Bændablaðið - 07.05.2020, Síða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 202028
Þórdís Þórarinsdóttir varði
meistararitgerð sína í búvís-
indum við ræktunar og fæðu-
deild Landbúnaðarháskóla
Íslands mánudaginn 27. apríl
síðastliðinn. Í ljósi aðstæðna fór
vörnin fram á netinu, í gegnum
Zoom fjarfundabúnað, og gekk
vel. Nafnið á ritgerð Þórdísar
er: „Erfðastuðlar og erfðaþró-
un frjósemiseiginleika í íslenska
kúastofninum“, og á ensku er
titillinn „Genetic Parameters
and Genetic Trends of Female
Fertility in Icelandic Dairy
Cattle“.
Leiðbeinendur Þórdísar voru dr.
Elsa Albertsdóttir hjá Ráðgjafar
miðstöð landbúnaðarins og dr.
Susanne Eriksson hjá Sænska
landbúnaðarháskólanum (SLU).
Emma Eyþórsdóttir, dósent við
LbhÍ var ábyrgðarmaður háskólans
með verk efninu. Prófdómari var dr.
Ágúst Sigurðsson, kynbótafræðing
ur og sveitarstjóri Rangárþings ytra.
En hver er Þórdís Þórarinsdóttir og
hvað ætlar hún sér í framtíðinni?
Ólst upp á bænum
Keldudal í Skagafirði
„Ég er fædd árið 1995 og ólst upp
á kúabúinu Keldudal í Skagafirði
þar sem foreldrar mínir, Guðrún
Lárusdóttir og Þórarinn Leifsson,
eru bændur. En ég er reyndar
hálf skaftfellsk af því mamma
er frá Kirkjubæjarklaustri. Ég á
tvö yngri systkini, þau Sunnu og
Þorra. Ég var í grunn og fram
haldsskóla á Sauðárkróki, síðan
lá leiðin í BSc nám í búvísindum
við Landbúnaðarháskóla Íslands
og núna er ég að ljúka MSc námi í
búvísindum við LbhÍ. Í MSc nám
inu tók ég eina önn í skiptinámi
við sænska Landbúnaðarháskólann
í Uppsölum,“ segir Þórdís, sem
hefur unnið í sveitinni sinni heima
í Keldudal frá því að það varð
eitthvert gagn í henni eins og
hún segir sjálf. „Síðastliðin þrjú
sumur hef ég hins vegar unnið
sem safnvörður við Minjasafnið á
Bustarfelli í Vopnafirði ásamt því
að sinna ýmsum sveitastörfum.
Ég og unnusti minn, Eyþór Bragi,
erum að taka við sauðfjárbúi for
eldra hans á Bustarfelli.“
Elskar náttúruna og dýrin
Þegar Þórdís er spurð af hverju hún
hafi svona mikinn áhuga á landbún
aði og sveitinni er hún fljót til svars.
„Ég hef alltaf verið mikil sveita
kona og elska náttúruna og dýrin,
enda elst ég upp í því umhverfi. Það
var alltaf planið hjá mér að fara í
LbhÍ og afla mér þekkingar um
landbúnað.“
Vörnin gekk vel
Vörnin á meistararitgerð Þórdísar
gekk ljómandi vel þrátt fyrir skrítnar
aðstæður vegna COVID19.
„Já, já, hún gekk mjög vel, þó
það hafi auðvitað verið svolítið sér
stakt að ég og allir gestir varnarinnar
sátum heima hjá okkur við tölvuna.
Ég var hóflega stressuð enda gat
ég bara verið heima í rólegheitum.
Ég reyndi eftir bestu getu að svara
spurningum prófdómarans og spurn
ingum frá áhorfendum og vona að
það hafi tekist vel. Ég fékk margar
áhugaverðar spurningar, bæði um
viðfangsefni ritgerðarinnar og einnig
spurningar út fyrir efni hennar.“
Kýr og sæðingar úr Huppu
Þórdís er þvínæst spurð af hverju
hún hafi ákveðið að skrifa meist
araritgerð um „Erfðastuðla og erfða
þróun frjósemiseiginleika í íslenska
kúastofninum“ en ekki eitthvað allt
annað.
Þórdís hlær og segir: „BSc verk
efnið mitt fjallaði einnig um kýr og
ég vildi endilega halda áfram á því
áhugasviði. Pabbi er í fagráði naut
griparæktarinnar og sýndi mér lista
yfir möguleg verkefni sem væri
æskilegt að koma í gagnið hérlendis.
Verkefni um nýtt frjósemismat fyrir
íslenskar kýr var efst á listanum og
mér leist bara ljómandi vel á það.
Ritgerðin er mjög hefðbundin en
rannsóknarvinnan sjálf var öll fyrir
LÍF&STARF
Meistaravörn Þórdísar Þórarinsdóttur í búvísindum við LBbhÍ fór fram í gegnum Zoom fjarfundabúnað:
Er að taka við búinu á Bustarfelli
í Vopnafirði með unnusta sínum
Þórdís og Eyþór, unnusti hennar, á fallegu vopnfirsku sumarkvöldi 2019. Mynd / Einkasafn
Fjölskyldumynd frá síðustu áramótum, Þórdís ásamt foreldrum sínum, Þórarni Leifssyni og Guðrúnu Lárusdóttur,
og systkinum, þeim Þorra og Sunnu.
Þórdís Þórarinsdóttir fyrir framan Minjasafnið á Bustarfelli í Vopnafirði þar sem hún hefur unnið sem safnvörður síðastliðin þrjú sumur. Myndir / Úr einkasafni