Bændablaðið - 07.05.2020, Side 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. maí 2020 45
trefjarætur. Stofninn beinvaxinn,
ljósbrúnn og flekkóttur og frem-
ur grannur. Blöðin, leðurkennd,
nokkur saman á stuttum stöngli,
heilrennd, bylgjótt og glansandi en
breytileg að lögun og stærð. Allt
frá því að vera egg- eða lensulaga,
6 til 30 sentímetra löng og 2 til 13
að breidd. Blómin hvít eða bleik á
5 til 13 sentímetra löngu axi með
300 til 600 blómum, hvert einstakt
blóm 10 til 15 millimetrar að lengd
og með fjórum krónublöðum. Bæði
sjálffrjóvgandi og frjóvgað með
býflugum. Í fyrstu eru aldinin græn
og mjúk en verða mjög hörð með
auknum þroska, slétt og trékennd og
með einu eða tveimur fræjum og 2,5
sentímetrar í þvermál.
Yrki í ræktun
Fjöldi yrkja er í ræktun og eru sum
þeirra blendingar M. integrifolia
og M. tetraphylla. Dæmi um slíkan
blending er yrkið 'Beaumont' sem
er ræktað víða í Ástralíu og á Nýja-
Sjálandi og er með rauðleit blöð.
Yrkið er olíurík og sætuminna
en mörg önnur yrki. fljótsprottið
og uppskerumikið. 'Nelmac' er
blendingur sem aðallega er ræktaður
í Suður-Afríku. Hnetan er sæt og
þykir góð óristuð. Á það til að
skemmast fyrir uppskeru þar sem
ólíkt öðrum goðahnetum er gat á
hnetum afbrigðisins sem skordýr
eiga til að skríða inn um og verpa
í fræin. Ræktun yrkisins 'Renown',
sem einnig er blendingur, eykst frá
ári til árs vegna mikillar uppskeru
og bragð þeirra þykir ekki eins gott
og margra annarra yrkja.
Yrkið 'Maroochy' er ástralskt og
af tegundinni M. tetraphylla og þykir
bragðgott. Oft notað sem frjósort
með 'Beaumont'.
Upprunnin í Ástralíu
Elstu minjar um forvera goðahnet-
utrjáa eru frjó sem talin eru vera
um 50 milljón ára gömul og fund-
ust í Queensland í Ástralíu. Vegna
takmarkaðrar útbreiðslu trjánna er
talið að þau hafi oftar en einu sinni
verið á mörkum þess að deyja út en
hjarað á litlum svæðum. Talið er að
frumtegundin í Ástralíu hafi skipst í
þær tegundir sem þekkjast í dag fyrir
um 10.000 árum eða við lok síðustu
ísaldar. Takmörkuð útbreiðsla orsak-
ast meðal annars af stærð og þyngd
fræjanna.
Nytjar frumbyggja í Ástralíu á
trénu eru þekktar frá ómuna tíð.
Frumbyggjunum þóttu goðahnet-
ur verðmætar og voru þær meðal
annars notaðar sem gjafir og til að
greiða skuldir.
Sagan segir að breski land-
könnuðurinn og grasafræðingur-
inn Allan Cunningham hafi verið
fyrstur Evrópumanna til að þurrka
plöntuhluta af goðahnetutré og senda
sýnishorn til Kew grasagarðsins í
London árið 1828. Ástralinn Baron
Ferdinand von Mueller, sem sagður
er vera frumkvöðull grasafræðinn-
ar í Ástralíu, mun hafa verið fyrsti
maðurinn til að lýsa trénu í riti árið
1857. Mueller nefndi það á latínu
í höfuðið á vini sínum, Skotanum
og lækninum John MacAdam, og
í dag kallast ættkvíslin Macadamia
honum til heiðurs. Óvíst er talið að
MacAdam hafi smakkað hneturnar
sem eftir honum eru nefndar áður
en hann lést. Landneminn og grasa-
fræðingurinn Walter Hill er sagður
hafa séð innfæddan dreng brjóta og
borða kjarna hnetunnar í Queensland
í Ástralíu árið 1858 og farið að fyr-
irmynd hans. Sagt er að auk þess að
smakka á fræinu hafi Hill gróðursett
annað fræ og tréð sem upp af því óx
er sagt enn vera lifandi.
Eftir landnám Evrópumanna á
Ástralíu hófst verslun, í smáum stíl,
milli landnemanna og innfæddra
sem söfnuðu hnetunum í náttúr-
unni. Stórtækastur innfæddra mun
hafa verið foringi sem kallaðist King
Jacky og tilheyrði ættflokki sem bjó
við ána Logan í suðurhluta Brisbane
í Queensland.
Fyrstu goðahnetutrjálundirn-
ir voru gróðursettir 1866 og árið
1882 var farið að rækta trén á
Havaí-eyjum sem skjólbelti fyrir
sykurreyr. Fyrsti goðahnetulund-
urinn til hnetuframleiðslu, með 250
trjám, var aftur á móti planta í Nýju
Suður-Wales 1888 og ári seinna er
haft eftir grasafræðingnum Josep
Mainden, sem þekktastur er fyrir
rannsóknir sínar á tröllatrjám eða
Eucalyptus, að hneturnar seljist
vel og vel þess virði að rækta trén
í stórum stíl.
Á fyrsta áratug síðustu aldar
hefst umfangsmikil ræktun og
framleiðsla á goðahnetum á Havaí-
eyjum, meðal annars til að vega á
móti samdrætti í eftirspurn á kaffi-
baunum frá Havaí.
Allt til ársins 1937 voru goða-
hnetutré ræktuð af fræjum en það
ár tókst fyrst að fjölga þeim með
ágræðslu og möguleikar á fjölda-
framleiðslu trjánna eftir yrkjum í
höfn. Í framhaldi af því hófst ræktun
á trjánum í stórum stíl á Havaí og
í framhaldinu í Ástralíu og suður-
ríkjum Norður-Ameríku.
Vinsælasta yrkið í ræktun um
miðja síðustu öld kallaðist 'Royal
Havaiian' og naut það mikill vin-
sælda í Norður-Ameríku.
Havaí-eyjar og Ástralíu voru
stærstu framleiðendur goðahneta í
heiminum allt fram á þessa öld en
þá tók framleiðslan í Suður-Afríku
kipp og er í dag sú mesta í heimi.
Nafnaspeki
Latneska ættkvíslarheitið, Maca-
damia er til heiðurs skoska
lækninum John MacAdam.
Tegundaheitið integrifolia vísar
til þess að blöðin séu heilrennd en
tetraphylla að blöðin vaxi fjögur
saman í hnapp, tetra þýðir fjórir á
grísku en phylla laufblað.
Enska heitið macadamia er
komið úr latínu en á ensku þekkist
einnig heitið Queensland nut,
Frakkar segja noix macadamia,
amande du noyer de Queensland
eða noix de bancoul og Ítalir og
Spánverjar makadamia. Þjóðverjar
kalla hnetuna makadamianuß og
makadam-Nuß. Finnar, Svíar og
Norðmenn segja makadamia en
Danir macadamianød.
Frumbyggjar í Ástralíu kalla
goðahnetutrén kindal kindal en hnet-
urnar gyndl, jindilli og boombera.
Á íslensku kallast hnetan
goðahneta og er þar vísað til
Lokaskeggsættarinnar sem kallast
Proteaceae latínu. Latínuheitið er
komi frá Svíanum Carl Linnaeus
og dregið af nafni gríska vatna- og
sjávarguðsins Prómeteus sem líkt
og Loki gat breytt sér í ýmissa kvik-
inda líki.
Ræktun
Eftir að menn komust upp á lag með
ágræðslu í ræktun goðahnetutrjáa
óx ræktunin hratt þrátt fyrir að eftir-
spurn í dag sé meiri en framleiðslan.
Sáðplöntur eru allt að tíu ár að ná
aldinþroska og gæði þeirra misjöfn.
Að öllu jöfnu gefa trén af sér í 70
til 100 ár.
Trén dafna best í vel framræstum
og næringarríkum jarðvegi þar sem
úrkoma er eitt til tvö þúsund milli-
metrar á ári. Plantan kýs jafnt hita-
stig og má það ekki fara niður fyrir
10° á Celsíus á meðan plönturnar
eru ungar. Fullvaxin tré þola hitastig
niður að frostmarki.
Eftir frjóvgun sem í ræktun er
mest með býflugum myndast um
20 aldin eða hnetur á hverju axi.
Blómgun trjáa á sér stað á fjögurra
til sex mánaða tímabili og á aldin-
þroski trjáa sér því stað á löngu
tímabili. Trén eiga það til að sleppa
úr einu og einu blómgunarári eða
draga verulega úr blómgun til að
hvíla sig.
Mikil vinna er því við að vakta
þroska og tína hneturnar af trjánum
og er uppskeran mikið unnin með
höndum. Á stærstu ræktunarsvæð-
unum eru hneturnar hristar af trján-
um með vélum fimm til sex sinnum
á ári og þeim blásið saman áður en
þeim er safnað.
Muldar hnetuskeljar og hænsna-
skítur er mikið notað sem lífrænn
áburður fyrir trén. Auk þess sem
notaður er tilbúinn áburður og
talsvert mikið af varnarefnum við
ræktunina nema að hún sé lífræn.
Makadamía- eða goðahnetur
eru mjög harðar og sagt að þær
séu svipað harðar og ál af sama
sverleika og eftir uppskeru eru þær
valsaðar í eins konar hnetubrjót til
að ná fræjunum úr skeljunum. Til
að halda fræinu fersku er það geymt
við 1,5% rakastig og síðan er það
þurrkað í ofni við ríflega 100° á
Celsíus.
Uppskera er breytileg eftir yrkj-
um og ræktunarstöðum og þykir
gott að trén gefi af sér 13 til 23 kíló
af hnetum á ári.
Þjóðtrú frumbyggja
Samkvæmt trú frumbyggja í
Ástralíu er uppruni goðahneta í
draumatímanum.
Eitt sinn þegar Yindingie, guð
sendiboðanna, var að yfirgefa
Fjallið þar sem hann bjó þurfti
Budjilla fólkið að ákveða hver
ætti að gæta ólíkra hluta lands-
ins á meðan guðinn væri í burtu.
Auðveldlega gekk að fá fólk til að
gæta flestra landshlutanna en erf-
iðlegar gekk að fá einhvern til að
gæta Fjallsins. Að lokum gaf sig
fram maður að nafni Baphal.
Baphal bjó sig til ferðarinnar til
Fjallsins sem var bæði löng og erfið.
Án vitundar Baphal faldi vinur
hans, gimsteinaeðlan, sig í bakpok-
anum hans og fór með í ferðalagið.
Eftir langa göngu sá Baphal að hann
nálgaðist Fjallið og að lokum kom
hann að rótum þess. Þegar Baphal
opnaði bakpokann stökk gimsteina-
eðlan upp úr honum. Baphal brá í
fyrstu en var svo ánægður að sjá
vin sinn og spurði hvers vegna hann
væri þarna. Gimsteinaeðlan svaraði
að hún hefði ekki vilja láta vin sinn
fara einan í þessa löngu ferð. „Ég
faldi mig því í bakpokanum til að
geta fylgt þér.“
Einu sinni þegar Baphal var einn
á ferð féll hann og slasaðist á fæti
og gat ekki gengið og varð matar-
og vatnslaus. Gimsteinaeðlan sem
sá að vinur hann var slasaður fór
til steinpokadýrsins og spurði ráða.
Steinpokadýrið sagði gimsteina-
eðlunni að þeir yrðu að sækja vatn.
Því næst sóttu þeir vatnsskjóðu
Baphal og fóru að uppsprettu en
þegar þangað kom náði steinpoka-
dýrið ekki niður að vatninu. Eðlan
og pokadýrið báðu kengúru að
teygja sig í vatnið sem hún gerði og
rétti steinpokadýrinu skjóðuna sem
aftur rétti gimsteinaeðlunni hana og
hún fór með vatnið til Baphal.
Næsta skref var að útvega mat.
Að þessu sinni stakk steinpokadýrið
upp á að leita ásjár hjá kakadúanum
sem tók vel í beiðnina. Kakadúinn
flaug af stað og safnaði goðahnet-
um og dreifði þeim um Fjallið svo
að Baphal gæti fundið sér mat að
borða.
Steinpokadýrið og gimsteina-
eðlan sáu að Baphal var of veik-
burða til að bera sig eftir björginni
og þurfti á hjálp fólksins í ætt-
bálki sínum að halda. Með hjálp
kakadúans kveiktu þau eld með
grænu laufi og goðahnetum. Þegar
ættmenn Baphal sáu reykinn vissi
það að Baphal var í vanda og sendi
flokk manna til að bjarga honum.
eEnn þann dag í dag kallast Fjallið
Baphalsfjall, gimsteinaeðlan
Baphalseðla og goðahneturnar
Baphalshnetur.
Nytjar
Í hundrað grömmum af goðahnetum
er að finna 740 kaloríur. Þær eru
allt að 80% fita, 14% kolvetni, 9%
trefjar og 8% prótein. Auk þess sem
þær innihalda mikið af B vítamíni,
og steinefnum eins og mangan,
járni, magnesíum, járni og fosfór.
Vegna mikils fituinnihalds eru
goðahnetur vinsælar sem ketófæða.
Hneturnar eru einnig vinsælar, hvort
sem er hráar eða ristaðar í salat, eft-
irrétti og bakstur en úrgangshnetur
fara í dýrafóður. Úr hnetunum er
unnin olía sem notuð er í húðvörur
og trjánum er plantað út sem stáss-
plöntum í skrúðgörðum.
Skel goðahnetunnar er um 70%
af þyngd hennar og þær malaðar
og notaðar sem lífrænn áburður á
hnetutrén í ræktun.
Goðahnetur á Íslandi
Lítið hefur farið fyrir goða-
eða makadamíahnetum hér á
landi til þessa. Í auglýsingu í
Morgunblaðinu í mars 1986 má
sjá auglýsingu frá Hnetubarnum
á Laugavegi 33 þar sem verslunin
býður til sölu ýmiss konar hnetur.
Má þar nefna jógúrthúðaðar hnetur,
cashew, „macadamia“ og hunangs-
hnetur.
Hneturnar eru því talsverð
nýlunda hér og ekki fyrr en á síð-
asta ári sem farið var flytja þær inn
og selja í einhverju magni hér á
landi.
Goðahnetutínsluvél.
Goðahnetutré dafna best í jöfnu
hitastigi og má það ekki fara
niður fyrir 10° á Celsíus á meðan
plönturnar eru ungar. Fullvaxin tré
þola hitastig niður að frostmarki.
Goðahnetur í ræktun.
Í fyrstu eru aldinin græn og mjúk en verða mjög hörð með auknum þroska.
Þverskurður af ungri hnetu.