillöguna.
Þetta kemur fram á vefnum huni.is.
Akrahreppur ekki með
Akrahreppur í Skagafirði hafnaði
boði frá sameiningarnefnd Austur-
Húnavatnssýslu, en hún hafði sent
erindi til hreppsins og óskað eftir
því að sveitarstjórn Akrahrepps taki
afstöðu til þess hvort hún hafi áhuga
á þátttöku í sameiningarviðræðum
með sveitarfélögum í sýslunni.
Þakkaði Akrahreppur boðið og
óskaði Austur-Húnvetningum góðs
gengis í þeim sameiningarviðræðum
sem fram undan eru. /MÞÞ
Góð áburðarsala:
Einhverjar tafir á afgreiðslunni
ytra hjá sumum áburðarsölum
Þegar land lifnar við að vori huga
bændur að sinni áburðardreifingu
– og hafa margir þeirra valið og
keypt sinn áburð fyrir allnokkru
síðan. Að einhverju leyti virðast
áburðarsalar hafa keypt inn sínar
áburðartegundir áður en íslenska
krónan veiktist verulega en óhjá
kvæmilega hefur einhver hækkun
orðið vegna stöðugrar veikingar
hennar frá áramótum. Einhverjar
tafir eru á afgreiðslu ytra.
Svo virðist sem sala á áburði
hafi verið mjög góð í vor, en ein-
hver brögð eru að töfum á afgreiðslu
áburðar frá birgjum ytra vegna áhrifa
af COVID-19 faraldrinum.
Sigurður Sigurðsson hjá Fóður-
blöndunni segir að salan hjá þeim
hafi gengið mjög vel. „Við birtum
okkar verðskrá í janúar og þegar
krónan fór að gefa eftir var búið að
selja megnið af áburðinum,“ segir
hann.
Vandræði með mönnun
í áburðarverksmiðju
Jóhannes Baldvin Jónsson hjá
Líflandi segir að fyrirtækið hafi
staðið frammi fyrir seinkun á komu
áburðar vegna vandræða með
mönnun í áburðarverksmiðju ytra.
„Sú seinkun mun þó ekki koma
að teljandi sök, viðskiptavinum er
haldið upplýstum og áburðurinn mun
skila sér til viðskiptavina á næstu
vikum. Talsverðar hækkanir hafa
orðið á áburðinum vegna veikingar
á gengi krónunnar,“ segir hann.
„Salan hjá Skeljungi hefur verið
góð þetta árið, stefnir í 10.500 tonn,“
segir Lúðvík Bergmann. „Sem betur
fer vorum við búin að greiða stærsta
hluta þess áburðar sem við flytjum
inn. Hvað COVID-19 varðar þá varð
aðeins töf á afgreiðslu skipa erlend-
is en það hefur alveg sloppið til að
mestu.“
Sala umtalsvert meiri í ár
„Sala á Yara áburði hefur gengið
vel um allt land. Búið er að selja
umtalsvert meira af Yara áburði í
ár en í fyrra,“ segir Elías Hartmann
Hreinsson hjá Sláturfélagi Suður-
lands (SS).
„Útkeyrsla á áburði er hafin fyrir
nokkru og gengur vel. SS býr að góðri
aðstöðu fyrir áburð í Þorlákshöfn en
þar hefur félagið um 3.500 fermetra
vöruhús sem rúma allt að 9.000 tonn
af áburði. Innflutningur á áburði til
Þorlákshafnar var því hafinn mjög
snemma árs sem mildar meðal annars
áhrif gengisbreytinga sem hafa verið
miklar að undanförnu. SS leggur
áherslu á að eiga ávallt til birgðir af
áburði um allt land til að þjónusta
vel kaupendur á Yara áburði,“ segir
Elías.
Einar Guðmundsson hjá Búvís
segir stöðuna hjá þeim svipaða og
í fyrra. „Vorið er að koma á fullu
þessa dagana, virðist já vera örlítið
seinna á ferðinni fyrir norðan en
sunnan heiða.
Við vorum ekki búnir að kaupa
allan áburð áður en krónan féll og
ekki búnir að greiða alla erlenda
kostnaðarliði,“ segir Einar. /smh
BÍ mæla með að bændur takmarki gestakomur á bú sín:
Sveitaheimsóknir á tímum veirufaraldurs
Um árabil hafa bændur boðið
upp á sveitaheimsóknir á vorin.
Þúsundir leikskólabarna og
grunnskólanemenda hafa farið
í vorferðir með foreldrum og
kennurum og heimsótt bæi undir
merkjum Opins landbúnaðar. Þá
hafa ferðaskrifstofur skipulagt
heimsóknir á bú fyrir erlenda
ferðamenn og Íslendingar hafa
verið duglegir að nýta sér ýmsa
þjónustu og afþreyingu sem er í
boði hjá bændum.
Vegna COVID-19 faraldursins eru
breyttar forsendur fyrir heimsóknum
í sveitina. Þann 13. mars sl. gáfu
Bændasamtök Íslands út tilmæli til
bænda þar sem þau mæltu með því
að heimsóknir á bú og samgangur á
milli fólks væri í algjöru lágmarki.
Þessar ráðstafanir voru gerðar til
að sporna við veirusmiti á milli
manna og tryggja hnökralausa
búvöruframleiðslu.
Nú þegar faraldurinn er í rénun
hafa borist fyrirspurnir til BÍ hvort
sveitaheimsóknir barna verði á dag-
skrá í vor. Samtökin mæla með því
að bændur, sem stunda búvörufram-
leiðslu, viðhafi áfram smitgát og
takmarki gestakomur á bú sín eins
og kostur er.
Aðstæður eru misjafnar og
á einhverjum búum er hægt að
taka á móti gestum, t.d. þar sem
búvöruframleiðsla er í lágmarki
eða skipulag með þeim hætti að
heimilisfólk treystir sér til að taka
á móti hópum. Í þeim tilvikum eru
bændur hvattir til að fara að þeim
reglum sem gilda um heimsóknir
hópa eftir breytingar á samkomubanni
4. maí sl. Engar takmarkanir
eru á samveru skólabarna en á
mannamótum þarf að tryggja að nánd
á milli fullorðinna (eldri en 16 ára) sé
yfir tveir metrar. Fólk er áfram hvatt
til þess að stunda handþvott, nota
spritthreinsi eftir atvikum og viðhafa
almennar smitvarnir. /TB
Mikill fjöldi barna hefur í gegnum tíðina heimsótt bændur á vorin. Vegna
kórónuveirufaraldursins eru breyttar forsendur fyrir heimsóknum. Mynd /bbl