Bændablaðið - 07.05.2020, Síða 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 202030
Streita og kulnun eru algengari
en flesta grunar og eru þá engar
starfsstéttir undanskildar. Flestir
fá vægari einkenni streitu en
vilja sjaldnast viðurkenna þau.
Besta leiðin til að koma í veg fyrir
kulnun er að þekkja einkennin og
beita forvörnum.
Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir
og framkvæmdastjóri Streituskólans,
segir að ólík hugsun og ólík menning
einkenni oftast ólíkar starfsstéttir.
„Við vitum að konur leita sér fyrr
aðstoðar en karlmenn ef þörf er fyrir
hana og við vitum að í mörgum stétt
um er menning fyrir því að sýna ekki
veikleikamerki þó slíkt hafi verið að
breytast undanfarin ár.
Hvað varðar bændur og fólk á
landsbyggðinni hefur það orðið út
undan hvað þessa þjónustu varðar.
Það er oft langt að sækja þjónustu
og fræðslu og það hefur sýnt sig að
því lengra sem er í þjónustuna því
seinna sækist fólk eftir henni. Annað
sem einnig er vitað er að því minna
sem fólk veit um þjónustu því ólík
legra er það til að nýta sér hana og
forvarnafræðsla og efling eru nýj
ungar sem sprottið hafa fram innan
vinnuverndar fyrirtækja en ættu að
vera öllum aðgengileg.“
Geðheilsa bænda
Ólafur Þór segir að fyrir um það
bil tíu árum hafi læknarnir Kristinn
Tómasson og Gunnar Guðmundsson
gert merkilegar rannsóknir á heilsu
fari íslenskra bænda. „Hluti af þeim
rannsóknum beindist að geðheilsu
og sýndu að geðheilsa bænda væri
svipuð og hjá öðrum stéttum en um
leið að þeir leiti sér síður aðstoðar
sé hennar þörf.
Búskapur er álagsstarf og menn
mikið einir og sjaldan hægt að kom
ast í burtu í frí. Álagsþættir bænda
eru ekki bara bindingin sem felst í
búrekstri því þeir hafa einnig fjár
hagsáhyggjur, enda reka þeir bæði
bú og heimili. Eitt af því sem hefur
komið á óvart er að margir bændur
eru haldnir tæknistreitu vegna allra
þeirra nýjunga sem þeir þurfa að
takast á við og kynna sér.
Streita og kulnun
„Það sem við köllum streitu kemur
fram í nokkrum stigum og eru
vefræn eða sálræn viðbrögð við
álagi. Fyrstu einkennin eru þreyta og
vöðvabólga sem lagast með hvíld.
Annað stig streitu er það sem við
köllum kulnun sem er sálfræðileg
lýsing á ástandi þar sem fólk hættir
að hvílast, það verður kvíðið og
dapurt og þreytt og skapbreytingar
geta verið tíðar. Þess konar ástand
hverfur yfirleitt eftir góða hvíld og
það hafa flestir lent í þessu á ein
hverjum tíma.
Alvarlegri stig kulnunar lýsa
sé með truflum á hvíld, slökun
og svefni og eftir að það gerist er
viðkomandi kominn í vítahring
sem erfitt getur verið að losna úr.
Lokastigið er svo sjúkleg streita sem
flokkast sem sjúkdómur þar sem auk
fyrrgreindra einkenna fylgja alls
konar verkir og einnig það sem kall
ast vitræn einkenni sem geta verið
minnistruflanir, einbeitingarskortur,
skert álagsþol og mikil andleg og
líkamleg þreyta sem lagast ekki við
venjulega hvíld.
Besta leiðin til að koma í veg
fyrir að svona ástand skapist eru
forvarnir eins og fræðsla, ráðgjöf,
stuðningur og ef á þarf að halda
meðferð.
Ólafur Þór segir að í sjúkdóms
ferlinu sé eins konar taktur þar sem
fólk dettur inn og út og smám saman
dýpka öldurnar og það þarf sífellt
minna til að lenda undir brotinu. Því
lengur sem ástandið hefur varað því
erfiðara er að komast út úr því vegna
þess að vanlíðan er orðin mikil og
vinnugetan jafnvel skert.
Því miður erum við að sjá þetta
gerast víða innan fyrirtækja þar sem
fólk er að berja sig mikið áfram eða
að fyrirtækin krefjast of mikils af
fólki. Persónugerðirnar sem hættast
er við kulnun í starfi eru þeir sem
eru of nákvæmir, samviskusamir og
markvissir í starfi og bíta á jaxlinn
hvað sem á dynur.“
Forvarnir besta vörnin
„Oft er það svo að fólk vill ekki
viðurkenna eða verður ekki vart
við að einkenni kulnunar séu til
staðar hjá því sjálfu og þá getur
verið nauðsynlegt að opna eyrun
fyrir því sem aðrir og umhverfið
segir og fara eftir ráðum annarra.
Karlmenn sem þjást af streitu
eiga það til að halla sér að áfengi
til að slaka á og bæta svefn en það er
skammgóður vermir því að til lengri
tíma litið dregur áfengisneysla úr
svefngæðum og eykur enn á vand
ann og langtímaneysla áfengis veld
ur yfirleitt depurð.“
Ólafur segir að besta ráðið til að
draga úr streitu séu forvarnir og gæta
að hvíldinni því hún sé lykilatriðið.
Það sem gerist í sjúklegri streitu er
að streituhormónin, Cortisol, sem
heilinn stjórnar og er framleidd
ur í nýrnahettunum, er í of miklu
magni í líkamanum og veldur alls
konar slæmum áhrifum. Færi vita
að einnig er til svokallað hvíldar
hormón, Dehydroepiandrosterone,
sem myndast við slökun og eykur
vellíðan og styrkir heilavefinn eins
og besta yngingarmeðal.
„Bændur þekkja bændalúrinn
sem er blundur á miðjum degi með
góðri slökun og hefur ótrúlegan efl
ingarmátt á sál og líkama. Auk þess
sem öll hreyfing, sem bændur stunda
mikið, er öllum holl.“
Streituskólinn
Fyrirtækið sem rekur Streituskólann
heitir Forvarnir og í nafninu felst
yfirlýsing um starfsemi þess.
„Starfsemi fyrirtækisins er víðtæk og
það sinnir meðal annars einstaklings
þjónustu, ráðgjöf fyrir fyrirtæki og
rannsóknum. Heitið Streituskólinn er
í senn jákvætt og fyndið og fólk er
ekki eins hrætt við það eins og orðin
þunglyndi eða kvíði. Streituskólinn
er ekki heldur skóli í hefðbundinni
merkingu orðsins heldur frekar
kennslufyrirkomulag sem er allt frá
því að það komi einn í viðtal, vera
fyrirlestur fyrir marga eða fastur liður
í starfsemi fyrirtækja og stofnana.
Kjörorð skólans er: „Fræðsla til
forvarna“ og starfsemi hans miðar að
því að nýta þekkingu og rannsóknir
úr vísinda og þekkingarheiminum
og setja fram á sem gagnlegastan
hátt og vekja fólk til umhugsunar um
mikilvægi geðheilbrigðis.
Við sem að Streituskólanum
stöndum erum af landsbyggðinni og
höfum gert og haft gaman af því að
fara út á land og vinna þar. Breyttir
tímar eins og nú gera það að verkum
að við höfum aukið notkun á fjar
búnaði og getum boðið alla okkar
þjónustu gagnvirkt í gegnum hann.
Auk þess sem við erum með útibú á
Akureyri og á Vesturlandi.“ Nánari
upplýsingar um Streituskólann má
nálgast á www.stress.is og facabook
síðu skólans. /VH
LÍF&STARF
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Bændalúrinn er öllum hollur
– Blundur á miðjum degi hefur ótrúlegan eflingarmátt
Streituráð
• Leggðu þig fram um að greina álags-
þættina í lífi þínu. Það er mikilvægt að
þú áttir þig á hvað veldur þér streitu,
bæði í starfi og einkalífi. Sumu getur
maður breytt, öðru ekki. Oft eru streitu-
valdar lúmskir. Einföld verkefni og auð-
leysanleg geta vafist óþarfalega mikið
fyrir okkur. Stundum eru streituvaldarnir
alls ekki neikvæðir. Það er jákvætt að
takast á við barnauppeldi og búrekstur
en því fylgir álag að vera alltaf til staðar
og viljinn til að gera vel og það getur
valdið álagseinkennum gæti maður ekki
að sér.
• Ósjálfráð fyrstu viðbrögð við streitu eru
ekki alltaf heppileg. Dæmi um slíkt er
meðvirkni. Að láta sem ekkert sé og gera
ekkert í málinu. Skylt þessu er frestun.
• Mótaðu betri viðbrögð til að bregðast við
með gagnlegri hætti, leita lausna, sækja
stuðning og ýta burt hugsunum um mál
sem ekki er hægt að hafa áhrif á.
• Tileinkaðu þér lífstíl með sálfélagsleg-
um forvörnum og gættu vel að hvíld.
Samvera, samhugur og hjálpsemi skiptir
líka miklu máli.
Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir og framkvæmdastjóri Streituskólans. Mynd / HKr. Helga Hrönn Óladóttir, umdæmis-
stjóri Streituskólans á Norðurlandi.
Dr. Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir
félagsráðgjafi.
Aldís Arna Tryggvadóttir, umdæmisstjóri Streituskólans á Vesturlandi og
markþjálfi, að störfum.