Bændablaðið - 07.05.2020, Side 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 202018
Opnað verður fyrir skráningu
á kynbótasýningar vorsins nú í
byrjun maí og verður það nánar
auglýst á heimasíðu RML.
Skráning og greiðsla fer fram í
gegnum heimasíðu RML www.
rml.is en á forsíðunni er flýti-
hnappur sem skráð er í gegnum.
Að þessu sinni er sett í loftið
nýtt skráningakerfi og vonum
við að það reynist vel. Á forsíðu
WorldFengs er einnig hægt að
skrá hross til sýningar.
Í töflunni hér að neðan má sjá
síðasta skráningardag á hverja sýn-
ingu en skráningu þarf að vera lokið
á miðnætti þess dags. Ef sýning
fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna
þó svo skráningarfrestur sé ekki
útrunninn. Eigandi/umráðamaður
hrossins verður þá að velja aðra sýn-
ingu. Til að fá aðstoð er hægt að
hringja í síma 516-5000, eða senda
tölvupóst á netföngin halla@rml
og hross@rml.is. Við bendum á að
utan dagvinnutíma eru starfsmenn
RML ekki til staðar til að svara síma
eða tölvupósti og því hvetjum við
eigendur/umráðamenn til að hafa
tímann fyrir sér frekar en hitt þegar
kemur að skráningum á sýningarnar.
Í ljósi óvenjulegs ástands
munum við bregðast við og fækka
dögum á sýningum ef skráningar
eru færri en búist er við og sameina
sýningar ef þess gerist þörf. Sýning
verður ekki haldin nema lágmarks-
fjöldi skráninga náist sem eru 30
hross. Gerð er undantekning á þessu
fyrir sýninguna á Stekkhólma á
Fljótsdalshéraði en þar verða að
nást 15 skráningar svo sýning verði
haldin. Í töflu hér á síðunni má sjá
sýningar vorsins og hvenær er síð-
asti skráningar- og greiðsludagur.
Allar upplýsingar um röðun
niður á daga munu birtast á heima-
síðunni www.rml.is, þegar þær
eru tilbúnar sem verður nokkrum
dögum fyrir sýningu.
Sýningargjöld og fleira
Verð fyrir fullnaðardóm er 28.500
kr. en fyrir byggingadóm/hæfileika-
dóm 21.900 kr. Ganga þarf frá
greiðslu um leið og hrossið er skráð.
Hægt er að greiða með debet- eða
kreditkortum, ekki er hægt að greiða
með millifærslu. Um leið og hrossið
hefur verið skráð birtist það strax inn
á viðkomandi sýningu. Ef það gerist
ekki er rétt að kanna hvort eitthvað
hafi farið úrskeiðis við skráninguna.
Aðeins þau hross sem hlotið hafa
fullnaðardóm á sama sýningarári er
hægt að skrá eingöngu í reiðdóm.
Endurgreiðslur á sýningargjöld-
um koma því aðeins til greina ef
forföll eru tilkynnt fyrir kl. 16:00
síðasta virka dag fyrir upphaf sýn-
ingarviku í síma 516-5000 en einnig
er hægt að senda tölvupóst á net-
fangið hross@rml.is. Endurgreitt
er 15.000 kr. fyrir hross sem skráð
hefur verið í fullnaðardóm og 12.000
kr. fyrir hross sem hefur verið skráð
í sköpulags- eða hæfileikadóm.
Slasist hross eftir að sýning hefst
er sama hlutfall endurgreitt gegn
læknisvottorði.
Endurgreiðslukrafa vegna slas-
aðra hrossa þarf að hafa borist fyrir
1. júlí. Skipti knapi út hrossi í sýn-
ingu og velji að sýna annað hross en
það sem skráð er, ber sá hinn sami
fulla ábyrgð gagnvart þeim sem
greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir
það hross sem skipt var út verður
notuð til greiðslu á hrossinu sem
kom í staðinn.
Minnum á eftirfarandi:
• Ekki er hægt að skrá hryssur eða
geldinga til sýningar nema búið
sé að taka úr þeim stroksýni til
DNA-greiningar og staðfesting
á því liggi fyrir í WF.
• Allir stóðhestar verða að vera
DNA greindir svo og foreldrar
þeirra.
• Úr öllum stóðhestum fimm
vetra og eldri þarf að liggja fyrir
í WF að búið sé að taka blóðsýni
og röntgenmynda vegna spatts.
• Ekki er hægt að skrá hross á
kynbótasýningu nema þau séu
örmerkt
• Ef örmerki finnst ekki í hrossi
sem mætir til dóms ber að
örmerkja það á staðnum og
taka stroksýni úr nös til DNA-
greiningar á ætterni, með þeim
kostnaði sem af því hlýst fyrir
eiganda/forráðamann. Örmerki
og DNA-sýni þurfa ávallt að
fylgjast að.
Ekki er hægt að skrá hross til sýn-
ingar nema ofantaldar kröfur séu
uppfylltar. Hrossum, sem koma inn á
sýningu í stað annarra skráðra hrossa
og uppfylla ekki þessi skilyrði,
verður vísað frá sýningu strax hjá
mælingarmanni án undantekninga.
Nánari upplýsingar um reglur og
annað sem viðkemur kynbótasýning-
um má finna á heimasíðunni www.
rml.is eða hringja í síma 516-5000
hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðar-
ins. Einnig er hægt að senda tölvu-
póst á netfangið hross@rml.is.
HROSS&HESTAMENNSKA
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
PICHON
HAUGHRÆRUR
NÝTT! NÝTT!
Álrammar með neti fyrir glugga og dyraop
• Sérsniðið að þínum
þörfum
• Þú setur saman eða við
gerum það fyrir þig
• Val um net
• Val um lamir eða
segulfestingar
LÚSMÝNET
SKORDÝRANET
GÆLUDÝRANET
MÚSANET
FRJÓKORNANET
Auðbrekka 6 · Kópavogi · Sími: 696 4000
www.glugganet.is · glugganet@glugganet.is
Skráningar á kynbótasýningar vorsins
Halla Eygló Sveinsdóttir
ráðunautur, Búfjárræktar- og
þjónustusvið
halla@rml.is
Loka skráningar-
Dags. Staður og greiðsludagur
25.5- 29.5 Sörlastaðir Hafnarfirði I föstudagur 15. maí
25.5- 29.5 Brávellir, Selfossi föstudagur 15. maí
25.5- 29.5 Akureyri föstudagur 15. maí
02.6- 03.6 Fljótsdalshérað, Stekkhólmi föstudagur 22. maí
02.6- 05.6 Sprettur, Kópavogi föstudagur 22. maí
02.6- 05.6 Gaddstaðaflatir, Hellu I föstudagur 22. maí
08.6- 12.6 Gaddstaðaflatir, Hellu II föstudagur 22. maí
08.6- 12.6 Hólar, Hjaltadal I föstudagur 22. maí
08.6- 12.6 Sörlastaðir Hafnarfirði II föstudagur 22. maí
15.6- 19.6 Sörlastaðir Hafnarfirði III föstudagur 22 maí
15.6- 19.6 Hólar, Hjaltadal II föstudagur 22. maí
15.6- 19.6 Gaddstaðaflatir, Hellu III föstudagur 22. maí
15.6- 19.6 Víðidalur, Reykjavík föstudagur 22. maí
Sýningar vorsins og síðasti skráningar- og greiðsludagur
Af heimasíður RML er auðvelt að skrá hross til sýningar.
Meiri hrossaútflutningur á fyrri
hluta ársins 2020 en í áratug
– Flutt voru út 494 hross sem er 70 fleiri en á sama tímabili í fyrra
Á fyrsta ársfjórðungi 2020 voru
494 hross flutt úr landi, eða 70
fleiri en á sama tímabili í fyrra.
Það er 17% aukning samkvæmt
fréttatilkynningu Horses of
Iceland. Þá voru fleiri hross flutt
út fyrstu þrjá mánuði ársins 2020
en á sama tímabili nokkurt annað
ár síðastliðinn áratug.
Kemur þessi góði árangur í
útflutningi á íslenskum hrossum í
kjölfar mikils útflutnings á síðasta
ári. Árið 2019 var besta árið í hrossa-
útflutningi í níu ár.
Fólk getur keypt hross frá Íslandi
og látið flytja þau nánast hvert sem
er, þrátt fyrir ferðatakmarkanir
sökum COVID-19 faraldursins.
Árið 2019 var besta árið í hrossa-
útflutningi í níu ár, en þá voru 1509
hross flutt úr landi, fleiri hross en
nokkuð annað ár síðasta áratug að
2010 undanskildu. Að meðaltali er
verðmæti útfluttra hrossa um einn
milljarður á ári. Í fyrra – og einnig
árin á undan.
Fóru langflest hross, eða 640, til
Þýskalands. Þar á eftir kom Svíþjóð
með 224 hross og Danmörk með
172 hross. Horses of Iceland hefur
einmitt haft þessa markaði í forgangi
í sínu markaðsstarfi, auk þess að
sækja á aðra og nýja markaði.
Á fyrsta ársfjórðungi 2020 voru
494 hross flutt úr landi: 169 í jan-
úar, 157 í febrúar og 168 í mars. Í
tölunum frá mars 2020 eru 27 hross
sem flutt voru út í rannsóknarskyni.
Samanlagt eru þetta 70 fleiri hross
en flutt voru út á fyrsta ársfjórðungi
2019, eða 17% aukning milli ára.
Árið 2019 voru 424 hross flutt
úr landi á fyrstu þrem mánuðunum.
Það voru 120 í janúar, 132 í febrúar
og 172 í mars. Þetta kemur fram í
samantekt frá WorldFeng, uppruna-
ættbók íslenska hestsins.
„Fínt að gera“
„Það hefur verið fínt að gera,“ stað-
festir Eysteinn Leifsson hjá Export
Hestum.
„Það er klárt mál að Horses of
Iceland hjálpar gríðarlega mikið til
við að vekja athygli á hestinum á
heimsvísu. Þetta er verðmætt, að vera
í sameiginlegu markaðsátaki. Ein og
sér hefðum við [hagsmunaaðilar]
ekki þetta afl eða þennan sýnileika
sem Horses of Iceland hefur sannar-
lega veitt okkur,“ segir Eysteinn.
„Við sjáum líka hvað fólk fylgist
mikið með – hvað verkefnið hefur
marga fylgjendur á samfélagsmiðl-
um – sem styður við markaðsstarfið.
Auk þess er farið á sýningar. Allt er
gert á faglegan og flottan hátt.“
Horses of Iceland
Markaðsverkefnið Horses of Iceland
var stofnsett árið 2015 til að auka
verðmætasköpun í tengslum við ís-
lenska hestinn, styrkja ímynd hans
í vitund fólks um allan heim og
byggja upp sterkt vörumerki, Horses
of Iceland.
Íslandsstofa sér um framkvæmd
verkefnisins og starfar með verk-
efnastjórn sem skipuð er fulltrúum
úr hestasamfélaginu, Félagi hrossa-
bænda (FHB), Landssambandi hesta-
mannafélaga (LH), Félagi tamninga-
manna (FT), auk útflutningsaðila og
fulltrúa frá atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneyti, mennta- og menn-
ingarmálaráðuneyti og Samtökum
ferðaþjónustunnar.
Þann 2. apríl síðastliðinn var sam-
starfssamningur Horses of Iceland
og íslenska ríkisins formlega fram-
lengdur um 18 mánuði. /HKr.