Bændablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 202026
MATVÆLI&MARKAÐSMÁL
Á undanförnum árum hefur
verið unnið að hugmynd að
íslensku nasli með íslensku hrá-
efni, sem innblásið er af hinum
breska þjóðarrétti „fish and
chips“. Íslenska útgáfan er hins
vegar ekki djúpsteiktur fiskur og
franskar kartöflur, heldur harð-
fiskur og kartöfluflögur. Stefnt er
á alþjóðlega markaðssetningu á
næstu vikum.
Rúnar Ómarsson er frumkvöðull-
inn sem stendur að þessu verkefni
og hefur gengið með hugmyndina í
maganum í nokkur ár. „Hann hefur
verið frekar langur, fer aðeins eftir
hvernig á það er litið. Ég fékk fyrst
áhuga á markaðssetningu á sjávar-
afurðum þegar ég var um tvítugt, en
þá var ég á frystitogara um sumarið
og las bækur um markaðssetningu á
frívöktum,“ segir hann spurður um
aðdragandann að verkefninu.
Viðurkenning á
Sjávarútvegsráðstefnunni 2017
„Vinur minn flutti til Þýskalands
skömmu síðar og hóf störf við
sölu á ferskum fiski frá Íslandi.
Við ræddum nokkuð oft um hversu
spennandi það væri að búa til alþjóð-
legar neytendavörur úr íslenskum
sjávarafurðum, en í stað þess að fara
í þá vegferð þá stofnuðum við ásamt
fleirum fyrirtækið Nikita Clothing,
árið 2000, og byggðum upp alþjóð-
legt vörumerki og fyrirtæki sem við
enduðum svo á að selja úr landi árið
2011.
Við ræddum það reglulega
hvað íslenskar sjávarafurðir væru
spennandi og það kitlaði mig að
búa til verðmæti þar, þegar að því
kæmi. Ég fékk svo hugmyndina
að „Fish and chips“ sem snakki
eða skyndimáltíð árið 2016, fékk
viðurkenningu fyrir hugmyndina á
Sjávarútvegsráðstefnunni árið 2017,
og hef verið að þróa hugmyndina,
vöruna og markaðssetninguna
síðan,“ segir Rúnar.
Íslenskt hráefni og framleiðsla
á Íslandi
Að sögn Rúnars er hráefnið íslenskt
og fer framleiðslan fram á Íslandi.
„Varan verður unnin í samstarfi
við öflugan harðfiskframleiðanda
annars vegar og kartöfluflögufram-
leiðanda hins vegar. Fiskurinn er
frostþurrkaður þorskur, bitafiskur.
Kannski verður boðið upp á ýsu líka
þegar fram í sækir. Harðfiskurinn
er súper-fæði, það vita Íslendingar.
Hann inniheldur steinefni, vítamín
og Omega-3 fitusýrur en auðvitað
er það staðreyndin að hann er 84
prósent prótein sem gerir hann eft-
irsóknarverðan í svona skyndimál-
tíð. Kartöflurnar gefa svo kolvetni
á móti fisknum, auk þess að vera
ágætis vítamínuppspretta. Fiskur
og kartöflur er einfaldlega frábær
máltíð – og það að geta sett saman
svona mikla næringu, heila mál-
tíð, sem vigtar aðeins 100 grömm
er kjörið fyrir svo marga á ólíkum
forsendum.“
Til að byrja með verður boðið
upp á tvær útgáfur af Fish and
chips; annars vegar salti og pipar
og hins vegar salti og ediki – sem er
hin sígilda útgáfa bresku útgáfunn-
ar. Meira verður af kartöfluflögun-
um í pokanum en harðfiskbitum, að
sögn Rúnars, af tveimur ástæðum.
„Hlutfallið af fisk á móti kartöfl-
um ræðst annars vegar af hæfilegu
próteininnihaldi máltíðar fyrir
fullorðinn einstakling og svo hins
vegar verðinu. Það þarf 160 grömm
af fiskflökum til að framleiða þau
30 grömm af þurrkuðum fiski sem
eru í hverjum poka, á móti 70
grömmum af kartöfluflögum. Það
er álíka magn af fiski og er í venju-
legum „fish and chips“ skammti í
Bretlandi og víðar – og hæfilega
mikið prótein í máltíð.
Ráðlagt smásöluverð miðað við
gengið í dag verður 3.90 bresk pund,
eða 4,50 evrur og USD. Það útleggst
á 690 krónur á Íslandi.“
Hefur sjálfur fjármagnað
verkefnið hingað til
„Ég hef fjármagnað verkefnið
sjálfur hingað til, án styrkja eða fjár-
festa. Það þarf að breytast fljótlega.
Ég vinn fyrir mér, og fyrirtækinu,
sem ráðgjafi í uppbyggingu fyr-
irtækja, vöruþróun, markaðssetn-
ingu og fleira, en á sumrin hef ég
jafnframt starfað sem fjallahjólari
fyrir Icebike Adventures. Þar hef ég
haft tækifæri til að bjóða erlendum
gestum að smakka vöruna sem ég
hef verið að þróa, fólki alls staðar
að úr heiminum. Það hefur verið
gaman að sjá viðbrögðin og frábært
sem hluti af vöruþróunarferlinu. Í
sumar verður Icebike Adventures
reyndar í fyrsta skipti með áherslu á
fjallahjólaferðir fyrir Íslendinga, og
að sjálfsögðu verður hægt að smakka
snakkið mitt þar. Það verður gaman
að sjá viðbrögð heimamanna.“
Áhersla á útflutning
„Varan kemur í sölu í núverandi
mynd á næstu vikum. Áherslan
verður á útflutning, enda held ég
að ég sé ekki að fara að kenna
Íslendingum að borða harðfisk,“
segir Rúnar um það hvort varan
muni líka fást á Íslandi. „Ekki að
ég útiloki að varan muni fást hér,
heimamarkaði verður auðvitað
sinnt líka, en umbúðirnar, sam-
setning vörunnar, bragðtegundirnar
og hugmyndin í heild er hugsuð
fyrir alþjóðlega markaðssetningu.
„Fish and chips“ er ein þekktasta
máltíð í heimi. Bara í Bretlandi
eru snæddar um 300 milljón slíkar
máltíðir á ári, að verðmæti sem
nemur heildarútflutningi allra
sjávarafurða frá Íslandi á árs-
grundvelli.
„Fish and chips“ er jafnframt mjög
vinsæl máltíð í Asíu, Bandaríkjunum
og víðar, og markaðs kannanir, sem
Seafish og fleiri aðilar hafa gert,
sýna að tugir milljóna neytenda hafa
áhuga á að smakka hollari útgáfu af
þessum geysivinsæla rétti.
Kartöfluflögur eru mest selda
snakk í heimi. Þurrkaður fiskur
er besti náttúrulegi próteingjafinn
til að snæða með slíku snakki.
Þessi skyndimáltíð á því erindi á
heimsmarkað að mínu mati. Þótt
markaðssetning sé í raun ekki
hafin hafa dreifingaraðilar frá
nokkrum löndum haft samband,
til dæmis frá Bretlandi, Brasilíu
og reyndar Suður-Ameríku í heild,
Þýskalandi og Taívan. Við erum á
fullu að undirbúa framleiðslu til
að mæta þessum áhuga, sem ég
er ekki í vafa um að mun aukast
þegar alþjóðleg markaðssetning fer
af stað.“ /smh
Rúnar Ómarsson.
Sígilda útgáfa hins breska „fish and chips“ er með salti og ediki og hér eru
umbúðirnar utan um þá útgáfu Rúnars og hans framleiðslu.
Fish & Chips með salti og pipar.
Sigurður Már Harðarson
smh@bondi.is
Akrahreppur skoðar aðstoð
við ferðaþjónustuna
Hjá Akrahreppi í Skagafirði er til
skoðunar hvort sveitarfélagið komi
með auknum hætti að því að efla
ferðaþjónustu í hreppnum með til-
liti til þeirra aðstæðna sem skapast
hafa vegna COVID-19 heimsfar-
aldursins.
Stjórn Félags ferðaþjónustunnar
í Skagafirði hefur lýst yfir þungum
áhyggjum vegna áhrifa heimsfar-
aldursins á ferðaþjónustufyrirtæki á
svæðinu. Fyrirtækin sjá fram á tekju-
lausa mánuði frá því í mars og fram í
maí eða jafnvel lengur. Leitaði félag-
ið til Akrahrepps eftir úrræðum til
að hjálpa ferðaþjónustufyrirtækjum
í hreppnum til að komast í gegnum
næstu mánuði svo sem með niður-
fellingu eða lækkun á fastakostnaði
til hreppsins.
Sveitarstjórn samþykkti sam-
hljóða heimild til þess að næstu
þrír gjalddagar fasteignagjalda hjá
ferðaþjónustufyrirtækjum verði færð-
ir aftur fyrir síðustu gjalddaga til að
létta undir rekstri þeirra fram á haust
að því gefnu að aðilar sækist eftir
slíku. Þá er til skoðunar hvort sveitar-
félagið komi með auknum hætti að
eflingu ferðaþjónustu í Akrahreppi
með tilliti til þeirra aðstæðna sem
skapast hafa vegna COVID-19
heimsfaraldursins. /MÞÞ
kartöfluflögur