Bændablaðið - 07.05.2020, Qupperneq 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 202016
Kolaveiðar eru ekki mikilvægur
þáttur í íslenskum sjávarútvegi en
kolinn er góð búbót. Hann skilaði
um 2,7 milljörðum króna á síðasta
ári í aflaverðmæti og vegur rauð-
sprettan þar þyngst.
Sumar kolategundir eru með
bestu matfiskum sem völ er á.
Litlum sögum fer af kolaveiðum
Íslendinga fyrr á tímum enda var
lengi vel örðugt að veiða og verka
kola fyrir erlendan markað. Ekki
verður því sagt að Íslendingar hafi
verið iðnir við kolann. Þetta orðtak
yfir elju og ástundunarsemi er oftast
tengt kolaveiðum en gæti allt eins
vísað til kolagerðar sem var tímafrek
iðja og krafðist yfirlegu.
Eiginlegar kolaveiðar okkar
hófust ekki fyrr en langt var liðið á
20. öldina. Áður hafði kolinn verið
lítilsháttar veiddur til heimabrúks
í kolanet sem lögð voru grunnt frá
landi.
Veruleg sókn í kola hófst fyrst
hér við land er breskir togarar komu
hingað til veiða suður af landinu og
í Faxaflóa í lok 19. aldar við litla
hrifningu landsmanna. Bretinn
stundaði þessar kolaveiðar í fjölda
ára en lagði einnig vaxandi áherslu
á veiðar á bolfiski þegar á leið. Fleiri
þjóðir komu við sögu, meðal annars
Þjóðverjar.
Upplýsingar í þessa grein eru
sóttar víða, meðal annars í bókina
Íslenskir fiskar eftir Gunnar Jónsson
og Jónbjörn Pálsson og einnig í sam-
antekt um nytjafiska við Ísland eftir
Hreiðar Þór Valtýsson.
Blómatíminn á
níunda áratugnum
Kolaveiðar Íslendinga hófust svo á
fjórða áratug síðustu aldar í smáum
stíl í fyrstu og voru sveiflukenndar
lengi vel, eins og þær eru reyndar
ennþá. Erlend skip veiddu mörg
árin þar á eftir meira af kolanum en
Íslendingar.
Eftir að fiskveiðilögsagan var
færð út í 200 mílur á áttunda áratugn-
um sátu Íslendinga einir að kolanum.
Blómatími kolaveiða Íslendinga var
á níunda áratugnum. Á árinu 1997
náði samanlagður kolaafli okkar til
dæmis tæpu 21 þúsund tonni.
Kolastofnarnir eru flestir í
nokkurri lægð í dag. Á síðasta ári
veiddust um 9.700 tonn samanlagt
af kola á Íslandsmiðum, innan við
helmingur af því sem var þegar best
lét, að aflaverðmæti um 2,7 milljarð-
ar króna. Heildaraflaverðmæti í fyrra
var um 145 milljarðar. Kolinn er því
1,8% af heildinni í krónum talið.
Kolar finnast hringinn í kring-
um landið en veiðast aðallega
suður og suðvestur af landinu.
Aðalveiðarfærið í beinni sókn
er dragnót. Dragnótin er sérhæft
veiðarfæri sem danskur bóndi og
fiskimaður fann upp á 19. öld til
að geta sótt kolann lengra út. Hann
mokfiskaði, þénaði vel og hafði loks
efni á að kvænast unnustu sinni, en
það er önnur saga.
Kolar og aðrir flatfiskar
Við Ísland eru fimm kolategundir,
misverðmætar. Þær eru skarkoli,
þykkvalúra, langlúra, sandkoli og
flundra. Fjórar fyrstnefndu eru
nytjategundir en fimmti kolinn,
flundra, er nýbúi og hefur ekki verið
nýttur hér til þessa hvað sem síðar
verður.
Kolar eru af ættbálki flatfiska.
Á Íslandsmiðum hafa fundist 13
tegundir flatfiska. Náskyld kolan-
um eru lúða, grálúða og skrápflúra.
Fjarskyldari eru fiskar af hverfuætt.
Fimm tegundir hverfu hafa sést hér
við land. Flestar eru flökkufiskar en
ein þeirra, stórkjaftan, veiðist sem
meðafli.
Sérkennileg líffræði
Líffræði flatfiska er afar sérstök. Á
lirfustigi eru þeir eins og aðrir fiskar,
synda með kviðinn niður, bakið upp
og augu á hvorri hlið eins og vera
ber. Þegar því skeiði líkur umbreyt-
ast þeir. Annað augað færist yfir á
hina hliðina, ýmist þá vinstri eða
hægri. Kjálkinn skekkist líka og
fleiri breytingar eiga sér stað. Augu
kola og lúðu færast á hægri hliðina
en augu fiska af hverfuætt færast á
vinstri hlið. Blinda hliðin verður hvít
eða ljós en hliðin sem hefur tvö augu
verður dökk.
Flatfiskar eru botnfiskar og þegar
þeir hreiðra um sig á botninum liggja
þeir í raun á annarri hliðinni.
Afbökun á danska
orðinu rödspætte
Skarkoli er mikilvægasta kola-
tegundin við Ísland. Annað nafn
yfir þennan kola, og mun algengara
í daglegu tali, er rauðspretta.
Nafngiftin rauðspretta er afbökun á
danska orðinu rödspætte, þ.e. fiskur
með rauða díla. Íslendingar hafa
skotið inn stafnum „r“ því spretta
hljómar kunnuglegra en spetta.
Eftir að Íslendingar sátu einir
að kolaveiðunum fór skarkolaafli
mest í 14.500 tonn árið 1985. Aflinn
hefur annars sveiflast mikið frá um
5 þúsund tonnum á ári upp í um 10
þúsund tonn.
Árið 2019 veiddust 6.835 tonn
af skarkola að aflaverðmæti 1,9
milljarðar króna. Algeng stærð í afla
er 30 til 50 sentímetrar. Árið 2018
veiddust 67% aflans í dragnót, 29%
í botnvörpu og 4% í önnur veiðar-
færi.
Skarkoli er afar vinsæll matfiskur
víða í Evrópu, einkum í Danmörk og
á Bretlandi. Þess má geta að Danir
veiddu 21.700 tonn af skarkola á
árinu 2019 að aflaverðmæti 294
milljónir danskra króna, um 6,2
milljarðar íslenskra króna.
Sólkolinn afar verðmætur
Þykkvalúra er önnur mikilvægasta
kolategund á Íslandsmiðum. Hún
er með verðmætustu fisktegundum
sem hér veiðast. Um 670 tonn af
þykkvalúru voru seld á fiskmörk-
uðum landsins í fyrra og meðal-
verðið var um 488 krónur á kíló.
Aðeins lúðan seldist á hærra verði
af nytjafiskum, fór á krónur 498 á
kíló að meðaltali. Til samanburðar
má geta þess að meðalverð á þorski
var 330 krónur á kíló.
Þykkvalúra gengur líka undir
nafninu sólkoli sem er dregið af
enska heiti þessa fisks, lemon sole.
Þykkvalúran var mjög eftirsótt af
erlendum togurum. Afli þeirra náði
hámarki, um 3.000 tonnum, árið
1937. Mestur afli íslenskra skipa
varð tæp 2.700 tonn árið 2006.
Árið 2019 veiddust hér tæp 1.450
tonn af þykkvalúru að aflaverðmæti
580 milljónir króna. Megnið er veitt
í dragnót og algeng stærð í afla er
um 30 sentímetrar.
Langlúran og listaskáldið góða
Langlúra er miðlungsstór, frekar
langur og þunnur flatfiskur. Fyrstur
til að lýsa langlúru við Ísland var
náttúrufræðingurinn og listaskáldið
góða, Jónas Hallgrímsson. Langlúra
var annars lítið þekkt hér þar til er-
lendir togarar fóru að veiða hana.
Fyrst veiddist hún aðeins sem
meðafli íslenskra skipa en árið
1986 hófust tilraunaveiðar á lang-
lúru í dragnót á Íslandsmiðum.
Langlúruafli okkar fór mest í tæp
4.600 tonn árið 1987. Í fyrra veiddist
881 tonn að aflaverðmæti rúm 161
milljón króna.
Langlúran er eingöngu veidd í
dragnót í beinni sókn en vaxandi
hluti aflans hefur fengist hin seinni
ár sem meðafli í humartroll.
Sandkolinn ekki hátt skrifaður
Sandkoli hefur ekki verið hátt
skrifaður á Íslandi. Þetta er verð-
lítil tegund sem lengi vel var ekki
sinnt um að hirða þegar hún veiddist
sem meðafli. Hins vegar er sandkoli
vinsæll víða erlendis, meðal annars
í Danmörk, Hollandi og Skotlandi.
Veiðar á sandkola hér til útflutn-
ings hófust ekki fyrr en eftir 1984.
Hæst fór aflinn í tæp 8 þúsund tonn
árið 1996 en hefur hrunið síðan.
Hann fór niður í 230 tonn árið 2017.
Á síðasta ári veiddust 502 tonn að
aflaverðmæti um 35 milljónir.
Sandkoli er nær eingöngu veidd-
ur í dragnót. Hann er lítill saman-
borið við aðra flatfiska sem teljast
til nytjategunda hér, um 20 til 35
sentímetrar á lengd.
Flundran jafnvíg
á ferskvatn og saltan sjó
Fimmta kolategundinn hér við land,
flundran, er nýbúi eins og áður er
getið. Flundran líkist mest skarkola
og sandkola. Fyrsta flundran sem
veiddist hér við land svo vitað sé
fékkst í Ölfursárósi haustið 1999.
Flundran hefur dreift sér víða við
strendur landsins en er algengust
suður og vestur af landinu.
Flundran lifir á grunnsævi og
hrygnir í sjó. Hún virðist einnig
kunna vel við sig í fersku vatni
sem er óvenjulegt. Á sumrin heldur
hún sig við árósa og gengur gjarn-
an upp í ár og læki. Hún er þar
ekki aufúsugestur. Hún keppir um
búsvæði við bleikju og gæti spillt
veiði á henni á vinsælum bleikju-
svæðum.
Flundra er nýtt víða erlendis
og eru Danir mesta veiðiþjóðin.
Engum sögum fer af atvinnuveið-
um á flundru hér við land en vænt-
anlega getur hún orðið nytjafiskur
í framtíðinni.
Gert út á tröllafisk
Árið 1889 varð fyrst vart við breska
togara á Íslandsmiðum. Bretarnir
sóttust þá aðallega eftir flatfiski,
bæði kola og lúðu. Þeir fundu fljót-
lega auðug kolamið á Faxaflóa.
Bretarnir þóttu haga sér eins og
villimenn og fóru af þeim ófagr-
ar sögur. Þeir voru sagðir skemma
veiðarfæri íslenskra skipa. Óttast
var að botntrollið, hið nýja veiðar-
færi, myndi spilla fiskimiðunum.
Þá hentu þeir gjarnan stórþorski
og öðrum fiski fyrir borð í miklum
mæli til að hafa sem mest lestarrými
fyrir flatfiskinn dýrmæta.
Þótt Bretarnir væru illa liðn-
ir sóttu margir Íslendingar í að fá
þorskinn hjá þeim sem annars var
hent, gefins eða gegn gjaldi. Þessi
fiskur var kallaður tröllafiskur.
Nafngiftin er líklega afbökun á
trawl-fiskur, þ.e. fiskur sem veidd-
ur var trollið. Fyrstu heimildir um
tröllafisk eru frá árinu 1894.
Í byrjun reru menn út á árabát-
um, fengu fisk fyrir smávarning,
en seinna fóru menn hreinlega að
gera út á tröllafisk á stærri bátum
sem komu oft með góða farma af
togarafiski að landi. Margir bátar
voru jafnvel í föstum viðskiptum
við togarana.
Jón Þ. Þór sagnfræðingur ritaði
fróðlega grein í Ægi árið 1981 um
tröllafiskinn og eru upplýsingar hér
að framan sóttar í hana. Hann nefnir
sérstaklega eina ferð sem bátur fór
í til að kaupa tröllafisk. Skipverjar
höfðu með í för tvo kassa af whi-
sky, 50 bjóra og tvö hvít gæruskinn.
Nokkurn tíma tók að finna einn
togara sem var ekki þegar kom-
inn í föst viðskipti. Gengið var frá
skiptum á vínföngum og þorski og
íslenski báturinn sigldi í land með
góðan afla!
Íslensk stjórnvöld beittu sér mjög
gegn þessum viðskiptum og talið er
að þau hafi lagst af árið 1903.
Kjartan Stefánsson
kjartanst@simnet.is
Eins og ástandið í samfélaginu er
þessa dagana hljótum við öll að
vera sammála um að ekki veitir
af smá tilbreytingu og kryddi í
tilveruna. Sólin er komin hátt
á loft og því upplagt að sækja
sér nokkrar kryddplöntur til að
lífga upp á gluggasylluna eða
garðinn.
Aldagömul hefð er fyrir ræktun
kryddjurta. Munkar ræktuðu þær
í klausturgörðum sínum, grasa-
konur suðu úr þeim seyði og nú
til dags rækta margir krydd sér
til skemmtunar. Kryddjurtir bæta
bragð matarins og margir trúa að
þær hafi lækningamátt.
Jarðvegur fyrir kryddjurtir
þarf að vera hæfilega blanda af
mold og sandi og yfirleitt þarf að
blanda hann með lífrænum áburði
og kalki til að bæta hann.
Algengt er að planta kryddjurt-
um út um mánaðamótin maí og
júní. Útplöntunartími er háður því
að jarðvegurinn sé orðinn sæmi-
lega hlýr, að minnsta kosti kominn
yfir 6 °C, og hætta á næturfrosti
liðin hjá. Heppilegast er að gróð-
ursetja í skýjuðu veðri og jafnvel
svolítilli rigningu.
G a r ð a b l ó ð b e r g / t i m j a n
(Thymus praecox) er hálfrunni
sem nær 10 til 30 sentímetra
hæð. Blómin purpurarauð. Til eru
fjölmörg yrki af blóðbergi og eitt
þeirra er með sítrónukeim. Talið
er að Súmerar, sem voru uppi
3.500 árum fyrir Krist, hafi notað
timjan sem krydd og til lækninga.
Rómverjar töldu plöntuna örva
kynhvötina og á miðöldum var
timjan tengt ástleitni.
Fáfnisgras / estragon / tarragon
(Artemisia dracunculus). Fjölær
jurt sem getur orðið rúmur metri
á hæð. Rússnesku estragoni er sáð
en frönsku og þýsku fjölgað með
skiptingu og græðlingum. Gengur
undir ýmsum nöfnum, franskt,
þýskt eða rússneskt tarragon eða
estragon. Franskt og þýskt þykir
betra en rússneskt sem heitir
reyndar A. dracunculoides á lat-
ínu.
Lavender/lofnarblóm/ilm-
vöndur (Lavandula angustifolia).
Sígrænn runni. Blöðin grágræn og
ilmsterk, blómin purpurarauð. Þarf
skjólgóðan og sólríkan stað. Fer
best í potti. Uppruni frá löndun-
um í kringum Miðjarðarhafið.
Laufblöðin notuð í krydd. Blómin
ilma vel og eru oft sett í fataskápa
til að draga úr fúkkalykt.
Rósmarín (Rosmarinus
officinalis). Sígræn jurt sem nær
tveggja metra hæð í náttúru-
legum heimkynnum sínum við
Miðjarðarhaf. Blöðin oddmjó og
blómin blá. Ilmsterk. Sáð inni í
björtum glugga í febrúar, eins má
kaupa stálpaðar plöntur á vorin.
Þrífst best í potti á þurrum stað
og rýr jarðvegur hentar rósmaríni
ágætlega. Gott með öllu kjöti og
villibráð. Var tákn tryggðar hjá
Forn-Grikkjum og ofið í brúðar-
vendi og brennt sem reykelsi. Það
er sagt örva minnið og hugsun.
Virkar á höfuðverk og spennu. Á
miðöldum var plantan notuð sem
jólaskraut í Evrópu.
Ofangreindar kryddjurtir eru
allar þokkalega harðar og geta
blóðberg, fáfnisgras og lavender
lifað veturinn af á góðum stað í
garðinum en rósmarín þolir ekki
frost og því best að taka inn fyrir
frost.
Allar kjósa ofangreindar
kryddjurtir mikla sól.
Tvær geymsluaðferðir eru
einkum tíðkaðar fyrir kryddjurtir,
þurrkun eða frysting. Í báðum til-
vikunum eru plönturnar klipptar
niður í þurru veðri. Þær plöntur
sem á að frysta eru hlutaðar í
sundur og aðeins blöðin hirt,
þeim er síðan pakkað í smáböggla
í álpappír og bögglarnir frystir
strax. /VH
STEKKUR NYTJAR HAFSINS
Kolaveiði í dragnót. Mynd / Einar Ásgeirsson
Krydd í tilveruna