Bændablaðið - 07.05.2020, Page 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 2020 39
gróið land (2. mynd). Moldir hafa
gróið mikið upp en gróðurþekja
í melareitum hefur fremur lítið
breyst þótt undantekningar séu þar
á. Tegundasamsetning hefur hins
vegar breyst talsvert í nánast öllum
reitum. Á gamalgrónu landi hefur
gróska aukist og grastegundir aukið
hlutdeild sína. Friðun reita hefur haft
talsverð áhrif á tegundasamsetningu
en frekar lítil á þekju. Mælingar á
jarðvegsþykknun benda til þess að
dregið hafi úr áfoki við Heygil á
þeim árum sem rannsóknin nær til.
Það er ekki eingöngu við Hey
gil sem land hefur gróið upp á
Hrunamanna afrétti á síðustu áratug
um. Athuganir á allstóru svæði innar á
afréttinum, neðan 400 m hæðarmarka,
benda eindregið til þess að land hafi
gróið eða sé að gróa upp líkt og við
Heygil. Rofabörð hafa víða lokast,
moldir gróið upp og rakir og/eða stöð
ugir melar eru sums staðar farnir að
gróa. Fínkorna og lausir melar virðast
hins vegar lítið hafa breyst. Athuganir
enn innar á afréttinum og hærra yfir
sjó, við Búðarfjöll, í Grjótártungu
og Hrísalækjum, benda hins vegar
til þess að þar sé enn víða talsvert rof
og að land hafi ekki gróið upp í eins
miklum mæli og neðar á afréttinum
(1. mynd). Líkt og við Heygil hafa
moldir þar einkum gróið upp en melar
síður.
Þótt það hafi ekki verið rann
sakað sérstaklega má ætla að traðk,
teðsla og þvag sauðfjár hafi haft
jákvæð áhrif á landnám plantna
á moldum og í rofjöðrum (3.–4.
mynd). Það er löngu þekkt að fræ
forði í jarðvegi er langmestur í
efstu lögum (≈10–20 cm) jarðvegs
en snarminnkar með dýpt. Á stöð
um þar sem rof er mikið, svo sem í
virkum rofabörðum og á moldum,
er því skortur á fræi sökum þess að
sá jarðvegur sem rofnar er gamall
og nánast frælaus. Vegna rofsins
kemur fræregn frá nágrenninu illa
að notum því að fræ flyst að mestu
í burtu og nær því ekki að spíra í
rofinu sjálfu. Við slíkar aðstæður
getur traðk ráðið úrslitum um land
nám. Í förum eftir sauðfé getur fræ
safnast fyrir og náð að spíra. Teðsla
og þvag getur síðan hjálpað til og
orðið til þess að plöntur komist á
legg. Telur greinarhöfundur þetta
hafa verið algengt í rofabörðum á
afrétti Hrunamanna á síðustu árum.
Líklegt er að þessi jákvæðu áhrif
sauðfjárbeitar minnki verulega ef
beitarálag verður of mikið því að
aukin beit á plöntum fer þá að hafa
neikvæð áhrif á landnámið.
Hvað gera bændur nú?
Eftir tæplega 30 ára samvinnu við
bændur um uppgræðslu á afrétti
Hrunamanna telur greinarhöfundur
að viðhorf þeirra gagnvart sauðfjár
beit og meðferð lands hafi breyst
mikið. Menn hafa nú betri skilning
á ástandi lands og mikilvægi þess
að fara vel með það og að beit megi
alls ekki verða of þung. Bændur
hafa staðið sig mjög vel við upp
græðslu sem hefur komið þeim til
góða með bættu beitilandi og minna
álagi á land utan uppgræðslusvæða.
Fullyrða má að fækkun fjár, hlýnandi
loftslag og uppgræðsla hafi stuðlað
að þeim gróðurbreytingum sem orðið
hafa í afréttinum á síðustu áratugum.
Þótt land í afrétti sé í framför er þar
enn allvíða talsvert rof og enn víð
áttumikil, lítt gróin svæði neðan 500
m hæðar sem ættu að geta klæðst
samfelldum gróðri.
Í ljósi breytinga á neysluvenjum
og viðhorfum í þjóðfélaginu, svo
sem minnkandi neyslu lambakjöts,
kostnaðar við framleiðsluna, áhrifa
sauðfjárbúskapar á kolefnisjöfnuð og
á gróður, er eðlilegt að ræða beit og
uppgræðslu á afréttum í víðu sam
hengi. Hér er afréttur Hrunamanna
tekinn sem dæmi og settar fram
fjórar mismunandi leiðir um nýtingu
og uppgræðsluaðgerðir í afréttinum.
Tekið skal fram að ein leið þarf ekki
nauðsynlega að útiloka aðra. Um eft
irfarandi er að ræða:
1. Að beitarfriða afréttinn og láta
náttúruna um að græða landið.
2. Að beitarfriða afréttinn og
græða hann upp með lúpínu.
3. Að beitarfriða afréttinn og
vinna að uppgræðslu líkt og
gert hefur verið.
4. Að beita afréttarlandið „hóf
lega“ en vinna jafnframt að
uppgræðslu í samvinnu við
bændur o.fl. aðila.
Vélar, bátar, bílar, gámar eða vörur í lausu
Það skiptir ekki máli hvað þú þarft að flytja,
við getum flutt það fyrir þig landshorna á milli.
Reglulegar ferðir á flesta staði á landinu.
Hafðu samband og við finnum lausnina með þér.
fraktlausnir@fraktlausnir.is
Sími 519-2150 eða 773-1630
SAUÐFÉ&GRÓÐUR
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KÚPLINGAR í flestar
gerðir dráttarvéla
– Framhald á næstu síðu
2. mynd. Heildargróðurþekja í reitum við Heygil á Hrunamannaafrétti 1981–2019. Friðaðir reitir eru merktir með
rauðum lit. Þeir reitir sem eru nokkurn veginn sambærilegir eru tengdir með ferhyrningum. Innan hvers reits var
mælt í 10 eins fermetra smáreitum. Lóðrétt strik tákna staðalskekkju.
3. mynd. Áhrif traðks á moldum við Heygil. Bæði utan og innan reits (R18)
er klóelfting áberandi. Utan reits er mikið traðk og verulegt landnám merkj-
anlegt, grashnubbar eru margir. Innan reits er yfirborð jafnara, klóelfting
er þar ríkjandi og grashnubbar eru fáir en stórir (ljósmynd 5. ágúst 1999).
R19 R11 R16 R13 R12 R20 R18 R07 R15 R14 R04 R02 R05 R06 R01 R03 R08 R09 R10 R17
0
20
40
1981
1999
2009
2019
Melar Moldir Nýgræði og gamalgróið land
60
80
H
ei
ld
ar
gr
óð
ur
þe
kj
a
%
100
REKI EHF ER STOLTUR UMBOÐSAÐILI DONALDSON
Á ÍSLANDI. EIGUM MIKIÐ ÚRVAL AF SÍUM Á LAGER.
Reki ehf Höfðabakka 9 110 Reykjavík
Sími: 562 2950 Fax: 562 3760
E-mail: bjorn@reki.is www.reki.is