Bændablaðið - 07.05.2020, Page 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 202024
LÍF&STARF
Kraftvélar komið með umboð fyrir austurríska landbúnaðartækjaframleiðandann Pöttinger:
Fjölskyldufyrirtæki með 149 ára sögu að baki
Austurríski landbúnaðartækja
framleiðandinn og fjölskyldu
fyrirtækið Pöttinger hefur kynnt
Kraftvélar sem nýjan umboðsaðila
Pöttinger á Íslandi. Þetta þykja
nokkuð stórar fréttir fyrir íslensk
an landbúnað enda hafa Pöttinger
vélarnar verið mjög vinsælar hér
á landi í mörg ár.
Pöttinger Landtechnik GmbH,
hefur verið stýrt af fjórðu kynslóð
Pöttinger fjölskyldunnar síðan 1991.
Fyrirtækið var þó upphaflega stofn-
að af Franz Pöttinger í Grieskirchen
árið 1871 og hefur alla tíð snúist
að meira eða minna leyti um land-
búnaðartæki. Sonur hans, Alois
Pöttinger, tók við rekstrinum 1909.
Þriðja kynslóðin, Hans og Heinz
Pöttinger, tók síðan við stjórninni
1956. Fyrirtækið tók yfir rekstur á
bæversku plógaverksmiðjunni árið
1975. Stjórnarskipti urðu síðan 1991
þegar fjórða kynslóð Pöttingersona,
þeir Klaus og Heinz Pöttinger, tóku
við rekstrinum.
Leiðandi á alþjóðlega vísu
Fyrirtækið hefur verið leiðandi á
alþjóðlega vísu og framleiðir bæði
vélbúnað til margvíslegra nota í
landbúnaði (jarð- og heyvinnslu)
og háþróaðar tölvustýringar til nota
í jarðrækt. Stjórnendur fyrirtækis-
ins leggja áherslu á gæði, skilvirkni,
hagkvæmni alls búnaðar til að auka
sjálfbærni í landbúnaði. Þá eru um-
hverfimál líka ofarlega í huga stjórn-
enda. Hefur fyrirtækið sérhæft sig
í smíði sáningartækja og í alhliða
nýtingu á graslandi.
Sala fyrirtækisins nemur um
450 milljónum evra á ári. Um 90%
af sölu Pöttinger fer til útflutnings
og um 10% á innanlandsmarkað.
Megin markaður fyrir tækjabúnað
Pöttinger er í Evrópu og þar er salan
mest í Þýskalandi, eða um 20%, og
um 16% í Frakklandi. Þá fer um
6% sölunnar til Bandaríkjanna og
annarra landa utan Evrópu.
Með höfuðstöðvar í Grieskirchen
Fyrirtækið er og hefur alla tíð verið
með höfuðstöðvar í Grieskirchen í
norðurhluta Austurríkis, nokkurn
veginn miðja vegu milli austurrísku
höfuðborgarinnar Vínar og þýsku
borgarinnar München. Fyrirtækið
er með umboðsaðila víða um heim.
Hefur Pöttinger hlotið marg-
vís legar viðurkenningar fyrir
sína framleiðslu á liðnum árum
og þar má t.d. nefna sláttuvélina
Novacat Apha Motion Pro. Hún
var valin heyvinnsluvél ársins
2020 á landbúnaðartækjasýning-
unni Agritechnica sem fram fór í
Hanover í Þýskalandi í nóvember
síðastliðnum. Pöttinger framleið-
ir líka öflugar rúllubaggavélar í
nokkrum gerðum.
Mikil viðurkenning
„Við í Kraftvélum erum virkilega
stolt af því að hafa verið valin um-
boðsaðili Pöttinger á Íslandi, það
er mikil viðurkenning fyrir okkur
að hafa orðið fyrir valinu enda er
Pöttinger einn allra öflugasti fram-
leiðandi heyvinnutækja í heim-
inum,“ segir Viktor Karl Ævars son,
framkvæmdastjóri sölu- og mark-
aðssviðs Kraftvéla.
„Pöttinger er öllum bændum og
verktökum vel kunnugt vörumerki
enda með langa sögu hér á landi og
einstaklega breitt vöruúrval.
Þrátt fyrir að flestir þekki Pöttinger
fyrir framúrskarandi heyvinnu tæki þá
bjóða þeir líka upp á spennandi tæki
til jarðvinnslu og við munum leggja
metnað okkur í að kynna þau tæki
líka. Þar ber helst að nefna plóga,
herfi, tætara og sáðvélar.“
Hætta með Fella, en tryggja
áfram hnökralausa þjónustu
„Eins og flestir vita þá hafa Kraft-
vélar verið að selja Fella heyvinnu-
tæki í gegnum árin og eflaust margir
að velta fyrir sér með framtíð Fella
hér á landi. Það er mörgu ósvarað í
þeim efnum en Kraftvélar og Fella
eiga að baki langt samstarf og er
það sameiginlegt markmið beggja
aðila að eigendur Fella upplifi enga
hnökra í þjónustu tækjanna sinna
þrátt fyrir að Kraftvélar muni form-
lega hætta sem umboðsaðili Fella
á Íslandi.
Viðskiptavinir sem hafa mögu-
lega áhyggjur af sínum Fella tækj-
um mega vita að við munum áfram
hafa beinan aðgang að Fella og allri
þeirri þjónustu sem þeir bjóða upp
á tengt varahlutum, þjónustu og
ábyrgðarmálum í 12 mánuði að
lágmarki.
Við hlökkum til þess að kynna og
þjónusta Pöttinger vélar og hvetjum
viðskiptavini til þess að setja sig í
samband við sölumenn Kraftvéla
fyrir allar nánari upplýsingar,“ segir
Viktor Karl Ævarsson. /HKr.
Pöttinger er og hefur alla tíð, eða frá árinu 1871, verið með höfuðstöðvar í Grieskirchen í norðurhluta Austurríkis,
nokkurn veginn miðja vegu milli austurrísku höfuðborgarinnar Vínar og þýsku borgarinnar München. Myndir / Pöttinger
Klaus og Heinz Pöttinger hafa stýrt
fjölskyldufyrirtækinu frá árinu 1991.
Novacat Apha Motion Pro sláttuvélin frá Pöttinger var valin heyvinnsluvél
ársins 2020 á landbúnaðartækjasýningunni Agritechnica sem fram fór í
Hanover í Þýskalandi í nóvember síðastliðnum.
Viktor Karl Ævarsson segir val
Pöttinger á Kraftvélum sem nýjum
umboðsaðila á Íslandi mikinn heiður.
Pöttinger rúllubaggavélar.
UTAN ÚR HEIMI
Umhverfisflokkurinn í Noregi vill banna verslun með villt dýr á alþjóðavísu
Umhverfisflokkurinn í Noregi
krefst þess nú að landið verði í
fararbroddi við að stöðva versl
un með villt dýr á alþjóðavísu. Í
kjölfar kórónavírussins, sem átti
upptök sín í Hubeihéraðinu í
Kína, hafa stjórnvöld þar í landi
nú bannað framleiðslu og sölu á
villtum dýrum til matvælaneyslu.
Talið er að smitið eigi upptök sín
á matarmarkaði í bænum Wuhan
í gegnum leðurblökur sem fólk
neytti.
Nú hefur norski umhverfis flokkur-
inn farið fram á þingi þar í landi og
krefst þess að Noregur fari fram í að
fylgja þessu banni eftir á alþjóðavísu
og benda á nokkrar ástæður fyrir því,
ekki eingöngu að það geti valdið
heimsfaraldri heldur einnig til smita
til húsdýra. Þau benda einnig á að
slík verslun valdi tapi á náttúru sem
ógnar lífríkinu því þetta hafi áhrif á
frævun, flóðavarnir, drykkjarvatns-
síun og stjórnun á meindýrum svo
fátt eitt sé nefnt. Slíkt bann við sölu á
þessum dýrum mun ekki leggja nein
mörk á landbúnað eða þróun hans,
einungis stöðva ákveðna starfsemi
sem er mjög skaðleg og án þess að
það hafi áhrif á hagkerfi í heild sinni.
Í Kína er fyrst um sinn bannað
að selja villt dýr til neyslu en enn
er leyfilegt að selja villt dýr til vís-
indarannsókna, í lyfjaframleiðslu og
til sýningar en hér er búið að setja á
ákveðnar takmarkanir.
„Allar tegundir, líka við mann-
fólkið, erum háð náttúrunni til að
lifa af. Nýir sjúkdómar og heims-
faraldrar eru einungis einn af þeim
þáttum sem náttúran slær til baka
eftir að mannfólkið hefur nýtt sér
dýr og eyðilagt náttúruna. Slík
verslun með dýr er ekki eingöngu
vandamál í Kína heldur um allan
heim sem leiðir ekki eingöngu af sér
þjáningar fyrir blessuð dýrin heldur
einnig til þess að tegundir deyja út
og þá er hinn mikilvægi líffræðilegi
fjölbreytileiki eyðilagður sem við
mannfólkið erum háð og er bein ógn
við velferð okkar um allan heim.
Við megum engan tíma missa og
verðum að grípa til aðgerða þegar
í stað, á síðustu fjórum áratugum
hefur jörðin misst 60 prósent af
flokkum villtra dýra og við stönd-
um frammi fyrir sjöttu fjöldaútrým-
ingunni í sögu jarðarinnar. Síðast
gerðist það þegar risaeðlunum var
útrýmt fyrir 65 milljón árum síðan,“
segir Sigrid Z. Heiberg hjá norska
umhverfisflokknum.
/ehg - Nationen
Talið er að uppruna kórónaveirunnar sem orsakað hefur COVID-19 heims-
faraldurinn megi rekja til sölu og neyslu á leðurblökum í bænum Wuhan
í Hubei-héraði í Kína. Þessi kínverska stúlka, Wang Megyun, sem notið
hefur mikilla vinsælda fyrir ferðaþátt sinn á netinu, birti myndskeið af sér
á vefsíðu að borða leðurblöku á kínversku veitingahúsi. Olli myndbandið
miklu uppnámi og baðst stúlkan afsökunar á athæfi sínu.
Sigrid Z. Heiberg.