Bændablaðið - 07.05.2020, Blaðsíða 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 2020 43
1400 lítra (2ja sekkja)
Kögglasigti
Ryðfríar skífur
Vinnslubreidd: 10 - 18 m
Mekanísk stilling
Jaðarbúnaður
Yfirbreiðsla.
l
l
l
l
l
l
l
Áburðardreifarar
Kr. 950.000,-án VSK
Verð aðeins
AMAZONE ZA-X 1402 Perfect
Tvær dreifiskífur - meiri nákvæmni
1400 lítra - hægt að stækka í 1700 lítra
*Aukabúnaður á mynd ekki innifalinn í verði: Upphækkun og ljósabúnaður
AMAZONE ZA-X 602
Tvær dreifiskífur - meiri nákvæmni
600 lítra - hægt að stækka í 850 lítra
VISSIR ÞÚ að AMAZONE
hefur prófað megnið af
þeim áburði sem seldur er
á Íslandi og birtir sérstakar
stillingar fyrir þann áburð
á heimasíðu sinni, www.
amazone.de - Einnig er
hægt að nálgast app
fyrir áburðarstillingarnar í
i-Phone og Android síma.
*Aukabúnaður á mynd ekki innifalinn í verði: Upphækkun
600 lítra (1 sekkur)
Mekanísk stilling
Kögglasigti
Ryðfríar skífur
Vinnslubreidd: 10 - 18 m
Einfaldur, ódýr og vandaður dreifari
l
l
l
l
l
l
Kr. 680.000,-án VSK
Verð aðeins
REYKJAVÍK:
Krókháls 16
Sími 568-1500
AKUREYRI:
Baldursnes 8
Sími 568-1555
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.isÞÓR FH
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
aðist eftir einkenndur með nafninu
„Bartram Trail“ eða Slóði Bartrams.
Sérlega vinsæll hjá göngufólki er
víst 185 km „spotti“ slóðans sem
liggur frá fjöllum N-Georgíu upp
til N-Karólínu og eflaust áhugavert
fyrir útivistarfólk héðan að flækj-
ast um þær söguslóðir, vilji menn
á annað borð tilbreytingu frá hinu
fallega landslagi Íslands. Faðirinn
náði 78 ára aldri og sonurinn var
orðinn 84 ára þegar að andláti kom.
Hlýtur að teljast ansi gott hraust-
leikamerki hjá þeim báðum, á þeim
tíma, að ná svo háum aldri. Held þó
aftur af mér að fullyrða um of varð-
andi mikilvægi garðyrkju og plantna
fyrir heilsuna að sinni.
Mexíkóska jólamjólkin
Í lokin má draga jólastjörnuna frægu
inn í söguna, plöntuna fögru af mjólk-
urjurtarætt, sem við tengjum svo oft
við jólin, Euphorbia pulcherrima. Sú
vex á Vesturströnd Mexíkó og var
mikið notuð af Aztekum sem litar-
efni, auk þess að safinn ku hafa verið
notaður í tengslum við lækningar. Þó
það virðist ljóst að landkönnuðir frá
Evrópu hafi rekist á hana í ferðum
sínum, virðist hún ekki hafa ratað
með þeim í neins konar ræktun í
heimalandinu. Það var því banda-
ríski sendiherrann í Mexíkó, Joel
Roberts Poinsett, sem var lengi
talinn hafa verið fyrstur til að kynna
hana utan Mexíkó, er hann sneri með
hana til baka til Bandaríkjanna árið
1830. Þrátt fyrir að vera ekki fyrstur
til að finna hana var hún af þessari
ástæðu kennd við hann um langan
tíma. Jafnt með gamla fræðiheitinu
Euphorbia poinsettia og eins því að í
dag er hún enn víða kölluð almenna
nafninu Poinsettia.
Árið sem Ibsen, Tolstoy og
leyndardómsfulli Snæfellsjökuls
penninn Jules Verne fæddust var
einnig merkilegt í sögu jólastjörnunn-
ar. Árið er 1828 og frændi Bartram-
fjölskyld unnar annars vegar og hins
vegar gamall vinur Poinsett, William
Maclure, ferðast saman til Mexíkó.
Ekki er pláss til að greina frá ferða-
sögunni hér, en ýmsar plöntur og fræ
rak á fjörur þeirra, sem þeir sendu
beint frá Mexíkó til gróðrarstöðv-
ar Bartrams. Síðar sama ár snúa
þeir til baka úr för sinni og kemur
þá Maclure sjálfur með viðbót til
gróðrarstöðvarinnar. Á meðal þess
sem ferðaðist með þeim til baka, var
áðurnefnd jólastjarna.
Robert nokkur Buist staðfest-
ir m.a. í skrifum sínum árið 1828
að hafa séð þessar plöntur í fyrsta
sinn á ævinni, einmitt hjá Bartram-
fjölskyldunni. Sami maður fékk svo
heiðurinn af því að kynna plöntuna
áfram fyrir Evrópubúum, ekki síst
gegnum tengingar sínar við James
McNab hjá Grasagarði Edinborgar.
Buist var einmitt áður við læri í
Edinborg. Það er því miður sami
Buist sem heldur á lofti í Evrópu
hinni röngu sögu að plantan hafi
fundist fyrir tilstilli Poinsett, vitandi
þó sjálfur betur að hún kemur fyrst
til Bandaríkjanna gegnum Bartram-
fjölskylduna og tengingar hennar.
Skiptir það máli? Í raun ekki, þó
eintök Bartram-garðsins hafi líklega
verið fyrstu lifandi plönturnar sem
fluttar voru frá Mexíkó og fóru svo
í almennilega ræktun þá var plant-
an vel þekkt í Mexíkó um langa tíð
áður. Einnig var hún þekkt í Evrópu
upp að vissu marki þar sem nokkrir
landkönnuðir höfðu tekið með heim
sýni af henni, þó ekki hafi verið um
lifandi plöntuvefi að ræða. Meðal
þeirra má t.d. nefna hinn merka mann
Alexander von Humboldt en hann var
ekki einu sinni fyrstur þeirra. Fróðlegt
þótti mér engu að síður hversu áhuga-
verðar tengingar má finna hjá þessari
vel þekktu plöntu og að hún skuli
þar draga inn Bartram-fjölskylduna.
http://bartramsgarden.org/
Kristján Friðbertsson.
Lítill íkorni laumast til að narta í eitthvað gott í grasi grasagarðsins.
Skilti við eitt af elstu trjám garðsins, talið ræktað úr fræi sem barst þeim
undir lok 18. aldar.